Fylkir - 04.06.1971, Síða 2
2
FYLKIR
0000000000000000<0000000<0<000000
Málgagn
Sjálfstæðisílokksins
Útgefandi:
Sjálfstaeðisfélag
Vestmannaeyja
Frentsmiðjan Eyrún h.f.
Ritneínd:
Stsingrímur Arna: (áb.)
Ármann Eyjólfsson
Ile.'gi Bernódus
Jóhann Friðfinnsson
Ingibjörg Johnsen
Hörður Bjai’nason
Guðmund. r Karlsson
AuglýsinJar:
Steingrímur Arnar
Sími 1620
oooooooooooooooooooooooooooooo
EFLING SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS TIL
ÁFRAMHALDANDI FORUSTU, ER RÉTTA
SVARIÐ VIÐ SUNDRUNG VINSTRI
FLOKKANNA
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
nú um nær tólf ára skeið
haft forustu í málefnum þjóð
arinnar ,eða allt síðan Ólaf-
ur Thors myndaði ríkisstjórn
með stuðningi Alþýðuflokks-
ins að afloknum haustkosn-
ingum 1959.
Á þessum árum hafa orðið
meiri framfarir og meiri upp
bygging hér á landi en á
nokkru tímabili öðru í sögu
þjóðarinnar. Enda fékk þessi
ríkisstjórn fljótlega á sig
heitið Viðreisnarstjórnin hjá
öllum almenningi. Meira að
segja stjórnarandstæðingum
er orðið tamt í munni að
nefna stjórnina þessu nafni.
Stjórnin hefur eins og ger-
ist og gengur átt bæði við
góð og erfið ár að búa. En
fyrir örugga forustu Sjálf-
stæðisflokksins, hefur hún
rcynzt vandanum vaxin í
hvívetna. Hún hefur ráðið af
festu fram úr þeim vanda-
málum, sem að hafa steðjað
án þess að hika við að gera
ráðstafcnir ,sem í bili gótu-
orðið óvinsælar hjá einstök-
um stéttum, en voru óhjá-
kvæmilegar vegna þjóðfélags-
heildarinnar.
einr.ig í ákvörðunum Alþing-
is um stórvirkjanir og stór-
iðju og bætta aðstöðu smærri
ionaðar til útflutnings og
gj aldeyrisöf lunar.
Gegn öllum þessum fram-
förum hefur stjórnarandstað-
an, komúnistar og framsókn-
aimcnn, staðið eins og vegg-
ur og af svo ótrúlegri þröng
sýni og íhaldssemi, að furðu
gegnir.
Meðal annars af framan-
greindum ástæðum hefði mátt
ætla að tilraunir þeirra á s.
1. vctri til sameiriingar í einn
alisherjar afturhaldsflokk,
myndu bera einhvern árang-
ur. En svo varð þó ekki, eins
og kunnugt er, og ástæðuna
vita allir.
Pcrsónuleg valdagræðgi
ráoamannanna og tortryggni
þeirra í garð alls og allra er
öllu ráðandi í þessum flokk-
um. Þar er ekki að finna
neina fastmótaða sameigin-
lega stefnu, enda ekki við
því að búast ,þegar innbyrð-
is ástand forráðamannanna
er á þann veg, að hver situr
á svikráðum við annann, þótt
fagurlega sé talað á yfirborð
inu.
Þetta veit allur almenning
ur, enda hefur afkoma hvers
og eins og aðstaða öll sífellt
verið að batna í samræmi
við bættan þjóðarhag og
auknar þjóðartekjur.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alla tíð staðið heill og óskipt
ur að baki ríkisstjórninni og
forustumönnum flokksins, og
átt stærstan þáttinn í þeim
framförum, sem orðið hafa á
liðnum árum, ekki einasta í
sambandi við hina hefð-
bundnu atvinnuvegi, sjávarút |
veg og landbúnað, heldur j
Og nú ganga vinstri flokk-
arnir fram í fimm ósamstæð-
um fylkingum við þær kosn-
ingar, sem framundan eru.
Ilið rétta svar þjóðarinnar
við innbyrðis úlfúð og óein-
ingu vinstri flokkanna, er að
efia Sjálfstæðisflokkinn til á-
framhaldandi forustu um þjóð
málin, því að jafn sundurleit-
ur hópur og andstöðuflokk-
arnir eru, geta aldrei tekið
þau.mál í sínar hendur nema
til stórtjóns fyrir þjóðaheild-
ina.
í málgagni G-listans á
Suðurlandi ,Jötni, er dreift
var s. 1. þriðjudag, birtist
| , kynningarviðtr.l“ við Garð-
ar Sigurðsson, ssm allir
I settu að lesa, sem gaman hafa
| af spjjlli af léttara tagi, sem
birt cr án ábyrgðar.
