Trú - 01.06.1907, Síða 5
29
TjRÚ
£nginn annar en Jesús,
Sá maður, sem vill vera kristinn, verður að fylgja
dæmi Jesú Krists. Hvorki hjá Móses né spámönnunum
er sáluhjálp fyrir synduga menn. Rað er ekkert nafn und-
ir sólunni,í liverju sáluhjálp er að finna, nema í nafninu
Jesús. Ytir hans krossi, undir hverjum vér allir syndum
saurgaðir stöndum, yfir fjöllunum, þangað sem vér allir
syndarar störum og þvert yfir hinn víðáttumikla himin,
þangað sem Kristur varð uppnuminn, hefir Guð ritað þessi
orð: »Ekkert nafn nema nafnið Jesús.« Rað er ritað á
Betlehem, í Getsemanegarði og á gröf Jóseps. Rað Ijóm-
aði í stjörnunni, sem lysti vitringunum, það hljómar í
söng englanna, það var viðurkent við ummyndunina á
fjallinu. Og þannig er það enn í dag, að það er í engu
öðru nafni sáluhjálp að finna. Ress þarf heldur ekki við,
því þar er alla sáluhjálp að finna, því hans dýrðlega tilboð
er þetta: »Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga
eruð hlaðnir, eg vil gefa yður hvild.«
An Jesú fyrir leiðtoga förum vér villir vegar. Án
þess að viðurkenna Jesú, sem sannleikshöfund, höfnum vér
hinum háleitasta sannleika. Án þess að viðurkenna Jesú,
sem hið sanna líf, hljótum vér hinn eilífa dauða. Ró vér
þektum allan vísdónt, sem heimurinn á til, þó vér gætum
vegið og inælt sjálía jörðina, þó vér þekturn hverja stjörnu
himinsins, gætum nefnt þær með nafni, rakið brautir þeirra
og vissuin livaðan þær kæmu og hvert þæf færu, þámund-
um vér finna að slíkur vísdómur er einskis virði í saman-
burði við lians þekkingu, sem sagði: Jesús kom í lieim-
inn til þess að frelsa syndara.«
Regar um sáluhjálp vora er að ræða, þá verður Jesús
að vera þar alt í öllu, hann líður engan keppinaut, hann
bar einn vorar syndir upp á tréð, hann einn vill vera hugg-
un og stoð syndarans. Syndin hefir hlaðið vegg millum
vor og Guðs, og af sjálfs dáðum komumst vér ekki yfir
liann. Og yfir þessum vegg vorra 'synda logar eldur Guðs