Mjölnir - 13.11.1964, Page 3
3
súrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrtogsættsúrto
— I fáum orðum —
KEÐJUSPRENGING. — Bragi Sigurjónsson, 18 þúsund króna
skáld, tryggingaforstjóri, ritstjóri og toppkrati á Akureyri var ný-
lega ráSinn bankastjóri útibús Utvegsbankans á Akureyri, með at-
kvæðum þriggja af fimm bankaráðsmönnum. Ármann Jakobsson
lögfræðingur og bankamaður á Siglufirði hlaut eitt atkvæð.i, hinir
fjórir umsækjendurnir ekkert, og er það talið sönnun þess, að eng-
inn Framsóknarmaður hafi verið meðal umsækjendanna, sem voru
sex. -— Ármann mun hafa haft lengstan starfsferil sem bankamaður
meðal umsækjendanna, en allir höfðu þeir starfsreynslu sem banka-
menn, að Braga einum undanteknum. — Afleiðing þessarar embætt-
isveitingar var verkfall starfsmanna Útvegsbankans á mánudag.inn í
síðustu viku.
Frétzt hefur úr höfuðstað Norðurlands, að þessi embættisframi
Braga muni verka eins og nokkurs konar keðjusprenging í krata-
flokknum þar í borg. Muni krati hoppa upp í embætti það, sem
Bragi hafði áður, annar í sæti hans o. s. frv. Fái þannig löng röð af
krötum betri embætti og störf en þeir höfðu áður.
Ekki er vitað, hvort Bragi heldur áfram ritstj órn Alþýðumannsins,
eða rýmir það starf fyrir öðrum krata. Hins vegar er talið víst, að
hann taldi áfam að yrkja (kannske á víxiltilkynningar, eins og
Tómas forðum), svo 18 þúsund-kallinn lendi ekki utan flokksins.
*
KRÚSTJOFF OG JÚLÍUS? — Sömu dagana og ráðning Braga var
á dagskrá lásum vér í einhverju blaði, að aldrei hefði verið kunn-
gjört, hvers vegna fyrrverandi bankastjóri Útvegsbankans á Akur-
eyri hefði „sagt upp starfi“.
Það skyldi þó aidrei vera, að kommar í Rússíá hefðu sótt fyrir-
myndina að afsetningu Krústjoffs til bankaráðs Útvegsbankans?
*
ÞJÓÐSAGA. — Fjór.ir voru mættir á klíkufund um bæjarmál hjá
íhaldinu í Siglufirði. Þeir sátu þegjandi og biðu þess að fleiri kæmu
svo fundur gæti hafizt.
Þeir voru ekki beinlínis glaðlegir ásýndum. Stefán var þrælkvef-
aður, náfölur og tekinn í andliti. Ásgrímur var að hugsa um sölt-
unarhorfurnar næsta sumar og hristi höfuðið áhyggjufullur. Baldur
hafði farið berhentur út í frostið og sat nú þungbúinn og neri hendur
sínar til að fá í þær hita. Einar Haukur hafði fengið tóbakskorn
upp í bæði augu, og rann úr þeim eins og hann væri að gráta.
I þessum svifum kom Óli Blöndal í dyrnar. Hann nam staðar
augnablik og virti fyr.ir sér þessar fjórar hryggðarmyndir. Síðan
hló hann glaðklakkalega og sagði uppörvandi: „Blessaðir strákar,
reynið þið nú að harka af ykkur. Getið þið aldrei hugsað um annað
en Sigurjón?"
Tango Jalousie
Einhvern tíma í þessum mán-
uði munu tveir ungir danskir
fiðluleikarar taka á móti styrkj-
um að upphæð 25 þús. og 60
þúsund danskar krónur úr sjóð.i,
sem stofnaður var af eignum
danska tónskáldsins Jacobs
Gade, sem lézt fyrir tveim árum;
og gert ráð fyrir, að á komandi
árum verði svipaðir styrkir
veittir úr sjóðnum til ungra
tónlistarmanna.
Jacob Gade var orðinn mjög
vel efnum búinn er hann lézt, og
enn koma árlega inn í sjóðinn
háar upphæðir í STEFgjöldum
af verkum tónskáldsins. Munu
þau halda áfram að stækka
sjóð.inn næstu 49 ár.
Það tónverk Gades, sem
mestar tekjur gefur af sér, er
hið heimsfræga lag Tango Jal-
ousie. Þetta lag er leikið a. m. k.
einu sinni á mínútu einhvers
staðar á hnettinum, og STEF-
gjaldið af því nemur 150—200
þúsund dönskum krónum árlega.
