Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Page 4

Skátablaðið - 01.12.1999, Page 4
Búið til eigin kerti Það sem til þarf er: Kertavaxið er brætt í heitu vatnsbaði, þá er minni hætta að kvikni í vaxinu. Setjið kerta- bútana í málmdós og setjið hana ofan í pottinn og hafið vatn i pottinum sem þið hitið. Bindið 3-4 kertaþræði við pinnana og skiptist á að dýfa þeim ofan í bráðið vaxið. Það er áríðandi að leyfa vaxinu að þorna hjá ykkur áður en þið dýfið aftur ofan í. Svona endurtakið þið þar til kertin hafa fengið það útlit sem þið óskið. Munið að fara varlega. Heitt kertavax getur brennt illa. Úr „Spejd" • Kertavax eða kertastubbar. • Kveikur • Pinnar, ca 30-40 cm langir, einn á hvern skáta. • Pottur • Málmdós Látum Ijós okkar skína Atak skátahreyfingarinnar til aukins öryggis barna í umferðinni er nú á sínu 9. ári. Öllum 6 ára börnum er gefinn endurskinsborði og tímaritið Látum Ijós okkar skína, sem nú kom út ífyrsta sinn. Blaðið hefur hingað til verið hluti af haustblaði Skátablaðsins en kom mi út í október með umferðarfræðslu og kynn- ingu á skátastarfi m.a. opnu með myndum frá síðast Landsmóti. Mikill fjöldi fyrirtækja og stofnana styrkir þetta verkefni og færir skáta- hreyfingin þeim bestu þakkir fyrir. Bílnúmerahappdrætti Samhliða átakinu er bílnúmera- happdrætti og hafa allir bíleigendur fengið sendan miða heim. Dregið er 31. desember svo ef þið eigið ógreidd- an miða heima -þá munið bara að enginn vinnur á ógreiddan miða! Nú eru þeir sem fengu fyrstu borð- ana komnir á unglingsaldur en enginn er of gamall til að nota endurskins- borða eða endurskinsmerki. Látum ljós okkar skína. SKÁTASÖNGBÓKIN tilvalin jólagjöf á aðeins 1.700 kr. Bókin er með öllum vinsælu skátasöngvunum og einnig með nótum og gítargripum Fæst í Skátahúsinu v/ Snorrabraut, s. 562 1390 Sjáið tindinn, þarna fór ég.. Getur verið að Rúnar Brynjólfsson, formaður Starfsráðs BÍS hafi verið að hugsa þetta? Kannski var hann að hugsa, þangað eiga skátarnir að fara, hærra! Þessi klifurveggur sem Rúnar stendur við er í Noregi en þangað fóru fulltrúar Starfsráðs og Fræðsluráðs á síðasta ári á námstefnu. Ýmsir reyndu á hæfileika sína og lögðu á brattann en ekki er vitað hvað Rúnar gerði en ef grannt er skoðað má sjá strigaskóna hans í plastpoka með skjaltöskunni! Það hefur verð rífandi gangur i Starfsráði undanfarið og fyrir skömmu sat ráðið heilan laugardag a umönnunarheimilinu Skjóli þar sem Rúnar er forstjóri og vann baki brotnu að framtíðaráformum og skipulagn- ingu. Kannski getur Starfsráð ráðlagt þér með þitt skátastarf? 4 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.