Mjölnir - 06.06.1967, Síða 5
Stnnl'ikoriflD um
gjtldcrrisvirflsjtiiflfl
í máleínalegri neyð sinni nú fyrir kosningar, þegar
öngþveiti í efnahags- og atvinnumálum blasir við, hvert
sem augum er litið, eftir 8 ára „viðreisnar“stjórn, þá
grípa stjórnarliðar aftur og aftur til ósannindanna um
stórbætta stöðu þjóðarinnar út á við og „hinn mikla
gjaldeyrisvarasjóð,“ sem nú á að hafa skapað þjóðinni
traust og tiltrú um víða veröld.
Þessi „þjóðsaga“ hefur álíka sannleiksgildi og sag-
an af manninum, sem sló sér allstórt lán í banka ein-
um og lagði það síðan inn í annan banka til þess að
geta státað af góðum efnum og skapað sér traust.
„Gjaldeyrisvarasjóður“ Seðlabankans er nefnilega
orðin til með alveg hliðstæðum hætti, eins og eftir-
farandi yfirlit um gjaldeyrisstöðuna ber ljósastan vott-
inn um, en þetta yfirlit gaf Gylfi bankamálaráðherra
á Alþingi nú í vor:
í árslok 1959 námu skuldir þjóðarinnar í erlendum
gjaldeyri samtals 2.685 milljónum króna, en í árslok
1966 námu skuldirnar 4.466 milljónum, þ. e. a. s.
þær höfðu vaxið um 1781 milljón króna.
„Gjaldeyrisvarasjóðurinn“ var á síðustu áramótum
1912 milljónir, þannig að staðan út á við hafði batn-
að á 8 árum um mismuninn á 1912 millj. kr. og skulda-
aukningunni 1781 millj. kr., eða um 131 milljón.
„Batinn“ í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar á mestu
veltiárum, sem hún hefur upplifað, hefur því ekki orð-
ið 1912 milljónir, eins og stjórnarliðar skrökva vísvit-
andi, heldur 131 milljón kr., eða að meðaltali heilar
16 millj. kr. á ári af margra milljarða gjaldeyrisöflun.
Væri hins vegar miðað við árið 1958, en það ár skil-
aði bættri gjaldeyrisstöðu, kemur dæmið þannig út,
að staðan hefur versnað fremur en hitt, þrátt fyrir gíf-
urlega aukna gjaldeyrisöflun. Mun raunveruleg gjald-
eyrisstaða þannig allt að 100 milljónum króna lakari
en við upphaf kratastjórnarinnar 1959.
Svona er þá allur sannleikurinn um þefta
„hið græna tré viðreisnarinnar." Þar er allt á
sömu bókina lært, falsanir og skrum.
MEÐ KVEÐJU
FRÁ BJARNA
Skýringin er nærtæk. Eyjólf-
ur Konráð er innsti koppur í
búri hjá Reykjavíkuríhaldinu, í
klíku Bjarna Benediktssonar,
þeirri klíku íhaldsins, sem er á
kafi í hérnámsbraski, olíumálum,
aluminiummálum, makki við
efnahagssamsteypur erlendra
ríkja og öðru slíku. Þessi klíka
hefur enga trú á okkar gömlu at-
vinnuvegum og sízt af öllu skiln-
ing á þörfum landsbyggSarinnar.
Þótt gamla kreddukenningin um
gróSalöngunina sem aflgjafa
framvindu, sem nú hefur veriS
reynd í 8 ár, eftir aS hafa legiS
aS mestu rykfallin á hillunni í
30—40 ár, sé aS kollsteypa öllu,
skal samt halda áfram. Þess
vegna treSur þesi klíka nú erind-
rekum sínum í framboS hvar
sem því verSur viS komiS og
bægir jafnframt frá framboSi
Eru þeir enn samu sinnis!
II vað segfir Ejjólfur Konráð?
Hef ir liíinn skipt iim skoðnn?
mönnum, sem líklegir eru til aS
draga taum byggSarlaganna úti
á landi gegn braskaraklíkunni í
Reykjavík.