Annar þeirra fiðluleikara, sem
verðlaun hlutu úr sjóði Gades
í ár, en Anker Buch, 24 ára að
aldri. Buch var ráðinn fiðluleik-
ari í S.infóníuhlj ómsveit íslands
fyrir nokkrum árum og varð síð-
ar konsertmeistari hennar. Hann
var staddur í Reykjavík, þegar
honum barst tilkynningin um að
hann hefði hlotið 60 þús. kr.
styrk úr Gade-sjóðnum. Styrkur-
inn skiptist á þrjú ár. •— Undan-
farin 4 ár hefur Buch verið í
Ameríku, og kom fram sem ein-
leikari í Town Hall í New York
í síðasta mánuði við góðan orð-
stír.
Nýr reiðhjóíamarkaður
Norska útgerðarfyrirtækið
Fred Olsen hefur nýlega pantað
dönsk reiðhjól til notkunar á
hinum stóru olíuflutningaskip-
um sínum.
Upphaf þessarar nýbreytni er
það, að Tryggvi Kristiansen
skipstjóri á Borgsten, sem er 96
þús. smál. að stærð, tók að
þreytast á því að ferðast fót-
gangandi stafna á milli á skipi
sínu, sem er 290 metra langt, og
fékk sér hjól til að ferðast á um
þilfarið. Gafst þetta með ágæt-
um, og fóru fleiri að dæmi hans
mjög fljótlega. Þótti þetta hafa
slíkan verka- og tímasparnað í
för með sér, að útgerðin er nú
farin að kaupa hjól undir mann-
skapinn, eins og fyrr segir.
SKRÝTLU R
Þessi saga gerðist í styrjaldar-
landi á stríðsárunum.
Ung og glæsileg leikkona
heimsótti hersjúkrahús. Hún
gekk á milli hinna særðu, brosti
til þeirra og mælti við þá nokkur
orð til huggunar og uppörvunar.
„Felldir þú einhverja óvini,“
spurði hún einn piltinn.
„Já,“ svaraði hermaðurinn.
„Hvora hendina notaðir þú
til þess?“ spurði hún.
„Þá hægri.“
„Sú hönd hefur gert heimin-
um mikinn greiða,“ sagði leik-
konan, tók hægri hönd dátans
og þrýsti á hana kossi. Síðan
gekk hún að næsta rúmi og
spurði þann, sem þar lá, sömu
spurninga. Kom í Ijós, að hann
hafði notað vinstri höndina til
að fella óvinina, og hlaut sú hönd
jafn innilegan koss og hönd
félaga hans.
Síðan gekk hún að þriðja
rúminu í stofunni og spurði hinn
særða, sem þar lá, hvort hann
hefð.i fellt nokkra óvini.
„Eg hef drepið meira en
hundrað óvini,“ svaraði hann.
„Hvilík hetja,“ svaraði leik-
konan og sendi honum langt að-
dáunaraugnaráð. „Og hvora
höndina notaðir þú aðallega?“
„Eg notaði ekki hendurnar
til þess, ungfrú,“ svaraði hann.
„Ég beit þá á barkann.“
*
Tvær piparmeyjar, sem voru
á göngu sér til hressingar og
skemmtunar, veittu því athygli,
að karlmaður veitti þeim eftir-
för, og gafst ekki upp þótt þær
reyndu að villa honum sýn og
ganga hann af sér.
Loks stóðst önnur þeirra ekki
mátið lengur, nam staðar, sneri
sér að honum og sagði: „Við
höfum tekið eftir því, að þér
eruð að veita okkur eftirför. Nú
verðið þér að gera annaðhvort,
að ná í annan karlmann eða
hætta að elta okkur.“
Og svo var það sjómaðurinn,
sem svaraði þegar hann var
spurður, hvernig hann hefði
eytt hýrunni sinni: „Sumu í
brennivín, sumu í kvenfólk, og
afganginum í alls konar bölvaða
vitleysu.“
sú rtogsættsú rtog sættsú rtogsættsú rt og sættsú rtog sættsú rtogsættsú rtog sættsú rtog sættsú rtogsættsú rtog sættsú rtog sættsú rtogsættsú rto
• •
Or þrónn í SovrÉrikjjiiiiiii
Háskólanemum fjölgar
í fréttatilkynningu, sem blað-
inu hefur nýlega borizt frá
sendiráði Sovétríkjanna hér á
landi, segir m. a., að tala stúd-
enta við háskóla og aðra æðri
skóla þar í landi sé nú 3,3 millj-
ónir. Er það 144 stúdentar á
hverja 10 þús. íbúa. Bandaríkin
ganga næst, með 119 og síðan
Japan með 67 stúdenta á hverja
10 þús. íbúa.
