Skátablaðið - 01.12.1999, Síða 16
Landsmót — stærst og best!(?)
• Fjöldi: Um 3.500 í tjöldum og yfir
6.000 manns á svæðinu þegar mest var.
• Fjölskyldubúðir: Um 700 manns
• Erlendir skátar: 900
• Starfsmenn: Rúmlega 300 fastir
starfsmertn þar af um 100 erlendir
skátar.
• Flestir þátttakendur, stærsta svæðið,
flestir útlendingar.
Blaðamaður sló á þráðinn til Benja-
míns Axels Arnasonar mótsstjóra og
fékk álit hans á mótinu:
„Eg er ánægður með tnótið og þykir
vænt um hvað þátttakendur voru virkir og
ánægðir. Við vorum að gera marga nýja
hluti, bæði stjórnunarlega og skipulags-
lega sem tókust vel. Viðfærðum mótið til í
vikunni, dagskrárval fór fram fyrir mót,
erlendum skátum var gefinn kostur á að
taka þátt í starfsmannabiiðum, byggður
var upp miðbæjarkjami og stjómsetur fært
á einn stað í miðbæ en ábyrgð og valdi
síðan miðlað til torgstjórna. Stjórn-
skipidagið virkaði mjög vel, boðleiðir voru
vel skilgreindar og beinn og greiður
aðgangur að mótsstjórn. Torgstjórnun
gekk mjög vel og tekið var á þeim málum
sem upp komu hverju sinnifljótt og vel.
A hverju torgi var nú blöndun á þjóðum
og aldri og gekk það mjög vel og gaf
fjölbreytni.
Svæðið er að verða mjög skemmtilegt og
við höfutn unnið að uppbyggingu í góðu
samstarfi við sveitunga okkar þama, mikl-
ar framkvæmdir áttu sér stað að Ulfljóts-
vatni fyrir mót, þannig að svæðið væri
boðlegt fyrir landsmót, það er vel en fyrir
liggur að gera þarf enn betur fyrir næsta
mót ef vel á að fara um þann fjölda sem
Benjamín Axel við mótsslit
vænta má að taki þátt'' sagði Bennó og
fór að huga að sunnudagssteikinni.
í blaðinu eru birtar Ijósmyndir frá Landsmóti skáta 1999. Mikill fjöldi skáta og fjölskyldur þeirra upplifði skátamótið og
við það er ekkert að bæta. Myndirnar tala sínu mali og vekja eflaust minningar hjá þeim sem þar dvöldu.
16 — Skátablaðið