Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Side 2

Skátablaðið - 01.12.1999, Side 2
Ný námskeið Sveitarráðið Á næsta ári verður boðið upp á nýja tegund af námskeiði. Nám- skeiðið er ætlað sveitarráðum skátasveita. Markmið námskeiðs- ins er að kynna starf í sveitarráði á skemmtilegan og fróðlegan hátt. Þannig mun hvert sveitarráð vinna saman sem einn flokkur allt nám- skeiðið. Á námskeiðinu verður fjallað um starf í skátasveit með sérstakri áherslu á sveitarráðið. Skilyrði fyrir þátttöku á nám- skeiðinu er það að 5-7 meðlimir úr sveitarráðinu (foringjaflokkurirm) taki þátt, þar með talinn sveitar- foringi sem verður að vera 18 ára eða eldri. Námskeiðið verður haldið á Ulfljótsvatni 4.-6. febrúar. I staðinn verður fellt niður flokks- foringjanámskeið II. Haustið 2000 er gert ráð fyrir að skátafélögum standi til boða að fá sveitarráðs- námskeið fyrir sveitirnar sínar „heimsent". Fimm daga flokks- foringjanámskeið Næsta sumar verður haldið flokksforingjanámskeið 25.-29. ágúst á Ulfljótsvatni. Á nám- skeiðinu verður að hluta til gist í tjöldum. Mikil áhersla verður á úti- líf og frumbyggjastörf á nám- skeiðinu. Þannig ættu verðandi flokksforingjar að fá skátastarfið beint í æð fyrir veturinn. Sveitar- foringjum, deildarforingjum og fé- lagsstjórnum er bent á að fræðslu- ráð mun ekki ekki auglýsa sérstakt helgarnámskeið fyrir flokksfor- ingja þetta haust. Flokksforingjar ættu því að fjölmenna á þetta spennandi 5 daga flokksforingja- námskeið á Úlfljótsvatni í lok ágúst og vera vel viðbúnir vetrarstarfinu! Eftir sem áður aðstoðar fræðslu- stjóri skátafélög við skipulagningu flokksforingjanámskeiða og við val á leiðbeinendum. HG Nordjamb 2000 Undirbúningur að Nordjamb 2000 er langt á veg kominn og er nú mest vinna lögð í markaðssetningu erlendis. Þetta samnorræna verkefni mælist vel fyrir og hefur m.a. fengist góður stuðn- Mosverjar vígja nýtt skátaheimili úsnæðismál Mosverja í Mosfells- bæ leystust farsællega þann 6. nóvember er þeir vígðu nýtt skátaheimili í Hlégarði. Skátafélagið fékk sjálfar bæjarskrifstofurnar undir skáta- starfið er bæjarstjórnin flutti í nýtt hús- næði. Mosverjar fögnuðu og buðu upp á kakó og meðlæti að skátasið og skátar sungu og fluttu leikþætti. Húsnæðið er mjög stórt og flokksherbergin eru stór svo húsnæðið á ekki að aftra skátum í Mosfellsbæ að starfa. Aðaldriffjaðrir skátafélagsins, fé- lagsforinginn Andrés Þórarinsson og eiginkona hans og aðstoðarfélagsfor- ingi Ásta Björnsdóttir áttu skátaafmæli fyrir skömmu. Foreldrar og skátasyst- ingur hjá Norrænu æskulýðsnefnd- inni. Stefnt er að um 1000 þátttakend- um sem munu ferðast um landið vítt og breitt og enda við Úlfljótsvatn þar sem mannlegi og listræni þátturinn verður í hávegum hafður. Mótið er ætl- að dróttskátum og eldri og þar sem kini komu þeim á óvart og voru búin að undirbúa veislu í Hlégarði án þeirrar vitundar. Gestir höfðu allir komið sér fyrir þegar „svikarinn' plataði þau með sér inn í Hlégarð er þau voru á leið í „matarboð" til vina- fólks og undrun þeirra var mikil þegar þau uppgötvuðu að búið