ÞEIM BER AÐ REFSA
Ibúar þcssa kjördæmis, ekki sízt
Siglfirðingar, eiga i þcssum kosn-
ingum að refsa íhaldsbandalaginu
fyrir skilningslcysi þess, þvermóðsku
og athafnaleysi í þeim mólum, sem
skipta okkur mestu móli, þ. e. at-
vinnumólunum. Og olveg sérstak-
lega ber að refsa Reykjavíkurihald-
inu fyrir að troða erindreka sinum,
Eyjólfi Konróð, í framboð í baróttu-
sæti hér. Sú refsing yrði eftiminni-
lcgast ó lögð með þeirri aðgerð, sem
Reykjavíkuríhaldinu kæmi verst,
með því að gera Ragnar Arnalds,
frambjóðanda Alþýðubandalagsins,
kjördæmakosinn, og fella erindrek-
ann svo eftirminnilega, að ekki yrði
boðið upp ó hann aftur.
BENEDIKT SIGURÐSSON.
Hér foro á effir orðréffar tilvifnanir í ummæli nokk-
urra þekktra forustumanna íhaldsins um viðhorf
þeirra til ríkis- og bæjarreksturs. Tilvitnanirnar eru
8—9 ára gamlar, eða frá upphafi viðreisnarinnar.
Hverjar eru skoðanir Eyjólfs Konráðs Jónssonar
nú á þeim málum, sem tilvitnanirnar fjalla um? Ger-
ir hann sér Ijóst, að ef þau opinberu fyrirtæki, sem
hér um ræðir, yrðu seld einstaklingum, mundu hag-
kvæmnissjónarmið og gróðavonir eigendanna ein
ráða, hvort þau yrðu rekin eða ekki? Gerir hann sér
Ijóst, hvað slíkt gæti þýtt, t. d. fyrir Siglfirðinga?
GUNNAR GUDJONSSON:
„Rikis- og bæjarrekstur á verzl-
unar- og framleiðslutækjum er í
alla staði mjög óæskilegur undir
þeim kringumstæðum, að einstakl-
ingar og félög vilji og geti annazt
þann rekstur, sem um er að ræða
.. . . Virðist full óstæða til aS opin-
ber rekstur fyrirtækja verði lagður
niður og seldur í hendur einstakling
um og félögum."
EINAR SIGURÐSSON,
útgerðarmaður og hraðfrystihúsa-
eigandi:
„Má þar nefna sem dæmi, að
selja mætti að skaðlausu samtökum
útgerðarmanna Fiskiðjuver rikisins,
Síldarvcrksmiðjur ríkisins, Tunnu-
verksmiðju rikisins og fleiri hliðstæð
fyrirtæki, hætta að láta sveitarfélög
in hvila með ofurþunga af óarðbær-
um og illa reknum fyrirtækjum á
rikissjóði, og þannig mætti lengi
halda áfram."
EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON,
„Þótt í lands-
f undarályktun
Sjálfstæðisflokks-
ins segi ekki,
hvaða atvinnufyr
irtæki eigi að
vera í formi al-
mcnningshlutafé-
laga, þá virðist
liggja beint við,
að það séu ekki
Eyjólfur Konráð
eingöngu stórfyrirtæki famtíðarinn-
ar, þar sem þcgar í stað mætti
hrinda þessum hugsjónum i fram-
kvæmd. Þannig virðist koma mjög
til athugunar, að t. d. sementsvcrk-
smiðjan og Aburðarverksmiðjan,
Skipaútgerðin, Landssmiðjan og
fleiri rikisfyrirtæki yrðu falin al-
menningi til stjórnar á þann veg,
að hagkvæmissjónarmið ein réðu
stjórn þcirra, en engir pólitiskir
duttlungar .... Á sama hátt gæti
Reykjavíkurbær riðið á vaðið með
þvi að afhenda bæjarbúum t. d.
Bæjarútgerðina og Strætisvagnana
... Og þetta er ofureinfalt mál.
Ríki og bær gætu ósköp hæglcga
tryggt fjárhagsgrundvöll þessara fyr
irtækja, stofnað um þau almenn-
ingshlutafélög og afhent landsmönn
um hlutabréfin endurgjaldslaust eða
við mjög lágu verði, t. d. öllum, sem
í sveit búa, bréf i áburðarverksmiðj-
unni o. s. frv......Viðskipti með
þessi bréf mundu þegar í stað hefj-
ast. Sumir mundu ekki kæra sig um
nein bréf og seldu þau, en aðrir
mundu aðeins vilja eiga bréf ■ einu
fyrirtæki o s. frv. . .."
