Mjölnir - 13.11.1964, Síða 8
Bókasafnið opnað í nýjum
húsakynnum
Á morgun kl. 2 verður sfjórn Bókasafns Siglufjaroar
formlega afhent' hið nýja húsnæði ó neðsfu hæð
Róðhúsbyggingarinnar, en opnað almenningi til
sýnis og afola á sunnudag kl. 1 e. h.
Fréttamaður blaðsins smeygði
sér inn bakdyramegin í safninu
fyrir nokkrum dögum, og hafði
snöggvast tal af Gísla Sigurðs-
syni bókaverði. Sagði Gísli, að
safnið yrði opnað fyrir almenn-
ing á sunnudaginn kl. 1 e. h. og
yrði op,ið til kl. 7 þann dag, en
annars verður ekki opið á
sunnudögum yfirleitt.
Búið var að raða safninu upp
í nýja skápa, sem Kristján Sig-
tryggsson hefur smíðað, og var
Kristján og Sigtryggur sonur
hans að ganga frá innréttingum
þegar fréttamanninn bar að. Er
það allt úr eik og hin vandað-
asta smíði að sjá, en húsgögn úr
tekki, og munu þau vera ættuð
frá Valbjörk á Akureyri.
Safnið hefur til umráða alla
neðstu hæð hússins, sem er á
4. hundrað fermetrar að flatar-
máli, og ætti þetta húsnæði að
nægja safninu um alllangt ára-
bil. Er þetta hið fegursta og við-
kunnanlegasta húsnæði. Skal
ekki farið út í það hér að lýsa
AÐAL FU N D U R
Sósíalistafélags Siglufjarðar var
haldinn s.l. þriðjudagskvöld.
I stjórn voru kosnir: Þóroddur
Guðmundsson, form.; Eiríkur J.
B. Eiríksson, varaform.; Hlöðver
Sigurðsson, gjaldkeri; Óskar
Garibaldason, ritari; meðstj.
Gunnar Jóhannsson, Kristján
Sigtryggson og Hannes Bald-
vinsson.
Þá voru kjörnir aðal- og vara-
fulltrúar á flokksþing Sósíalista-
flokksins.
Hejnt hcfiir
AÐ meðal jólabóka Siglufjarðar-
prentsmiðju verði heildar-
útgófa af blaðaviðtölum Sig-
urjóns bæjarstjóra.
Atí Alþýðuflokkurinn í Siglu-
firði ætli að lóta hljóðein-
angra Borgarkaffi fyrir
næsta fulltrúaróðsfund.
AÐ vafasamt sé, að lögreglan í
Siglufirði mundi verða jafn-
fús og sú hafnfirzka til að
fjarlægja kauprukkara af
bæjarskrifstofunni.
því, en bæjarbúar í þess stað
hvattir til að skoða það, því sjón
er sögu ríkari.
Útlónsreglur
Safnið verður opið í vetur
alla virka daga sem hér segir:
í fréttaauka ríkisútvarpsins
þriðjudaginn 3. nóv. s.l. var við-
tal við Aðalstein Sigurðsson,
fiskifræðing um fiskirannsóknir
sumarsins. Af frásögn Aðalsteins
mátti ráða það, að öllum fiski-
rannsóknum Islendinga er svo
naumt skammtað og ilia að þeim
búið, að árangur þess, sem gert
er verður margfalt minni og
niðurstöður rannsóknanna ó-
áreiðanlegri vegna hins slæma
aðbúnaðar. M. a. sagði Aðal-
steinn að fiskifræðingar fengju
aldrei sama skipið í rannsókn-
arferðir mn lengra tímahil, þau
væru misjafnlega búin tækjum
FSugferðir til Sauðór-
króks og Akureyrar
Vetraráætlun innanlandsflugs
Flugfélags íslands gekk í gildi
um mánaðamótin sept. — okt.
Samkvæmt lienni verða í vetur
ellefu ferðir í viku til Akureyr-
ar, þar af morgunferðir alla
daga og síðdegisferðir á þriðju-
dögum, miðvikudögum, föstudög
um og Iaugardögum.
Til Sauðárkróks verður flogið
þr.iðjudaga og laugardaga.
LESÐRÉTTING
Leiðinleg prentvilla er í
nokkrum hluta af upplagi blaðs-
ins í dag í minningargrein um
Agúst Sæby. Verða nokkrar lín-
ur í greininni lítt skiljanlegar en
eiga að vera þannig:
Ágúst stundað.i lengstaf sjó-
mennsku og vann auk þess al-
genga verkamannavinnu, lengst
af í Losunar- og lestunarfélagi
Siglufjarðar. Hann var mjög
góður verkmaður og vann fram
til hins síðasta. Það var ekki að
hans skapi að liggja nokkurn
tíma á liði sínu, etc.
