Skátablaðið - 01.10.1953, Blaðsíða 4
SIGMUNDUR R. FINNSSON:
Horft unt öxl
(Lauslegt yjirlit yfir Pan-Pacific-Jamboree
í Ástralíu 1952-1953.)
Sunnudagurinn 30. des. 1952 hefur í
flestra augum verið líkur öðrurn fyrirrenn-
urum sínum, sem hver af öðrum hafa reitzt
af dagatalinu og hafnað í bréfakörfunni.
Hvað mig snerti, var hann merkur varði á
langri leið, sem kostað hafði fé, tíma og
fyrirhöfn að yfirstíga.
Ég var staddur á Jamboree-svæðinu í
Greystone, ca. 30 mílur frá borginni Sydney
í Ástralíu. Að baki voru þúsundir mílna,
framundan, tvær vikur meðal erlendra
skátabræðra.
TJALDBORGIN:
Fyrir tæpu ári, hafði næsta fullkomin
kyrrð ríkt yfir þessum merka landnámsstað
Ástralíumanna, kyrrð, sem engin hafði
dirfst að rjúfa, nema tillitslaus vindur í
leik sínum við laufskrúð gúmítrjánna. í
dag var sagan önnur, söngvar, hlátrar, gleði-
köll og samómur óteljandi vinnutækja berg-
Skátaflokliur frá Nýja-Sjálandi.
málaði í hlíðunum og grundirnar titruðu
af fótataki lífsglaðrar æsku.
Hér á vettvangi gagnkvæms skilnings og
bróðurkærleika var ég sjónarvottur að fæð-
ingarhríðum nýrrar borgar, sem taldi inn-
an veggja sinna 11 þúsund íbúa frá 14 mis-
munandi þjóðum.
Hér bar að líta snoturt sléttlendi í skjóli
ávalra hlíða, tjald við tjald skipulega nið-
urröðuðum við stræti og torg, skuggsæla
lundi og hávaxin tré. Þéttvaxinn undirgróð-
urinn, sem fyrir nokkrum mánuðum hafði
teygt sig upp eftir trjástofnunum hafði ver-
ið ruddur, stofnar felldir og svæðið hreins-
að. Síðan hafði menningin haldið innreið
sína, götur lagðar, verzlanir, byrgðaskemm-
ur, sjúkrahús, brunastöð, bankar og kirkj-
ur risu frá grunni. Hér var sími, pósthús
og vatnsveita. í stuttu máli, allt, sem ein-
kennir nútíma borgarlíf (að undanskyldu
fangahúsi).
Göturnar voru breiðar og reglulegar, og
eins og í hverri annarri borg báru þær sín
sérstöku heiti. Allir kannast við nöfn eins
og Rowallangata, Sommersvegur, og t. d.,
þá var íslandi ætlaður staður í tjaldbúð
nr. 1 við Baden Powellgötu. Var það fjöl-
skrúðugasta tjaldbúðin, því þar voru einnig
Hong Kong — Malta — Fiji — Ceylon og
Indo-Kína.
ÞEKKTI ÍSLENZKA FÁNANN.
Ég er ekki sérlega trúaður á dularfull
fyrirbrigði, fremur en aðrir íslendingar,
en þegar fyrsti skátaforinginn, sem ég hitti
16
SKÁTABLAÐIÐ