Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Side 27

Skátablaðið - 01.12.1999, Side 27
með skipum sem voru 5 daga að sigla til Kaupmannahafnar. Allir skátar í Reykjavík sóttu fundi í Skátaheimilið við Snorrabraut, stóra og hlýlega innréttaða bragga. Þeir sem hjuggu austast í Reykjavík áttu heima lnri1 í Sogamýri og Vogunum því að austan Elliðaáa var í rarm sveit. Hlið- stætt mátti segja um Hafnarfjörð, Akur- eyri og fleiri gamla byggðarkjama. Allt Var nánast í göngufæri. En í hönd fóm ar mikillar uppbyggingar húsnæðis, at- Vrnnuvega, skólamála og margs fleira. Skátastarf hafði verið í talsverðri lægð aht frá landsmótinu 1948 á Þingvöllum, aðeins eitt landsmót verið haldið eftir Það en nokkur smærri mót. Skátum ftöfði fækkað verulega um og eftir 1950 °8 vom lengst af lítið fleiri en 3000 og foringjaþjálfun var lítil sem engin á landsvísu þar til Hrefna Tynes hélt fjöl- naerint foringjanámskeið að Úlfljóts- Vatni haustið 1958. Hins vegar hafði út- gáfustarf Úlfljóts verið nokkuð öflugt °g Skátablaðið kom reglulega og var Uln þetta leyti í höndum ungra skáta- foringja { SFR. Skátaskálar vom mikið n°taðir én sumarstarf minna enda fóm börn flest í sveit og unglingar oft í sumarvinnu burt frá heimahögum. Jónas B. Jónsson hafði tekið við starfi skátahöfðingja árið áður við andlát híelga Tómassonar og með honum sförfuðu varaskátahöfðingjamir Hrefna Tynes og Páll Gíslason. Jón Sigurðsson úgEinemi við HÍ, og síðar forstjóri á Grundartanga, var í starfi fyrir BÍS n°kkra tíma á viku og hafði aðsetur í emu herbergi að Laugavegi 39, fyrir °fan úrsmíðastofu Franks Michelsen. Þáttur Gilwellþjálfunarinnar fyrstu árin hegar litið er til baka sést greinilega að uppbygging var að hefjast í skáta- starfi sem annars staðar og þar hittu Gilwellnámskeiðin í mark. Þau vom auðvitað afrakstur af skynsamlegum ákvörðunum forystufólks í stjóm BÍS. hn um leið vom þau nauðsynlegur og öfluguj gnmdvollur þess sem á eftir fylgdi. Þau opnuðu mörgu hæfu fólki aögang að raunvemlegum og gagn- egum verkefnum þar sem Gillweiiskátar gegndu lykilhlutverki. Námskeiðið austur við Úlfljótsvatn eið á einni viku og varð að lifandi ^fnningu. En það sem var mest spenn- ar,di að takast á við og raunvemlegu verkefnin sem við nýttum þekkingu ok- kar við áttu sér stað eftir að við höfðum °kið námskeiðinu og vorum orðin Gilwellskátar. Baden Powell segir einhvers staðar: Ef þií vilt komast áfram í lífinu, verður þii að geta tekið á þig ábyrgð. Til þess þarfiiast þú sjálfitrausts, skipulagshæfi- leika og samvizkusemi. Þannig er það líka innan skátastarfsins. Flokksforinginn ber ábyrgð á hegðun og dugnaði flokksmeðlima sinna. Efvið byrjum strax á unga aldri að æfa okkur á því að bera ábyrgð, náum við langt. Það styrkir persónuleika okkar og gerir okkur jæra um að taka að okkur mikilvæg störfseinna í lífinu. Ábyrgðartil- finningin eykur líka góð áhrifokkar á aðra. Eiríkur, Franch, Odd og Björgvin Eftir Gilwell gafst okkur tækifæri á að taka ábyrgð á ýmsum verkum og frelsi til bæði að nýta tækifæri og skapa önnur. Við vomm sístækkandi hópur, margt skólafólk, en