Fylkir


Fylkir - 23.12.1963, Blaðsíða 9

Fylkir - 23.12.1963, Blaðsíða 9
JÓLA- OG ÁRAMÓTABLAÐ FYLKIS 1963 9 O RLANE Gamansögur. Séra Ólafur Stephensen (1863 ~’934) var prestur í Mýrdals- þingum í 4 ár 1886—1890. Séra Ólafur var sonur Magnúsar bónda í Viðey. Var hann vinsæll prestur, léttur í skapi og liafði gaman af græskulausu gamni. Um þessar mundir var hunda hreinsunarmaður í Mýrdal, Guði bóndi á Reyni. Þótti þetta talsverð virðingarstaða og ekki á allra færi að takast svo vandasamt starf á hendur. Venja var að lesa allar meiri- háttar tilkynningar til almenn- ings í kirkjum. Nú kom að því, að Guðni bóndi þurfti að til- kynna hundahreinsun í um- dæmi sínu. Tjáði liann séra Ól- ali Jietta. Prestur taldi sjálfsagt að Guðni kunngjörði sinn boð- skap til bænda þar í kirkjunni, en þótti fara bezt á því, að hann gerði Jiað úr kórdyrum. Nú var svo liáttað, að gólfið í kirkjunni .einkum innan- verðri, var fúið mjög. Þetta vissi prestur og liefur trúlega viljað fá nýtt gólf í kirkjuna. Hvetur liann kirkjugesti að Jroka sér innar í kirkjuna, svo þeir megi sem bezt nema orð Guðna bónda. Þeir gera svo. Hefur Guðni mál sitt á Jressa leið: Amtsráðið liefur úrskurð- að. . . Tekur þá mjög að braka í kirkjugólfinu. Guðna verður liverft við og segir stundarhátt: — Hvað er Jietta? Erum við <")11 að fara til helvítis? * ÞJOFSÆRING. Nokkru fyrir aldamót birtist svohljóðandi „þjófsæring“ í aug lýsingardálki í einu Reykjavík- urblaðanna: „Þú, sem stalst malpokanum í Fossvogi þann 15. Ji. m. frá piltunum í Stóru-Mörk, með hangikjöti í og miklu nesti öðru, og sokkum og dalli með smjöri, — sendu sem fyrst borg- un að Stóru-Mörk undir Eyja- fjöllum. Eg og fleiri vita upp á hár, hver Jni ert; þú ert ungur og hefur legið lengi í þjófnaði en aldrei kömizt upp um þig. Þú hefur víst verið með að stela smjörklyfi frá Sighvati í Eyvind- arholti um hábjarta sumarnótt í fyrra, og var allt fullt af tjöld- um þar í kring; og svo hefur Jrú verið með að stela verskrínunni með smjöri og kæfu frá Tómasi á Barkarstöðum fyrir Jireinur ár- um, og svo á mörgum undan- förnum árum hefur Jni verið með að stela heilum klyfjum af kaupstaðarvöru af ferðamönn- 11111 í Árbæ og allt í glóra við Mosfellssveitarmenn, en Jiar eru engir þjófar. Þið munið vera tveir eða þrír í félagi, og eruð allir svartir og svipillir og ef til vill tveggja handa járn. p.t. Reykjavík, 20. sept. 1896. RangA'ellingur“ SILFURBÚÐIN. SKÓLAVEGI 13 Atvinna. Blaðið Suðurland. Viljum róða pilt eða stúlku til afgreiðslustarfa. HAFNAR6ÚÐIN. Þeir, sem áhugc hafa á að gerast áskrifendur að blaðinu SUÐURLAND, hringi í síma 1344. Ú tgerðarmenn! ■Bifreiðaeigendur! Takið eftir. rafgeymasala. Rafgeymahleðsla. opið alla virka daga frá kl. 13 til 23. HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR. FAXASTIG 27 Simar 1281 og 2181. ÍÓskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum ) GLEÐILEGS NÝÁRS! | IÞökkum viðskiptin á liðnum árum. ) NÝJA KOMPANÍIÐ. • ) Óskum starfsmönnum okkar og viðskiptavinum ) / GLEÐILEGS NÝÁRS! ) Þökkum viðskiptin á liðnum árum. ) / Rakarastofa Einars Þorsteinssonar. )

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.