Á s.l. ári voru 741 háskóli
og aðrar hámenntastofnanir
starfandi í Sovétríkjunum, og
tóku sex nýir til starfa á því ári.
Hin hraða tækniþróun hefur
breytt mjög starfi og gerð skól-
anna. Hafa aldrei eins margir
lagt stund á rafeindafræði, út-
varpsrafeindafræði, rafreikni-
vélafræði og efnafræði sem nú.
Tala stúdenta, sem nema raf-
magnsverkfræð.i og raftækja-
fræði hefur fimmfaldast á und-
anförnum 10 árum, en tala
þeirra, sem nema útvarpsverk-
fræði og fjölmiðlunarfræði nær
fjórfaldast. Tala vélaverkfræð-
inga, hagfræðinga og byggingar-
verkfræðinga hefur nær 3,5 fald-
ast.
Ársmeðaltala þeirra, sem lok-
ið hafa prófi frá háskólum og
hliðstæðum stofnunum hefur
komizt yfir 330 þúsund s.l. fimm
ár. Af þeim hefur tæpur hehn-
ingur verið menntaður til starfa
í iðnaði og við mannvirkjagerð,
rúmur þriðjungur til starfa við
skóla og uppeldismál, um 10%
til heilbrigðisþjónustu, líkams-
ræktar og íþróttastarfsemi, önn-
ur 10% til landbúnaðarstarfa og
rúm 5% til starfa við flutninga
og samgöngukerfi. — Þr.iðjung-
ur þeirra, sem ljúka prófum frá
hámenntastofnunum, eru konur.
Allt nám við slíkar stofnanir er
nemendum kostnaðarlaust.
Þróun flugsins
Innanlandsflugleiðir í Sovét-
ríkjunum eru nú um 430 þús.
km að lengd. Um 1200 flug-
ferðir eru farnar daglega á 350
meginleiðum milli stórborga
landsins. í júlímánuði í sumar
komst tala farþega upp í allt að
200.000 þúsund á dag.
Hlutur þota í áætlunarflug-
inu hefur hækkað úr 17,4% árið
1958 upp í 72% árið 1963. Far-
miðaverð hefur lækkað á sama
tíma um 25—30%, og nú yfir-
leitl frá helmingi til tveir þriðju
þess, sem fargjöld nema í Banda-
ríkjunum fyrir hliðstæðar ílug-
ferðir.
Sovézkar flugvélar halda uppi
reglubundnu flugi til 35 landa,
og 20 erlend flugfélög halda uppi
slíku flugi til Sovétríkjanna.
Stórar þyrlur og flugvélar eru
notaðar til vöruflutninga í vax-
andi mæli. Þá eru flugvélar mik-
ið notaðar til áburðardreifingar,
fiskileitar og til sjúkraflutninga.
Sérstakar sjúkraflugstöðvar eru
í fjölmörgum borgum og
byggðamiðstöðvum. Á s.l. ári
gerðu læknar þessara stöðva urn
12 þús. uppskurði og tóku á móti
hálfri milljón sjúklinga.
Borgurn fjölgar
I ársbyrjun 1964 nam tala
borgarbúa í Sovétríkjunum tæp-
lega 119 milljónum, og hafði þá
tvöfaldast frá 1939. Það ár voru
aðeins tvær millj ónaborgir í
landinu. Nú eru þær átta. Þá
liafa 12 borgir frá hálfri til
heillar milljónar íbúa.
!
Orkuframleiðsla vex
Á fyrrihluta yfirstandandi árs
jókst orkuframleiðsla Sovétríkj-
anna um 11%. Talið er, að árs-
framleiðslan verði um 450 millj-
aðar kwst., eða um 2000 kwst.
á íbúa að meðaltali. Um miðbik
ársins 1964 nam afkastageta afl-
stöðva landsins um 95 millj. kw.
Bandaríkin eru eina land heims-
ins, sem framleiðir meiri raforku
en Sovétríkin, en bilið fer minnk-
andi.
Þrátt fyrir það, að Sovétríkin
eiga nokkrar af stærstu vatns-
Framh. á bls. 6.