Trú - 01.06.1907, Page 2
26
TRÚ
Verið ekki þrælar.
Hefur þú nokkurn tíma verið fangi? Hefur þú nokk-
urn tíma fundið til fjötra syndarinnar? Trúir þú á Jesú
Krist? Ef þú gjörir það, þá eru þessir fjötrar brostnir, því
syndir þínar eru þér fyrirgefnar fyrir Krists friðþægingu,
og þú ert frelsaður frá allri fordæmingu og vald syndar-
innar hefur þá heldur
ekki lengur yfirráð
yfir þér. Rú verður að
hafa lagt niður allan
Ijótan vana og synd-
samlegar skemtanir,
sem fyr höfðu oft og
tíðum vald yfir sjálf-
um þér, þar sem þú
alla tíð vilt vera Jesú
tilheyrandi, því það er præll ástriðunnar -
hann, sem hefir leyst af þér bönd syndarinnar. Eg
þekki niarga menn víða um heiminn, sem láta mikið af
því að þeir séu frjálsir, en eru þó altaf í ánauð syndanna.
Eg þekki rnann sem Djöfullinn byrlaði viðbjóðslegan drykk,
— mér virðist hann að minsta kosti mjög viðbjóðslegur, —
og segir: »Drektu eitt glas af þessu«, og hann drekkur.
»Drektu annað glas til«, segir Djöfullinn, og maðurinn
gjörir það. »Drektu hið þriðja«, segir Djöfullinn, og heili
mannsins sljófgast, svo að hann missir vald yfir sjálfuni
sér. »Drekk, drekk* skipar Djöfullinn og veslings fanginn
verður að renna því niður, því hann er í fjötrum.
Jeg þekki annan, sem móti sinni betri vitund gefur sig
viljugan í syndarinnar þjónustu, þó hann viti að það er
í alla staði ilt og syndsainlegt og hann einnig viti að það
gjöri honum sjálfum tjón. En þrátt fyrir alt þetta gefur
hann sig þó syndinni á vald og eyðileggur sjálfan sig
meir og meir. Djöfullinn dregur liann svo á eyrunum,að
hann sjálfur viðurkennir að hann má sín ekkert á móti