var að breyta þessu litla matarboði í stóra veislu. Margt góðra gesta var staðnum, skátahöfðingi, bæjarfulltrúar og fleiri. Þetta var óvenju skemmtilegt frum- kvæði foreldra þar sem þau sýndu vel hug sinn til þess starfs sem fullorðið fólk leggur á sig fyrir börn annarra. Skátablaðið óskar Andrési og Ástu til hamingju með tímamótin og skáta- félaginu með húsnæðið. vænta má mikillar þátttöku íslenskra skáta er fólki ráðlagt að skrá sig tímanlega. Sjá nánar í næsta Skátablaði og á heimasíðu Nordjamb 2000: www.scout.is/nordjamb Flokksverkefni - ný bók í byrjun árs kom út bókin Flokksverkefni. í bókinni er að finna mörg skemmtileg verkefni fyrir skátaflokka. Ef flokkurinn er duglegur að vinna að fjölbreyttum flokks- verkefnum verður skáta- starfið mun skemmtilegra. Þeir flokkar sem ljúka sex metnaðarfullum flokkverk- efnum frá hausti til vors geta varðan verður afhent vorið 2000 og síðan árlega eftir það. Það er því ekki seinna vænna að taka upp bókina Flokksverkefni og starfa að alvöru í skátaflokknum og geta skartað nýju merki á skátamótunum í sumar. Merki sem sýnir að þú ert í alvöru skátaflokki. fengið skátamerkið „Flokks- varðan" sem er sett aftan á skátaklútinn. Fyrsta Flokks- □ 1. Vetrargönguferð Farið í a.m.k. 4 klst. gönguferð að vetrarlagi þar sem ferðast er fótgangandi eða á gönguskíðum. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og gæta þess að skjótt skipast veður í lofti. Sérstaklega eru veður oft válynd yfir svörtustu vetrarmánuðina. Heppilegur ferðatími gæti því verið í mars eða apríl, þegar sól er farin að hækka á lofti. Víða leynast gömul gönguskíði í geymslum og aldrei að vita nema frændi og frænka lumi á einum slíkum. Hugmyndir: Útieldun, lærið á prímus, lögmál fjallamannsins, rötun, útbúnaður. Nánari upplýsingar: Skátahandbókin bls. 30 - 48, Upp til Jjalla. □ 2. Sumarútilega Farið í útilegu að sumri til þar sem gist er a.m.k. eina nótt í tjaldi. Útilegan er hápunktur flokkastarfsins og ætti þvi að vera a.m.k.- árviss viðburður hjá hverjum flokki. Nauðsynlegt er að allur flokkurinn taki þátt í skipulagningu útilegunnar og að sveitarforinginn sé með í ráðum um staðarval, útbúnað og dagskrá. Munið að senda foreldrum greinargóðar upplýsingar um allt sem við kemur útilegunni. Hugmyndir: Hlóðaeldun, ömefni, heimsókn á sveitabæ, flokkun á rusli sem til fellur í útilegunni, skrifið ferðasöguna og birtið í staðarblaðinu. Nánari upplýsingar: Skátahandbókin bls. 50 - 69, Upp til fjalla. □ 3. Sumargönguferð Farið í a.m.k. 5 Idukkustunda gönguferð að sumariagi. Á íslandler mikill munur á árstíðum og því oft gaman að ferðast um sama landssvæði bæði að sumri og vetri og taka eftir andstæðunum. Munið að ganga vel um náttúruna og gætið þess að spilla ekki gróðri, sérstaklega þarf að fara gætilega með eld. Munið einnig að fylgjast með veðurspá og búið ykkur í samræmi við hana. Hugmyndir: Útieldun, rötun, landgræðsla, athugun á dýralífi. Nánari upplýsingar: Skátahandbókin bls. 30 - 40, Upp til fjalla. 16 — Flokkurinn á ferð 2 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.