Fótboltablaðið - 01.01.2003, Page 14
Intersport og Nóatún:
Stórverslanir í Kjarnanum
Við í ritstjórninni skruppum útí búð í
þeim tilgangi að hitta okkar góðu sam-
starfsaðila hjá Intersport og Nóatúni.
Við fengum að sjálfsögðu hlýlegar mót-
tökur eins og allir þeir viðskiptavinir
sem leggja leið sína í Kjarnann. Við
töluðum við Sigrúnu Jónsdóttur, versl-
unarstjóra Nóatúns og Sigrúnu
Gestsdóttur, verslunarstjóra Inter-
sports. Þær stöllur voru hressar á
þessum fallega vormorgni. Intersport
og Nóatún tilheyra Kaupás en Kaupás
hefur unnið gott starf með knattspyr-
nudeild Umf. Selfoss síðustu 2 árin og
vonum við til að það samstarf verði
farsælt áfram.
Alltaf er hægt að ganga að því vísu að fá
góða þjónustu í Nóatúnsversluninni á Selfossi
en þar vinna alls 80 manns. Sérstaða verslu-
narinnar felst í mun meiri fjölbreyttni en hjá
hefðbundnum matvöruverslunum en innan
verslunarinnar er gott framboð af ýmis konar
sérvöru auk matvöru. Sem dæmi um slíkar
vörur er hægt að nefna nýbökuð brauð,
bakkelsi, ritvörur frá Eymundsson, ávexti í
kæliborði, kjöt úr kjötborði, búsáhöld,
gjafavörur, leikföng og raftæki. í byrjun
sumars var svo opnað póstútibú þar sem
hægt er að senda bréf eða pakka og kaupa
frímerki. Slíkt útibú er mjög þægilegt fyrir
viðskiptavini þar sem hægt er að slá tvær
flugur í einu höggi með því að versla inn og
póstsenda bréfin sín. Eins og komið hefur
fram er Nóatún mjög vel staðsett og hentar
verslunin mjög vel fyrir ferðafólk sem þarf að
versla með fjölbreytni í huga þegar lagt er af
stað í löng ferðalög.
í sama verslunarhúsnæði er líka hægt að
kaupa allt fyrir útivistarlífið og íþróttirnar en
Intersport er einnig í hjarta bæjarins.
Fyrirtækin hafa verið rekin samhliða
síðastliðin 2 ár með góðum árangri. Hægt er
að sækja bæði fjölbreytni og gæði í verslun
Intersport og gaman er frá því að segja að
vörurnar hér eru á sama hagstæða verði og í
Reykjavík. Það má segja að Intersport sé
verslun fyrir allt íþrótta- og útivistarfólk.
Hægt er að fá hlaupafatnað, skó, sundfatnað,
línuskauta, hjól og hjálma, veiðivörur, tjöld,
svefnpoka, bakpoka og alhliða íþróttafatnað.
Og þar er auk þess hægt að fá Umf. Selfoss
galla á kostnaðarverði. Allir eru svo hvattir
til að ganga í Intersportklúbbinn sem býður
uppá hagstæða afsláttarmöguleika. Með því
að ganga í Intersport klúbbinn færðu bónus,
sem byrjar í 6% ef keypt er fyrir 20 þúsund á
ári eða meira, greiddan sem inneignarávísun.
Mest getur bónusinn orðið 12%.
Fjölskyldumeðlimir geta sameinast á eitt kort
og þá er sparnaðurinn aldrei langt undan.
Á myndinni eru Sigrún Gestsdóttir (verslunarstjóri Intersports), Sigrún Jónsdóttir (verslu-
narstjóri Nóatúns), Sigrún Óskarsdóttir og Halldór Björnsson starfsmenn Intersports.
Slakur árangur
í Deildabikar KSÍ
Selfoss lék í B-riðli neðri deildar þetta árið
og gekk vægast sagt illa þrátt fyrir ágætis byrj-
un í fyrsta leik þar sem ÍR-ingar voru lagðir 4-
2 eftir að Selfoss hafði lent 0-2 undir. Síðari
hálfleikurinn í ÍR leiknum var hápunktur
keppninnar þar sem ÍR-ingar voru yfirspilaðir.
Næsti leikur (Breiðablik) var hörmung í heild
sinni en hann tapaðist 6-0. Ungt lið mætti
Reyni frá Sandgerði og beið lægri hlut 3-4
eftir að hafa leitt 2-0 um miðjan fyrri hálfleik.
Liðið sem mætti Núma var líka ungt og
óreynt. í þeim leik vantaði ekki færin en á
skorti að koma tuðrunni inn í markið. Loks
kom tap á móti KFS en sá leikur var allur
slakur. Liðinu gekk hins vegar vel í Danmörku
og vann báða sína leiki þar. A undirbún-
ingstímabilinu voru svo leiknir margir æfinga-
leikir og var gengið í þeim misjafnt. Það sem
stendur uppúr er skortur á stöðugleika. En
vonandi ná strákarnir að vinna úr því og
koma sterkir inn í tímabilið.