Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 28

Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 28
Maður fcamr í manns stað Það er mikilvægt hverjum skáta- foringja að geta sagt: „Ég gefekki kost á mér í sömu foringjastöðu á næsta aðalfimdi." Það versta sem við getum gert nokkrum einstaklingi og um leið skátastarfinu er að neyða skáta til pess að gegna foringjastöðu hvort sem er í sveit, deild, félagi, skátasambandi eða bandalagi. Slík nauðung er bein ávísun á minni gæði starfs auk þess sem miklar líkur eru á að skátinn brenni hratt út í starfi sem hann hefur verið neyddur í. Ef við sýnum foringjunum okkar pá virð- ingu aðfara að óskum peirra eru meiri líkur á að peir taki að sér önnur verkefni fiyrir skátahreyfinguna, annað hvort í beinu framhaldi eða síðar á lífsleiðinni. Hvernig finnum við nýjan foringja? En hvernig förum við að við að finna nýjan foringja? Fyrst þarf að til- nefna einstaklinga í uppstillingar- nefnd, þ.e. einhverja aðilar sem fá það formlega verkefni að finna nýjan foringja. Það er óeðlilegt að foringi þurfi að finna arftaka sinn og oft á tíðum er hann óhæfur til þess. Ef finna á félagsforingja gæti uppstillinga- nefnd verið samsett af einum fulltrúa úr stjórn, einum sem þekkir vel til í sveitarfélaginu og einum sem þekkir víða til í skátahreyfingunni. Fulltrúar í uppstillingarnefnd mega ekki fá það á tilfinninguna að ætlast sé til af þeim að gegna stöðunni ef þeir finna engan eftirmann. Hvað er góður foringi? Ef finna á félagsforingja er eðlilegt að leita til annarra í félagsstjóm og til deildar og sveitarforingja varðandi hugmyndir að félagsforingjaefni. Upp- stillinganefnd þarf líka að hafa það hugfast að ekki er endilega best að fá innanfélagsmann í stöðu félagsforingja. Með fólki með annan bakgrunn koma oft Nýir straumar og ferskar hug- myndir. I mörgum sveitarfélögum búa „innfluttir" skátar og fjölmargir félagsmálamenn myndu sóma ssér vel sem félagsforingjar þó svo að þeir hafi litla sem enga reynslu af skátastarfi. Upplýsingar um eldri skáta er oft hægt að fá í félagatali BÍS. Eftirtaldir eiginleikar þurfa þó m.a. að einkenna nýjan félagsforingja: Hann verður að aðhyllast og þekkja markmið, áhersl- ur og aðferðir skátahreyfingunni; búa yfir leiðtoga- og forystuhæfileikum jafnt með börnum og fullorðnum; hafa skipulagshæfileika; geta stjórnað þróunarstarfi og dreift ábyrgð. Félags- foringi verður að vera verðugur tals- maður félagsins gagnvart foreldrum, sveitarfélagi, skátasambandi og BIS. Æskilegt er að félagsforingi hafi reynslu af skátastarfi. Réttur maður á réttan stað Þegar verðandi viðmælandinn hefur gefið jákvætt svar tilnefnir upp- stillingarnefnd hann sem nýjan félags- foringja á aðalfundi félagsins. Lög fé- lagsins tilgreina á hvaða hátt aðrir geta boðið sig fram ef einhverjir eru. Tilkynna þarf BÍS að nýr félagsforingi hafi tekið við stjórn félagsins. Þessi aðferð sem hér að framan er rakin á að tryggja að félagið geti valið sér hæfan einstakling til að taka að sér foringja- störf, einstakling sem er meðvitaður um það sem til er ætlast og hefur feng- ið samþykki uppstillingarnefndar. Viðtalið Þegar uppstillingarnefnd hefur fengið nokkur nöfn að moða úr ákveður hún hvort hún boði alla eða útvalda einstaklinga í viðtal. Á þessari stundu er ef til vill hægt að forgangs- raða og hafna einhverjum strax sem uppfyllir ekki lágmarkskröfur. I við- talinu ætti að hafa eftirfarandi atriði i huga: Þessi aðferð leysir tvö mál. í fyrsta lagi á hún að koma í veg fyrir að fé- lagsforingi „neyðist" til að sitja áfram þar sem að enginn „vildi" taka við af honum og í öðru lagi að lítt hæfur einstaklingur sé kosirrn af lítt ígrund- uðu máli í framhaldi af upphlaupi á aðalfundi í hita og þunga leiksins. Komum heiðarlega fram Það er mjög mikilvægt að þeir sem taka að sér foringjastörf fyrir skáta- hreyfinguna séu meðvitaðir um hvað sé ætlast til af þeim, bæði hvað varðar skuldbindingu og tíma. Það er ekki • Veldu fundarstað þar sem hægt er að ræða saman í friði og ró í notalegu umhverfi, gjarnan með viðeigandi veitingum. • Upphafið skiptir máli. Fyrstu kynni verða ekki endurtekin. