Skátablaðið - 01.12.1999, Page 12
Jólatónleikar og fréttir
frá Skátakórnum í
Já Skátakórinn í Reykjavík lifir enn
og hefur aldrei verið sprækari.
Snnmidaginn 2. janúar ætlar
kórinn að halda Jólatónleika í skátahúsinu
Snorrabraut. kl. 17.00. Hann hefur gert
þetta tvisvar áðurfyrir vini og vanda-
menn og þar hefiir verið mikið stuð.
Ásamt tónleikunum verður líkajólaball
fyrir börnin og eru allir velkomnir. Það
verður kaffi og kökur, jólasveinar auðvitað
jólatré, hljómsveit ofl ofl.
Núna þegar kórinn nálgast fimmta
starfsárið sitt (febrúar) eru 23 skátar í
honum og hvort sem þið trúið því eða
ekki eru þar af níu strákar. Kórinn kom
því vel undan Landsmótssumri, þar
sem hann söng bæði við setningu og
slit ásamt Skátakórnum í Hafnarfirði.
En að auki söng kórinn við ýmsar mót-
tökur og önnur tækifæri á mótinu.
Gott og skemmtilegt Landsmótið á
eflaust þátt í fjölgun kórfélaga, en aðal-
málið er auðvitað það að það er svo
gaman í skátakórnum og það smitar út
frá sér eins og talsmaður kórsins orðar
það.
Svo má ekki gleyma stjórnandanum,
ef hann er fúll er kórinn fúlli. Erni
Arnarsyni hefur tekist að færa léttleika
yfir kórinn og gera hann skátalegri en
áður. Einnig hefur Örn ásamt Aðal-
heiði Þorsteinsdóttur haldið áfram
einu aðalmarkmiði kórsins að útsetja
þekkt skátalög. Núna hefur kórinn æft
sjö skátalög eins og td. Ég nestispoka á
baki ber, Dagsins besta melódí og Með
sól í hjarta. Auk árlegra skylduverka,
að syngja í skátamessu sumardaginn
fyrsta, hefur kórinn verið að syngja á
ýmsum skátasamkomum og hjá skáta-
félögum og bendir kórinn hópum á að
kórinn er tilbúinn að syngja næstum
hvað sem er, hvenær sem er og hvar
sem er. Þið þurfið bara að hringja í
Ragga rakara í s. 5524738 eða 5613324
á kvöldin.
Þrátt fyrir að kórinn hafi stækkað má
alltaf bæta við ef þið hafið áhuga endi-
lega hringið í okkur. En við vitum að
ekki eru allir tilbúnir að syngja í kór, en
hefðu samt gaman af að syngja með
góðum félögum gömul og ný skátalög
undir stjórn kunnáttufólks. Því ekki að
hittast eftir áramót kannski tvisvar
þrisvar og æfa saman. Þeir sem
eitthvað kunna að glamra á gítar gætu
jafnvel tekið hann með. Hugsið málið
og spáið í þetta yfir hátíðirnar.
Kórfélagar senda öllum innilegustu
jóla og nýárs kveðjur.
RH
Skátajólaskraut
Á Sauðárkróki er oft fjörugt í skátastarfinu. Björn og
Drífa drífa starfið áfram af miklum dugnaði og láta oft
heyra frá sér.
Ritstjórinn getur ekki látið hjá líða að birta hér mynd af
jólakveðju þeirra hjóna sem var skemmtilega frumleg.
Þau höfðu bakað skátahatta til jólagjafa og eitthvað
seldu þau víst.
Prófið að búa til svona hatta, deigið getur verið eftir
smekk og svo er bara að sjá hvernig ævintýrið verður
er það kemur út úr ofninu. Þessir hatta smökkuðust
líka mjög vel!
12 — Skátablaðið