Skátablaðið - 01.12.1999, Qupperneq 6
Hugur hf. styrkir Skátasam-
band Reykjavíkur
immtudagskvöldið 28. september sl.
var félagsforingjafundur hjá Skáta-
sambandi Reykjavíkur. A fundin-
um færði Hugur hf. Skátasambandi
Reykjavíkur Ópusallt 2000 viðskipta-
hugbúnaðinn. Hugur styrkir með pessu
Skátasamband Reykjavíkur sem er að
vinna að pvi að tölvuvæða skátafélögin.
Sveinn Guðmundsson og Guðmund
Bjömsson framkvæmdastjóri SSR taka
við geisladiski með hugbúnaðinum fyrir
skrifstofu SSR.
Eftirtalin tíu félög mynda Skátasam-
band Reykjavíkur og fengu þau öll
hugbúnaðinn afhentan. Félögin eru:
Árbúar, Dalbúar, Eina, Garðbúar, Haf-
ernir, Landnemar, Segull, Skjöldungar,
Vogabúar Reykjavík og Ægisbúar.
Hverju félagi var afhentur geisla-
diskur sem inniheldur Opusallt við-
skiptakerfið. Einnig fylgja kerfinu
bókhaldslyklar og þær skilgreiningar í
bókhaldinu sem þörf er á að nota við
rekstur hefðbundins skátafélags, auk
félagaskrár. Grunnur félagaskrárinnar
er viðskiptamannabókhaldið sem
gerir m.a kleift að fylgjast með stöðu
félagsgjalda. Mikill kostur er í því að
félögin og aðalskrifstofa noti sama
bókhaldskerfið og samræmi upp-
setningu bókhaldslykla. Með öflugri
félagaskrá verður einnig reynt að
halda utan um sögu hvers skáta, s.s
um sögu þeirra námskeiða sem hver
og einn hefur farið á.
Ópusallt er þrautreyndur viðskipta-
hugbúnaður og byggir á traustum
grunni. Um 20 starfsmenn sinna dag-
lega þjónustu og ráðgjöf við þá rúm-
lega 2000 notendur sem nota kerfið
daglega.
Með þessari gjöf vill Hugur leggja
sitt af mörkum til að styrkja gott mál-
efni og aðstoða Skátasambandið við
rekstur sinna félaga. Heildarverðmæti
þessara kerfa er um ein milljón króna.
Sveinn Guðmundsson formaður SSR af-
hendir Finnboga Albertssyni deildar-
stjóra lijá Hugi hf. fána SSR.
Samningurinn var undirritaður í
Skátahúsinu við Snorrabraut, 28. októ-
ber síðastliðinn. Sveinn Guðmunds-
son formaður Skátasambands Reykja-
víkur og Guðmundur Björnsson fram-
kvæmdarstjóri Skátasambandsins
skrifuðu undir samninginn fyrir hönd
Skátasambandsins, en Finnbogi Al-
bertsson deildarstjóri Ópusallt deildar
og Bryndís Guðnadóttir sölufulltrúi
Hugar skrifuðu undir samninginn
fyrir hönd Hugar.
Starfsmaður óskast
Starfsmaður við dagskrá óskast í
skólabúðir 2000.
Ráðningin er frá 1. jan. - miðjan maí
og möguleikar á starfi við sumar-
búðirnar frá 1. júní - miðjan ágúst.
Viðkomandi þarf að vera orðin átján
ára og hafa víðtæka reynslu á skáta-
starfi, geta unnið með krökkum og
vera tilbúinn að taka virkan þátt í
dagskrá skólabúðanna ásamt því
sem til fellur vegna reksturs þeirra.
Upplýsingar um starfið veitir Helgi
Jónsson í síma 8542074,
tölvupóstur: ulfljotsvatn@scout.is
Skriflegum umsóknum þarf að skila
með upplýsingum um aldur og fyrri
störf o.þ.h. merkt:
Úlfljótsvatnsráð v/ Skólabúða,
Snorrabraut 60, 125 Rvk.
Ómissandi fyrir alla sveitarforingja og félagsforingja
Foreldrasamstarf
Örstefna í Hraunbyrgi
Haldin verður „örstefna“ um foreldra-
samstarf skátasveita og skátafélaga
laugardaginn 22. janúar árið 2000
frá kl. 13-17 í Hraunbyrgii
skátaheimili Hraunbúa-
Á örstefnunni verða kynntar þsr
leiðir sem Hraunbúar og Landvættir
hafa farið í foreldrasamstarfi auk
þess sem fræðslustjóri kynnir hug-
myndir um foreldrastarf úr bókinni
Skátasveitin - handbók foringjans-
Þátttaka í örstefnunni er ókeypis-
6 — Skátablaðið