Þar cr frambjóðandinn m.
a. að hæla sér af því, að
hsnn hai'i cftirlátið Sigvrgeiri
j forsatastól fcæjarstjórnar. ,,...
i
i vegna þcss að slíkar stöður,
| íreista mín engan veginn, og
ekki síður vegna þess að ég
vissi ,að honum eru slíkar
vegtyllur síður en svo móti
skapi. Síðr.st en ekki sízt var
mér það ofarlega í huga, að
úr forsetastóli var mér óhæg-
ara i m vik að skammast við
| íhrldið, sem ekki reyndist
! vanþörf á í okkar bæjar-
stjórn . . . .“
Eftir lestur þessa varð mér
hugsað til gömlu skrýtlunar:
Til hvers voru hinir hermenn
irnir ? ? ?, en svo spurði
drengurinn, er frændinn kom
hcim úr stríðin'.’, og fór að
segja grobbsögurnar af sér.
Eg hefi setið nokkra bæj»
arstjórnarfundi að undan-
förnu, og kannast ekki við
þcssi afrek frambjóðandans,
hinsvegar hugsa ég, að
bændafylgið upp á landi, og
víðar yrði rýrt, ef þangað
hefði heyrzt málflutningur
hans á síðasta bæjarstjórnar-
fundi, þegar G.S. var að vé-
fengjr. rétt jarðarábúenda í
Eyjum og fussa yfir því, að
þctta fólk væri að kvarta um
rnisrétti og yfirgang valdhafa
fcæjarfélagsins.
Þá kom einnig til afgreiðslu
á fundi þessum áskorun um
að láta fara fram atkvæða-
grciðslu um lokun Áfengisút-
sölunnar, cn fjölmennur hóp-
ur kvenna var búinn að
safna undirskriftum meira en
1200 kjóscnda í bænvm, eins
og kunnugt er, til að knýja
fram mál þetta, ssm bæjar-
stjórn hafði áður synjað.
Fann G.S. þessum undirskrift
arlistum flest til foráttu, þeir
væru mcira og minna gnllaðir
og undirskriftir ólöglegar
Þrátt fyrir allar mótmælatil-
raunir frambjóðandans, tók
enginn mark á honum, og var
j s'.ðan samþykkt með 7 at-
| kvæðum að láta atkvæða-
greiðsluna fara fram jafn-
hliða aiþingiskosningunum
Eg tel nauösynlegt, að þetta
komi fram cinmitt nú, er þessi
mál cru cfst á baugi. Ekki fæ
cg mcð nokkru móti séð
að Garðar hafi með afstöðu
sinni í málum þcssum vcrið
að ná sér ncitt sérstaklega
| niðri á íhaldinu með hátta-
legi sínu, en sýnir, svo ekki
I verður um villzt, hvernig
| þessi frambjóðandi vill nota
völdin.
Jóliann Friðfinnsson.
Ulsvarsgjaidendur
Vestmannaeyjum
Hinn 1. júní s. I. var síðasti
gjalddagi fyrirframgreiðslu upp í
útsvar þessa árs og eiga allir út-
svarsgjaldendur nú að hafa greitt
60% af útsvari síðasta árs.
Lögtaksúrskurður fyrir ógreidd-
um fyrirframgreiðslum verður
kveðinn upp á næstunni.
Minnt er á, að því aðeins kemur
útsvar þessa árs til fulls frádrátt-
ar við álagningu næsta ár, að skil
séu gerð á fyriframgreiðslum.
Kom þetta til, þegar íull-
trúrr Sjálfst.flokksins víttu
þann ósmskklega máta, þeg-
ar stcfnuvottar eru sendir inn
á heimilin rétt um jólin s. 1.
til þess að tilkynna samn-
ingsuppsögn vegna jarðarrétt
indn ,sem í sumum tilfellum
cr búin að vara í nokkra ætt
iiði, auk þess sem fólk þetta
hefur verið svipt lendum sín-
um, án þess að vera svo mik
ið ssm virt viðtals. Fannst
Garðari ekkert sjálfsagðara
en ganga í þetta, eins og far-
ið er að gera. (Hvað myndi
slíkur frambjóðandi fá mörg
atkvæði í Laxárdalnum?
Spyrjum Stefán fréttamann).
Það mátti Sigurgeir eiga,
að hann (úr forsetastól) við-
urkenndi að framkvæmd
þessi hefði verið klaufaleg og
óþörf.
UTSVARSINNHEIMTAN
SÍMI 2014.
Arður lil hluthafa
Á aðalfundi H. F. Eimskipafé-
lags íslands 21. maí 1971 varsam-
þykkt að greiða 12%, tólf af
hundraði, - í arð til hluthafa fyr-
ir árið 197 0.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS.