Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Page 10

Skátablaðið - 01.12.1999, Page 10
Skátabúðin hættir - Nanoq opnar Hjálparsveit skáta í Reykjavík sem hefur verið rekstraraðili Skátabúð- arinnar í þrjá áratugi tók í haust þá ákvörðun að hætta eiginlegum rekstri Skátabúðarinnar. Samhliða þeirri ákvörðun var ákveðið að ganga til samstarfs með aðilum sem voru að undirbúa opnun stærstu útivistar- verslunar íslands í verslunarmið- stöðinni í Kringlunni. Sú verslun var opnuð í nóvember og ber hið sérstaka nafn NANOQ. Skv. samningi BÍS við HSSR um nafn Skátabúðarinnar mun það ekki verða notað í nokkur ár. I framhaldi þessarar þróunar ákvað stjórn Bandalags íslenskra skáta að ganga til samninga við stjórn Nanoq um að verslunin mundi annast smá- sölu á þeim skátavarningi sem BIS hefur til sölu. Samningar náðust og mun Nanoq vera með skátavörurnar í smásölu, skátabúninginn og tengdar vörur, skátabækur og aðrar þær vörur sem BIS hefur til sölu hverju sinni. Vörunum verður stillt upp á neðri hæð verslunarinnar. Verslunin Nanoq hefur nú sett á laggirnar sérstakan vildarklúbb sem ber heitið Nanoq-klúbburinn. Mark- mið klúbbsins er að bjóða skil- greindum markhópum, sbr. skátum, sérlegan afslátt í versluninni. Af- slátturinn kemur í formi uppsafnaðrar inneignar á einkareikningi hvers og eins, sem verður til við að framvísa Nanoq-kortinu þegar verslað er í Nanoq. Þennan afslátt fá skátar á öllum vörum verslunarinnar, líka skátavörunum. Þetta gerir skátum kleift að eignast vandaðan útilífs- búnað sem og ýmsar aðrar vörur á sanngjörnu verði. Avinningar meðlima NANOQ- klúbbsins eru m.a. eftirgreindir: • NANOQ leggur í hvert sinn sem þú verslar í versluninni 10% af heildar kaupverðinu inn á inneignarreikn- ing þinn. Næst þegar þú verslar getur þú nýtt inneign þína að fullu upp í vörukaupin eða safnað frekari inneign til að nýta við síðari inn- kaup, t.d. fyrir jólainnkaupin. • NANOQ mun reglulega bjóða upp á mjög góð tilboð sem einvörðungu eru ætluð meðlimum klúbbsins. Til- boðin eru breytileg eftir árstíðum og verða kynnt klúbbmeðlimum bréf- lega. • NANOQ kemur til með að standa fyrir fræðslukvöldum og ýmsum uppákomum fyrir klúbbmeðlimi. Verða slíkar uppákomur jöfnum höndum í versluninni sjálfri, sem og utan hennar. • NANOQ-klúbburinn kemur til með að standa fyrir ferðum, innanlands og utan, sem eru sniðnar að þörfum meðlima klúbbsins. Verða ferðirnar í samvinnu NANOQ-klúbbsins og Ferðahornsins. Af þessu má sjá að þó Skátabúðin sem slík hafi hætt störfum, og er vissu- lega af henni söknuður, býðst nú skátum þjónusta í Nanoq sem ekki verður síðri, vöruúrvalið margfalt og afsláttarkjörin betri. Nanoq-kortið ættu skátar að vera að fá í pósti þessa dagana, svo framarlega sem þeir eru á skrá hjá BÍS. Hjálparsveitirnar sameinast \/ SLYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG landssamband bjargunarsveita í kjölfar sameiningar Landsbjargar og Slysavamarfélags íslands hefur farið af stað sameiningarferill margra sveita. Þetta getur haft áhrif á ýmis skátafélög ekki síst þar sem hjálparsveitir hafa tengst félögunum náið og jafnvel laga- lega. Það var táknrænt að Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði ákváð á fundi í Hraunbyrgi, skátaheimili Hrarmbúa, að sameinast Björgunarsveitinni Fiska- kletti, en samstarf HSH og skátafé- lagsins hefur verið mjög náið og lagaleg tenging þar á milli. Hraunbúar horfa til sameiningar- innar björtum augum og hafa fulla trú á náið samstarf við hina nýju sveit. Mannabreytingar á skrifstofu Ritari skrifstofu BÍS, Jóhanna Björns- dóttir hætti störfum fyrir skömmu. Ekki hefur verið ráðið í hennar stöðu ennþá, en Ingibjörg Guðmundsdóttir hefur staðið vaktina að hluta. Búist er við að ráðinn verði nýr starfsmaður eftir áramót. Foreldrafélag stofnað innan Hraunbúa Það var að frumkvæði foreldranna sjálfra sem foreldrafélag var loksins stofnað innan Hraunbúa. Nokkrir for- eldrar höfðu fengið mikinn áhuga á skátastarfinu er þeir dvöldu á síðustu Landsmótum skáta. Mikill hugur er í foreldrunum og eru þeir tilbúnir til margra verka. Foreldrarnir virðast þó gera sér ljóst að þeirra hlutverk er að styðja við bakið á starfinu svo skáta- foringjarnir nái sem bestum árangri í starfi sínu. Víða er þróttmikið foreldrastarf sem er gífurlega mikilvægt fyrir skáta- starfið m.a. í Mosfellsbæ og Dalvík eins og kemur fram annars staðar hér í blaðinu. TDOTA hjá Radíóskátum Skátar á Bretlandseyjum byrjuðu með TDOTA (Thinking Day On The Air) fyrir nokkrum árum og hafa verið að fá fleiri og fleiri lönd í lið með sér. Radíóskátar á íslandi tóku þátt í fyrsta skipti í fyrra og ætla að sjálfsögðu að vera með 18. til 20. febrúar nk. Opið hús verður hjá þeim á Snorra- brautinni ef einhvern langar til að kíkja við og spjalla við skáta út um allan heim með aðstoð talstöðva. Áberandi starf á Dalvík Skátablaðinu berst reglulega Frétta- bréf Landvætta. Þar kennir margra grasa en megin markmið blaðsins virðist vera að koma skilaboðum til skátanna og fjölskyldna þeirra og þar er birt starfsáætlun alls skátafélagsins, fundartími flokkanna og nöfn flokks- meðlima. Þá er sendur út verkefnalisti fyrir Jötnasveitina, foreldrafélagið, þar sem foreldrar geta skráð sig á ýmis verkefni langt fram á næsta sumar. Verkefnin eru dagsett og áætluð tíma- lengd er gefin upp. Þetta lýsir mjög 10 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.