SPURNING: Hverjir væru llkleg-
astir til að kaupa þessi bréf upp í
stórum stíl, þangað til þeir hefðu
örugg meirihlutavöld í þessum stór-
fyrirtækjum?
SöflgskeiflintDn Knrlakirsiii Vísis
íi
Karlakórinn Vísir hélt söng-
skemmtun í Nýja bíó laugar-
daginn 27. maí og sunnudaginn
28. maí sl. Söngstjóri var Ger-
hard Scmidt. A söngskrá kórsins
að þessu sinni voru 15 lög eftir
innlenda og erlenda höfunda, og
nokkur þjóðlög. Skiptust þar á
gömul þjóðlög, ný og gömul
sönglög og óperu- og óperettu-
lög. Einsöngvarar voru þeir
Kristinn Georgsson, Sigurjón Sæ
mundsson og Þórður Kristins-
son. Einnig söng blandaður
kvartett með kórnum í lagi eftir
Springfield, en textann hafði Haf
liði Guðmundsson ort. í kvart-
ettinum voru sömu persónur og
í fyrra, þau Guðný Hilmarsdótt-
ir, Magðalena Jóhannesdóttir,
Guðmundur Þorláksson og Mar-
teinn Jóhannesson. Undirleik
önnuðust hljómsv. Gautar.
Á fyrri hluta efnisskrár voru
að mestu lög, sem kórinn hefur
áður sungið. En á meðal þeirra
•var rússneskt lag, sem Kristinn
Georgsson söng einsöng í, en
textann við lagið hafði Bjarki
Árnason ort. Kristinn Georgs-
son er nýr einsöngvari með kórn
um, hann hefur blæfallega bassa-
rödd, og vonandi fær hann oft-
U
ar að spreyta sig á skemmtilegum
viðfangsefnum.
Seinni hluti efnisskrár var nýr
hjá Vísi, að undanskildu einu
lagi. Voru þar óperettulög úr
„Kysstu mig Kata“ efti Cole Port
er og úr „Czardasfurstinnunni“
eftir E. Kalman, einsöngslög og
kvartettlagið, sem áður er á
minnst.
Yfirleitt má segja, að kórinn
hafi farið vel með þessi verkefni
svo og einsöngvarar og kvartett.
En samt er það nú svo, að þeg-
ar búið er að venja fólk á gott,
þá vill það betra. Kórinn var
með sérstætt og sérstaklega
trekkjandi prógramm í fyrra og
sumt af því hefur hljómað meira
og minna í eyrum síðustu mán-
uði í útvrapi og af plötum, og
þó samanburður sé hvorki nauð-
synlegur né sanngjarn alltaf, þá
er hann nú samt gerður, og því
finnst flestum, að af prógramm-
inu núna stirni ekki neitt svipað
og af því frá í fyrra. Kórinn varð
að endurtaka mörg lög og syngja
aukalög.
Söngstjórinn, Gerhard Scmidt
hefur raddsett meiri hluta lag-
anna á söngskránni og gert það
af þeirri smékkvísi og snilld, sem
honum er lagin, einnig hefur
hann útsett fyrir undirleikshljóð
færi.
Á þessari söngskemmtun Vís-
is voru kórmenn 44 talsins og
hafa líklega aldrei verið fleiri.
Hafi þeir allir og þau hin, sem
að þessari ágætu skemmtun unnu
kærar þakkip fyrir mjög ánægju
lega kvöldstund.
Drangnr hættir ferðnm
Á miðvikudaginn var, 31. maí
fór Drangur síðustu ferðina frá
Siglufirði til Akureyrar — von-
andi að sinni, segja Siglfirðing-
ar. Hann er sem sagt að hætta
sínum reglubundnu póst- og far-
þegaflutningum og allt er í ó-
vissu um, hvað tekur við, þegar
hausta tekur og samgöngur á
landi verða erfiðari.
Margir hugsa með hlýhug og
vinsemd til Drangs og áhafnar
hans, sem með dugnaði og harð-
fylgi hefur haldið uppi reglu-
bundnum ferðum á leiðinni Ak-
Framh. á bls. 6.
Mjölnir (5