Eru lesendur beðnir að lesa
prentskekkju þessa í málið og
virða til betri vegar.
Fyrir börn kl. 2—4 e. h., útlán
og lesstofa.
Fyr.ir fullorðna kl. 4—7, les-
stofa og útlán. Ennfremur verð-
ur lesstofa fyrir fullorðna opin
kl. 8—10 á kvöldin á þriðjudög-
um og föstudögum.
Notendur fá keypt útlánskort
hjá bókaverði. 10 bóka kort kost-
ar 25 kr., 25 bóka kort 50 kr.,
og kort fyrir allt starfstímabilið
150 kr.
Notendur geta fengið 3 bækur
í einu, og mega hafa þær alit að
14 daga.
Bækur eldri en eins árs fást
ekki lánaðar út samdægurs og
þeim er skilað.
og misjöfnum tækjum. Stundum
væru skip biluð meginhluta
leigutímans, stundum svo lítil,
að rannsóknatæki og mannskap-
ur rúmuðust ekki um borð
(svefnpláss manna varð að taka
fyrir tækin og mennirnir því að
fara í land til að sofa) og margt
fleira í þeim dúr.
Þetta var hörmulegt að heyra.
íslendingar eru meðal mestu
fiskveið.iþjóða heimsins, þeir
eiga því allra þjóða mest undir
því komið, að vísindaleg starf-
semi í þágu fiskveiða og sjávar-
útvegs geti starfað og borið ár-
angur. Islendingar hafa nokkuð
margir lagt fyrir sig þessar vís-
indagreinar í því trausti, að
þeim yrði sköpuð starfsskilyrði,
sem væru sambærileg við það,
sem hjá öðrum fiskveiðiþjóðum
tíðkast, og í samræmi við fram-
farir í tækni og þekkingu í þess-
ari vísindagrein. Svo kemur
fiskifræðingur að hljóðnema út-
varpsins og segir þessa hörm-
ungasögu.
Þegar menn hugleiða þetta
dettur þeim í hug hvort ekki
hefði mátt breyta í fullkomin
rannsóknarskip þeim stóru tog-
urum, sem svo gott sem hafa
verið gefnir út úr iandinu á síð-
ustu mánuðum. Eða hvort rann-
sóknarskip væri ekki þarfara í
íslenzka skipaflotann en mörg
ný flutningaskip, sem virðist þó
vafasamt að sé þörf fyrir.
En svona er stjórnin á mál-
efnum íslendinga í dag. Það er
slembilukkan, sem ræður, til-
viljunin ein hvernig ráðstafað
er þjóðarauðnum og hverjir
gera það. Það vantar allt vitrænt
og hagrænt samræmi í fram-
kvæmdir og fjárfestingu, og síð-
an er verkafólkinu kennt um ef
eitthvað gengur illa, þá er það
háa kaupið þess, sem er að ríða
öllu á slig, það lifir sem sagt um
efni fram á hverjum degi.
Hörmulegt var ceð hcjm Ni
Mjölnir
ÚTG. ALÞÝDUBANDALAGIÐ I NORDURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA
Abyrgðarmaður: Hannes Baldvinsson. Afgreiðsla: Suðurgötu 10, Siglufirði,
simi 194. Argjald 75 kr. — Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Akureyri
SIGLUFJARÐARSKARÐ er enn
fært bílum og er það óvenjugott á
þessum órstíma. Reyndar er varla
nema fyrir hörðustu jeppa að kom-
ast yfir, og alls ekki nema jeppa-
vegur um Fljótin. Vegurinn um
Fljótin hefur gersamlega brotnað
niður undan malarflutningabílunum
í þessari vætutíð.
SUNNANÁTT og votriðri hafa
verið róðandi veðurlag undanfarið.
Stöku sinnum hefur þó rignt eða
snjóað í norðaustanótt, en aldrei af
neinni alvöru. Ar og lækir eru enn
vatnsmikil sem ó vordegi.
SKEIÐSFOSSVIRKJUNIN hrósar
happi yfir veðróttunni. Lónið þar
er sneisafullt og er allt útlit fyrir að
ekki þurfi mikið að keyra dísilvélar
í vetur, ef svo stefnir sem horfir
með veðróttuna.
