Skátablaðið - 01.10.1953, Blaðsíða 1
AUÐUR GARÐARSDÓTTIR, sveitarjoringi:
Um síðustu áramót var ákveðið að ís-
lenzkir kvenskátar tækju þátt í móti norska
Kvenskátasambandsins, sem halda ætti við
Kröderen, skammt frá Norefjell í Noregi,
fyrri hluta júlí mánaðar, 1953.
Þegar umsóknarfresturinn var útrunninn,
höfðu 20 stúlkur sótt um að sækja þetta
mót. Voru þær frá ísafriði, Akranesi, Ytri-
Njarðvík og Reykjavík.
Hófst nú strax undirbúningur fyrir mót
þetta, og var byrjað að æfa þjóðdansa,
söngva o. m. fl. Þegar öllum undirbúningi
var lokið, og aðeins ein vika til stefnu, urð-
um við að hætta við þessa ferð, vegna mænu-
veikifaraldurs, er þá gekk í Noregi.
Auðvitað urðu þetta mikil vonbrigði
fyrir okkur, en urðum að taka því rólega.
Ekki þýddi að gefast alveg upp, og fórum
við að athuga hvort við gætum ekki brugðið
okkur til Skotlands og Englands í staðinn,
og heimsótt kvenskáta þar og tekið þátt 1
sumarstarfi þeirra.
Við snerum okkur því til skrifstofu B. í.
S. og báðum framkvæmdastjórann Tryggva
Kristjánsson að reyna að koma þessu áformi
okkar í kring. Hringdi hann til Skotlands
og talaði við Miss Janet Meikle, og bað
hana að athuga alla möguleika á að við
gætum komið til Skotlands. (Miss Meikle
kom til íslands árið 1950, á vegum Alþjóða-
bandalags kvenskáta). Svar fékk hann dag-
inn eftir frá Meikle, og hafði það ágætar
fréttir að færa okkur. Sagði hún að ef við
kæmum, mundi verða tekið á móti okkur,
og séð um að við kæmumst sem lengst og
sæjum sem mest á hinn ódýrasta og hag-
kvæmasta hátt.
Urðu þetta hinar mestu gleði fréttir. Var
nú hafist handa, flugferðr og skipaferðir til
Noregs afþakkaðar, og farmiðar pantaðir
með M/S Heklu frá Reykjavlk 29. júní 1953
og heim aftur frá Skotlandi þ. 25. júlí 1953.
Þátttakendur voru nú heldur færri en
upphaflega var ákveðið, en við vorum 11,
13
SKÁTABLAÐIÐ