Skátablaðið - 01.10.1953, Blaðsíða 10
alheimsskátahöfðingi, en enginn nema Baden
Powell hefur haft þau metorð innan skáta-
hreyfingarinnar. Wilson varð 65 ára 20. maí s. 1.
B. P. frímerki.
í tilefni af 14. alþjóða foringjaráðstefnunni í
Liechtenstein, voru gefin út þar frímerki með
mynd af Baden-Powell. Frímerki þessi eru gefin
út í fjórum litum, og hefur hver litur ákveðið
verðmæti: 10 Rp. græn, 20 Rp. brún, 25 Rp.
rauð og 40 Rp. blá. Frímerki þessi má panta
hjá Liechtensteinische Briefmarken- Verschleis-
stelle, Vaduz, Principality of Liechtenstein.
Franskir sliátar i heimsókn.
Þ. 28. júlí s. 1. komu hingað 14 franskir rekk-
ar frá París, og dvöldu hér um 2ja vikna skeið.
Ferðuðust þeir talsvert um Suðurland og tóku
þátt í skátamótinu í Borgarvík, við Ulfljótsvatn.
M. a. fóru þeir frá Þingvöllum gangandi í Botns-
dal og þaðan upp á Akranes og voru gestir Skáta-
félags Akraness í einn sólarhring. Buðu Akur-
nesingar þeim í ferðalag um Borgarfjarðarhéruð,
og sýndu frönsku skátunum Reykholt, Andakíls-
virkjunina o. fl. Einnig skoðuðu þeir Reykjar-
lund, Hitaveituna og hverina í Krísuvík í boði
Skátafélags Reykjavíkur, og komu við á Jaðri
í þeirri ferð og drukku þar kaffi. Þá fóru þeir
einnig til Gullfoss og Geysi og gengu á Heklu.
í Reykjavík dvöldu frönsku rekkarnir í Skáta-
heimilinu. Þeim voru einnig sýndar ísl. kvik-
myndir. Ferðaskrifstofan sýndi þeim ágæta
landkynningamynd og S. F. R. sýndi þeim
Heklu-kvikmynd, eftir að þeir höfðu lokið við
að ganga á fjallið. Að lokum var þeim haldði
skilnaðar hóf í Reykjavík, kvöldið áður en þeir
fóru héðan.
Foringi Frakkanna var Andre Virot. Þeir voru
mjög ánægðir og þakklátir fyrir það, sem fyrir
þá var gert.
Skátamót við Prastö.
Hans Jörgenson og frú hans Sigrún Ingi-
mundardóttir, sóttu skátamót dönsku K. F. U.
M. skátanna við Præstö á Suður-Sjálandi dagana
17.—25. júlí s. 1. Þau voru einu þátt. á móti þessu
frá Islandi. Væntanlega mun Skátablaðið skýra
nánar frá móti þessu síðar.
Mót Oslóar skáta.
Mót Oslóar skáta, sem haldið var dagana 6.—
14. ágúst s. 1. sótti Baldur Olafsson, skáti frá
Akranesi. Hans Jörgenson, félagsforingi á Akra-
nesi, heimsótti einnig þetta mót, og dvaldi þar
nokkra daga, en var ekki allt mótið. Hans var
á ferð í Noregi um þetta leyti, ásamt konu sinni.
Mótið var haldið um 40 km norður af Oslo,
skammt frá Eiðsvelli. Nánar verður móts þessa
getið í Skátablaðinu, síðar.
Kaupid
úriÉi
hjá
FRANCH
Laugarvegi 39 - Reykjavík - Sími 3462.
★ Sendi gegn póstkröfu ★
*■------------------------
r v
SKÁTAR!
Ef þér þurfið d
prenfvinnu
að halda,
þá talið við
okkur.
Prcntsmiðjan OÐÐI h.í.
Grettisgötu 16 — Sími 2602.
V_________________________J
22
SKATABLAÐIÐ