TOGARINN HAFLIÐI s'eldi afla
sinn í Þýzkalandi 27. okt. s.l., milli
70 og 80 tonn fyrir rúm 50 þúsund
mörk. Aflatregða er nú með ein-
dæmum hjó öllum togaraflotanum.
SIGLFIRÐINGUR kom af veiðum
fyrir Austurlandi um síðustu helgi.
Var hann með fóein mól og rifna
nót, sem gert var við hér heima.
Skipinu hefur gengið ógætlega ó
síldveiðunum fyrir ausfan og er bú-
ið að afla um 24 þúsund mól, en
eins og kunnugt er kom skipið að-
eins of seint til að nó í beztu afla-
hrotu súmarsins.
VÉLBÁTARNIR Æskan, Orri og
Hringur hafa að undanförnu aflað
3—4 tonn í róðri þó gefið hefur.
Ekki er það nóg til að útgerðin
„beri sig", en drjúga vinnu gefur
só afli í landi.
JÓHANN JÓHANNSSON, skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans, varð sex-
tugur hinn 7. nóvember s.l.
101 ÁRS varð elzti borgari bæj-
arins, Halldóra Bjarnadóttir í
Bakka, hinn 5. nóv. s.l.
TUNNUVERKSMIÐJAN. Verið
er að múrhúða innan smíðahúsið,
og langt er komið að steypa undir-
stöður undir væntanlegt stólgrinda-
hús, sem byggt verður norðan við
smíðahúsið, að mestu leyti ó gamla
grunninum.
ÚTSVÖRIN hafa innheimzt slæ-
lega í Siglufirði í sumar. Mun inn-
heimtan nú nema milli 25 og 30%
af ólögðum útsvörum yfirstandandi
órs. Er hér sennilega um met að
ræða, eitt af mörgum, sem meiri-
hluti íhalds og krata hefur sett í
bæjarmólum Siglufjarðar. Ekki eru
menn sammóla um, hverjum beri
mestur heiður af þessu meti; margir
eigna hann viðreisninni. Ymsir
hóttsettir íhaldsmenn eigna hann
kæruleysi og slappri forustu bæjar-
stjórans.
NYLEGA kom hingað til bæjarins
fjallabíll fró Reykjavík, eign Ás-
bjarnar Ólafssonar heildsala, sem
notar tæki þetta til að koma sýnis-
hornum af varningi fyrirtækisins til
viðskiptamanna ó afskekktusutu
stöðum. Hafði bíll þessi farið margt
torleiði óður en hann kom hingað,
m. a. um flesta erfiðustu fjallvegi
Vesturlands, ó flesta Vestfirði og
norður Strandir svo langt sem
byggð nær, ennfremur um Fljóta-
veg og Siglufjarðarskarð, ón þess að
nokkurt óhapp kæmi fyrir hann,
enda var farartækið rammbyggt og
vélarmikið. — Þegar til Siglufjarðar
kom, þurftu sölumenn m. a. að
koma við hjó Jónasi Ásgeirssyni
kaupmanni og neyddust því til að
aka niður Aðalgötuna. Þar öxul-
brotnaði bifreiðin.
RÚSSNESKT VATNSTÖKUSKIP
hefur komið hingað margsinnis að
undanförnu þeirra erinda að sækja
vatnsbirgðir handa rússneska rek-
netaflotanum. Ástæðan til þess, að
skipið kemur hingað fremur en til
Austfjarðahafna eða Akureyrar er
að fróðra manna sögn sú, að hér
eru vatnsslöngur digrari og flytja
meira vatn ó mínútu hverri en ó
hinum stöðunum, og er því tíma-
sparnaður fyrir skipið að sækja
vatnið hingað, þótt leiðin sé lengri.
■— Þótt vatn sé ódýr vökvi, kosti t. d.
ekki nema hálfan annan eyri lítrinn
hér á Siglufirði, þá safnast þegar
saman kemur, og 1000 tonna farm-
urinn kostar 15 þús. krónur. Er
þetta drjúgur tekjuauki fyrir bæinn
á þessum síðustu og verstu viðreisn-
artímum.
BÍLAEIGENDUR í Siglufirði urðu
sárir og reiðir, þegar þeir fengu allt
að 100% hækkun á tryggingagjöid-
um sínum fyrirvaralaust í vor.
hyggjast þeir halda á morgun stofn-
fund í bílaeigendafélagi, en einn
aðaltilgangurinn með stofnun þess
mun vera að reyna að ná hagstæð-
ari tryggingakjörum og athuga
möguleikana á bættri þjónustu við
bílaeigendur.