Skátablaðið - 01.12.1999, Page 7
jPV t
>
: ári birtist þetta nýstárlega ártal, sem er bæði heillandi og fullt
dulúðar. Gildir einu lmort menn telja nýja öld hefjast við upphafeða
. í lok hins nýja árs. Má vera að staldrað verði oftar við þetta ár en
i')í að á tímamótum sem þessum erjafnan tækifæri til hugleiðinga um nútíð
vtíð. Aldamótaár eru ekki viðburðaríkari eða merkilegri öðrum árum sögunnar
■ sakir einar að í ártalinu eru fleiri núll en venjulega. Samt eru þau áminning
um að ákveðnum áfanga sé lokið, nýir tímar taki við og að þessu sinni nýtt árþúsund,
sem hvetur til þess að reynt sé að skyggnast inn íframtíðina.
Skátahreyfingin er barn 20. aldar og gerði Baden-Powell fyrst opinberlega
'pær i
grein fyrir hugmyndum sínum árið 1900. Skátahreyfingin
hefur því fæðst, vaxið og dafnað á 20. öld. Hún hefur
jafnframt lifað af miklar raunir og erfiðleika. Nú í árdaga
nýs árþúsunds stendur hún í miklum blóma, sem lang-
öflugasta æskulýðshreyfing í heiminum með yfir 30
milljónir virkra félaga. Auðvitað er sú spurning ofarlega
á baugi hvort skátahreyfingin sé hrum og gömul eftir ríf-
lega níu áratuga starf? Því er satt að segja auðvelt að
svara. Skátahreyfingin er hreyfing, sem hefur breyst
mikið í tímans rás. Henni hefur tekist að standa sig að
þessu leyti, enda eru félagarnir börn og unglingar, svo að
skátarnir í virku skátastarfi eru og verða ávallt jafn-
gamlir, Grundvallaratriði skátastarfsins, starf í skáta-
hópum undir stjórn jafningja sem þurfa að gegna
skyldum og axla nokkra ábyrgð, eru óbreytt frá
öndverðu. Siðferðilegur grundvöllur skátastarfs sem
birtist í skátalögum og skátaheiti eru jafntraustur nú og í
upphafi. Verkefnin sem þessum tækjum er beitt til að
sinna eru hins vegar ný og í takt við hvern samtíma.
Stundum framsækin og stundum dálítið íhaldssöm eins
og annað í samfélaginu.
Við getum spurt. Verður þörf fyrir samtök sem kenna
samstarf, hjálpsemi og ábyrgð? Verður þörf fyrir samtök
sem stefna að því að ala félaga sína upp í því skyni að
þeir verði ávallt viðbúnir til hjálpar? Er þörf fyrir samtök
sem þroska frumkvæði og forystuhlutverk?
Telji lesendur svo vera á skátahreyfingin erindi til
barna og ungs fólks á komandi árþúsundi.
Við upphaf tuttugustu aldar var almenn trú alþýðu
manna að tæknilegar framfarir yrðu til þess að leysa flest
vandkvæði í mannheimi. Nú í dögun tuttugustu og
fyrstu aldar er sú trú ekki jafnsterk. Öllum er ljóst að
framtíðin ber í skauti sér miklar breytingar í tæknilegum
efnum en margir hafa bent á þá staðreynd að hið innra
eðli mannsins hefur ekki breyst þótt menning sé há-
þróuð. Nauðsyn þess að rækta manninn félagslega og
siðferðilega er því meiri og augljósari þegar tæknileg geta
hans vex. Miklu skiptir að styrkja hvern mann svo hann
geti valið af skynsemi þegar út í lífið er komið.
Rannsóknir sýna að skátahreyfingin styrkir einstakl-
inginn svo að hann getur betur staðist hættur fíkniefna
og hún eykur frumkvæði skátans sem er fyrir bragðið
betur undir lífsbaráttuna búinn. í þeim efnum er gildi
skátahreyfingarinnar ótvírætt og ættu allir sem láta sig
varða uppeldi æskunnar að kynna sér vandlega skáta-
starfið og það afl sem því fylgir.
Senn liðið ár hefur verið viðburðaríkt í skátastarfi á ís-
landi. Ber hæst Landsmót skáta að Úlfljótsvatni sem var
glæsilegt og afar vel heppnað og öllum þeim mörgu sem
þar störfuðu og unrru að undirbúningi til mikils sóma.
Skátastarf er athafnanám og hvert Landsmót skáta er ný
reynsla allra sem mótið sækja. Á það bæði við skátann
sem kemur á Landsmót í fyrsta sinn og gamla skáta-
foringjann sem á margar minningar frá fjölmörgum
Landsmótum. Arrnað sem vert er að nefna er afar merki-
legt starf skátaþings 1999, sem samþykkti stefnu skáta-
hreyfingarinnar til ársins 2015. Er brotið blað í sögu ís-
lenskra skáta með því merkilega starfi sem að baki liggur
og styrkir til muna verkefni skátanna á fyrstu árum
nýrrar aldar.
Ég þakka öllum skátum og skátaforingjum svo og öðr-
um velurmurum hreyfingarinnar góð störf á senn liðnu
ári og flyt ykkur öllum óskir um gleðilega jólahátíð og
blessun á nýju ári.
Ólafur Ásgeirsson
skátahöfðingi
. óá/caw ö//wm áJcdíum aa /d/Jcm/c/um /^ínra a/e/íl
Jd/a oýýamee/aav d /camame/í a/fnmátaawc. Q*j(aýufíam£ w^/a/c/ca/
^ue^Ju/e^fÓ áamálan^o^ á/cemmtí/e^fan áóunao/ d ný//nu
Skátablaðið — 7