þó var sem betur fer að verki fólk á öllum aldri og í mismun- andi störfum. BIS skrifstofan hélt áfram að vera í einu herbergi við Laugaveg næstu fimm árin en Ingólfur Armanns- son Hrafn '59 var ráðinn í fullt starf sem framkvæmdastjóri sumarið 1960. Það var hyggileg ákvörðun að leggja megin- áherslu á mannlega þáttinn í upp- byggingunni þótt áfram þyrfti að búa þröngt. Kapp var lagt á foringjanám- skeið af öllum gerðum víða um land og á víðtækan erindrekstur bæði til nýrra félaga og gróinna. Ný verkefni og umfangsmikil Skátaþing 1960 samþykkti að gera þyrfti ramma að starfi fyrir 15-18 ára skáta en fyrir þá hafði verið fjallarekka- starf og ungsvannastarf um skeið. A næstu fimm árum reis fullmótað drótt- skátastarf sem fól í sér skipulagsramma og leiðbeiningar til foringja og handbók fyrir dróttskátana sjálfa. Jafnframt voru hönnuð undirbúnings- og framhalds- námskeið fyrir dróttskátaforingja og námskeið fyrir dróttskátana sjálfa svo sem í alþjóðaskátun, fundasköpum, þjónustuverkefnum og varðeldastjóm að ógleymdum Stílskólanámskeiðun- um. Útilífskeppni dróttskátasveitanna undirstrikaði mikilvægi útilífsins í starfi þessara sveita og tveir göngustafir, Víð- förlar, fóru fjölmargar ferðir með sveitum um allt land og með þeim fylgdu til baka skemmtilegar ferða- bækur. Þama skipti mestu máli eigið fmmkvæði og skipulagning dróttskáta- sveitanna sjálfra við útivistina því að allar vildu sveitimar eignast Víðförul. Öndvegið, sem stendur 1 húsakynnum Klakks á Akureyri, fluttu strákamir hans Tryggva með sér norður vorið 1965 en 20 af 21 dróttskátum, sem fengu Forsetamerkið við fyrstu afhendingu að Bessastöðum, voru úr þeirri sveit. Onefnt er þá tvennt sem gerðist 1965. Annað var fyrsta ferðamót dróttskáta þar sem sveitimar mættust á Gilsbakka í Borgarfirði eftir sólarhringsferð um Kaldadal, yfir Ok, upp Hvítársíðu eða suður Tvídægm og gistu í skýlum sem þær reistu sjálfir á leiðinni úr einföldu efni sem þær báru með sér. Hitt var Gilwell-Smára námskeiðið sem haldið var sérstaklega fyrir dróttskátaforingja og með þeirra þarfir í huga við Úlfljóts- vatn. Evert Tureson frá Svíþjóð var stjómandi þess. Þótt dróttskátastarfið fái hér sérstaka athygli, vegna þess að þar var nýtt um- fangsmikið verk byggt hnitmiðað upp allt frá grunni til víðtækrar útfærslu, er rétt að nefna margt fleira sem Gilwellskátar fyrstu áranna unnu vem- lega að. Skátaþing bað um starfsramma og dagskrá fyrir 15-18 ára unglinga og óskinni var mætt. En annað kom úr röðum Gilwellskáta sjálfra. Líklega má segja að við höfum mörg verið nokkuð vel lesin í skátafræðum miðað við það sem var til á prenti. Og við þekktum sögu skátahreyfingarinnar hér á landi bærilega vel af lestri Skátablaðsins nokkuð aftur í tímann. Engu að síður fundum við þörf fyrir að kafa dýpra, skilja betur, ræða meira og að vinna saman að einhverju sem skipti máli. Þess vegna stofnuðum við Gilwellhringinn. Og hann þjónaði akkúrat þessum tilgangi. Við hittumst reglulega til funda og fengum oft gesti Frh. á bls. 30 Skátablaðið — 27

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.