Skátablaðið - 01.12.1999, Page 11
oguðum vinnubrögðum enda hefur
árangurinn ekki látið á sér standa.
Mættu skátafélög gjarnan senda slík
fréttabréf til hinna skátafélaganna því
margt er hægt að læra af þessu.
Nýr formaður
Fræðsluráðs
Eiríkur Guðmundsson, skólameist-
ari MS hefur verið skipaður formaður
fræðsluráðs í stað Ástu Bjarneyjar
Elíasdóttur sem látið hefur af störfum
að eigin ósk.
Eiríkur er úr skátafélaginu Skjöld-
origum í Reykjavík og hefur gegnt þar
fjölmörgum störfum. Blaðamaður sló á
þráðinn til Eiríks og innti hann eftir
hvernig honum litist á. Hann taldi gott
fólk í ráðinu og skemmtileg vinna
framundan við stefnumóhm sem ráðið
er að vinna að í samráði við stjórn BÍS
’ framhaldi af stefnumótun BÍS sem
samþykkt var á síðasta Skátaþingi. Er
Verið að skoða allt námskeiðahald og
nÝjar áherslur sem er verið að huga að.
I starfi ráðsins er verið m.a. að huga
aö betra mati á námskeiðunum, meiri
er>durmenntun fullorðinna og að allir
Sem sækja námskeið fái vottorð fyrir
oámskeiðssetu. Hugmyndir eru að
v>kka út sveitarforingjanámskeiðin og
Eæta m.a. við námskeiði fyrir sveitar-
ráðið. Einnig hafa komið upp hug-
royndir um að bjóða upp á námskeið
fyrir almenning þar sem þekking skát-
anna nýtist vel.
Aðspurður sagði hann að sá sem
Eefur stjórnað flokk eða skátasveit
nJóti þess síðar meir við stjórnunar-
störf. Teymisvinna er algengt form
lr>nan fyrirtækja og stofnana og slíkt er
auðvitað bara flokkakerfið ef það er
skoðað í grunninn.
Frettahorn
Skátavefsins
stöðvaðist
Þeir sem lesa Skátavefinn reglulega
urðu varir við að einn vinsælasti hluti
hans, Fréttahornið hætti útkomu fyrir
stuttu. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa og áskorunum um áframhald
rigndu inn. Að sögn vefstjórans, Guð-
mundar Jónssonar var ástæðan tíma-
leysi og lítið af innsendu efni. Fræðslu-
fulltrúi BIS hefur verið duglegur
undanfarið að senda inn efni og fleiri
eru farnir að senda inn efni en betur
má ef duga skal.
Hraunbúar opna
nýja heimasiðu
Tveir ungir skátar, þeir Gísli Guðna-
son og Davíð Bjarnason hafa sett upp
nýja heimasíðu fyrir félagið. Þeir hafa
einnig sett upp tölvubúnað félagsins,
nettengt hann og sjá nú um viðhald
búnaðarins. Hraunbúar hafa nú fengið
nýtt veffang: www.hraunbuar.is
Úlfljótsvatnsráð
Bandalag íslenskra skáta og Skáta-
samband Reykjavíkur reka sameigin-
lega skátamiðstöðina Ulfljótsvatn. Úlf-
ljótsvatnsráð hefur yfirumsjón með
allri starfseminni og þar er nú for-
maður, Arnfinnur Jónsson, skólastjóri
Vinnuskóla Reykjavíkur. Blaðamaður
sló á þráðinn til Arnfinns og innti hann
eftir áherslum í starfi ráðsins.
Það er mat á því starfi sem hefur
farið fram á undanförnum árum og
verið er að vinna að framtíðarstefnu-
mótun fyrir staðinn. Meðal hugmynda
þar er að gera staðinn meira aðlaðandi
meðal minni skátahópa og sveita, fjöl-
skyldna og fyrir almenning. Hug-
myndir eru að tengja staðinn betur
náttúrunni í kring og því sem í boði er
í nágrenninu eins og merktar göngu-
leiðir á Nesjavallasvæðinu og á Hellis-
heiðinni. Aðspurður kvaðst hann ekki
sjá heita vatnið alveg á næstunni þó
það væri mjög fýsilegur kostur.
Reykjavíkurborg á landið en Orku-
veita Reykjavíkur hefur haft umsjón
með landinu og hefur verið mjög
ánægjulegt samstarf við starfslið
Orkuveitunnar.
Reynt er að hlúa að þeirri starfsemi
sem þar hefur verið og m.a. hefst nú í
vor 9. starfsár Skólabúðanna á vegum
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Það
starf hefst um miðjan janúar og
stendur fram í maí. Búist er við að um
1400 12 ára nemendur komi á Ulfljóts-
vatn á þessum tíma.
í húsnæðismálum má nefna væntan-
lega stækkun og endurnýjun DSÚ en
verið er að vinna að uppsetningu á
„varanlegu tjaldi" sem keypt var af Blá
Lóninu í sumar.
Aðrir í ráðinu eru framkvæmda-
stjórar BIS, Þorsteinn Fr. Sigurðsson og
SSR, Guðmundur Björnsson, skáta-
höfðingi Ólafur Ásgeirsson, formaður
SSR, Sveinn Guðmundsson auk Sig-
rúnar Sigurgestsdóttur og Gylfa Jónas-
sonar sem eru tilnefnd af stjórn BIS
annars vegar og stjórn SSR hinsvegar.
Ólafur rektor
Ólafur Proppé, formaður Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar og Hraunbúi
hefur verið skipaður rektor við Kenn-
araháskóla Islands.
Skátablaðið óskar Ólafi til hamingju
með starfsframann.
Guðmundur
Landsmótsstjóri
Guðmundur Pálsson, Dalbúi verður
mótsstjóri næsta Landsmóts sem
haldið verður að Hömrum, Akureyri
árið 2002.
Skátablaðið — 11