Fylkir


Fylkir - 23.12.1963, Blaðsíða 10

Fylkir - 23.12.1963, Blaðsíða 10
10 JÓLÁ- OG ÁRAMÓTABLAÐ FYLKIS 1963 AÐEINS BRÉFMIÐI SVERRE SEIMS SEGIR FRÁ Ótrúlega hlýtur það að láta í eyrum, en hér er um að ræða lítinn blaðsnepil frá Jesú. Síðan ég' eignaðist hann skil ég hann aldrei við mig. Ég geymi hann í bók sem ég nota mikið heima og hef með mér á öllum mínum ferðalogum. Furðulegt að Jesú skuli nota blaðsnepil af svona lélegri teg- und! Sýnilegt er að hann er rifinn af stærra blaði, því aðeins tveir kantar hans eru skornir beinir. Skriftin er einnig í lak- asta lagi til að vera á blaði frá Jesú. Undarlegt að hann skuli ekki nota gullbryddan viðhafnar pappír með skrautletri! Það gæti hann vafalaust notað, þó að hann gerði það ekki í þetta skipti. En örugglega var bréfið frá Jesú. Það er bjargföst sann- færing fyrsta móttakanda og sönruleiðis þess, sem nú varð- veitir það sem dýrgrip. Hér er svo sagan: Einföld, hversdags- leg og á vafalaust margar hlið- stæður. Mamrna var ákaflega niður- brotin. Allt var svo dimmt og erfitt — í !iuga hennar og um- hverfis liana. Hún átti mörg börn. Eitt þeirra var Jóhannes. Hann tók eftir hugarangri móð- ur sinnar. Oft renndi liann aug- um til liennar. Það var eins og hjarta hans sviði við að horfa á mömmu. ITugsanir litla drengs ins veit víst enginn, nema Guð. En árangur heilabrota lians átti eftir að verða augljós. Altur kom einn af þessum ógnþrungnu dögum. Sorgir og áhyggjur huldu himininn. Hjarta mömmu titraði og þung tár hrundu niður kinnar liennar meðan lnin reyndi að Ijúka heimilsstörfunum, sem mest voru aðkallandi. Jóhannes livarf um stund. Hún veitti því varla athygli. Hún hafði nóg, já meira en nóg með sjálfa sig og sínar þungu byrðar. Þá kom liann aftur inn. „Mamma, ég er með nokkuð handa þér, en aðeins þér. Það er leyndarmál, sem þú mátt engum segja.” Mamma lofaði því, og spurði hvað þetta væri. ,,Það er aðeins bréfmiði frá Jesú,” svaraði Jó- liannes. Mamma tók miðann. Velktur var hann. Skriftin var ekki sem fegurst, en hún þekkti hana. Og hvað stóð svo á miðanum? Með barnaskrift, sem bar öll einkenni byrjandans var skrif- að þetta: „þekktu vers, sem hef- ur borið svo mörgu sundur- krömdu hjarta himneska hugg- un”. Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg. Það allt, er áttu í vonum, og allt er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað stormaher. Hann fótstig getur fundið, sem fær sé handa þér. Mannna las, og meðan hún las, fór þessi gamli sálmur að óma í hjarta liennar. Frelsarinn sjálfur kom á ný inn í heimili hennar og lijarta. Þá lærði hún á ný „ hina heilögu kastíþrótt” þessa undur- samlegu íþrótt, sem svo nauð- synlegt er að kunna, þegar á- hyggjustormarnir dynja yfir: „Varpið allri áhyggju yðar upp á Guð, því að hann ber um- hyggju fyrir yður” Þannig hafði Jóhannes litli orðið bréf- beri fyrir Guð. Sjálfur gat hann ekki skilið hvernig versið á þess- um lélega bréfmiða gat komið slíkri gjörbreytingu til leiðar. Nokkrum tíma síðar barst bréfið til mín, og mér var sagt frá atburðum þeim, sem hér eru greindir. Bréfmiðinn var þar einnig. Ég fékk að lesa barnsskriftina. lesa versið, senr ég hafði í bernsku lært, en sem ytri og innri sorgir voru að af- má úr vitund minni. Ég var einnig að gleyma „heilögu kast- íþróttinni”. En nú rifjaðist hún upp að nýju að tilhlutan bréf- bera Jesú, sem bar nafnið Jó- hannes. Það var náð frá Guði. En nafnið Jóhannes merkir: Guð er náðugur. En á blaðinu — þessu blessaða blaði frá Jesú, stóð ofurlítið meira. Hvort drengurinn hafði eitt- hvað sérstakt í huga með því, sem hann skrifaði á bakhlið blaðsins, er mér ókunnugt. Það skiptir heldur ekki máli. Áreið- anlega hafði Jesú sinn tilgang með því, bæði fyrir móðurina og fyrir mig, það er ég sann- færður um. Þar stóð þetta: Ég vil Jesú þökk þér bera jólabarn í tötra klætt til þess síðan þjónn að vera þjáðri sekri Adamsætt. Annað stóð ekki á blaðinu. En þetta var einmitt nákvæmlega nóg. Sorgir, áhyggjur og sjálfs- ásakanir geta verið margar og blýþungar. En EIN sorg, EIN áhyggja er öllum öðrum þyngri. Það er sárasta andvarp hjarta glataðs, syndugs manns: „Mín synd, mín synd.” „Ég aumur maður”. Farðu frá mér því ég er syndugur maður” Vei mér, það er úti um mig.” í þessu svartnætti, gegnunr alla kveinstafi, hljómar frá himninum af vörum allra þeirra sem bera boð Guðs: „Komið til mín allir þér, sem erfiðið og eruð þunga hlaðnir.” Eða eins og á bréfmiðanum stóð, sem barnshöndin rétti: „Á hendur fel þú honum, sem himna stýr- ir borg. Sjáið barnið í jötunni. Sjáið hendurnar sem útbreidd ar eru á tré bölvunarinnar og sem negldu skuldabréfið á krossinn. í þessum höndum er bréf til okkar allra: Fagnaðar- erindið. Og reynslan varð sú að þegar öllum sorgum og áhyggj- um var varpað á hann — Guðs lambið — þá fæddist lofgjörðin í hjartanu. Vera má að drengurinn litli hafi þrátt fyrir allt, haft eitt- hvað ákveðið í huga með þakk- arorðunum aftan á miðanum. Örugglega hafði Guð það. Þannig var þessi litla einfalda saga um bréfmiðann, sem með orðum sínum vakti lofgjörð- ina á ný. Það er sannleikur að Guð notar hvað sem hann vill og hvenær sem hann vill, til þess að miðla blessun sinni til mannanna. S. B. þýddi. EIMSKIP óskor öilum landsmönnum gæfuríks komandi árs EIMSKI PAFÉLAG ISLANDS Pósthússtræti 2. — Sími 19460 (15 línur). Sendi öllum mínar beztu óskir um gleðilegt nýár með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. JÓN HJALTASON hæstaréttarlögmaður.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.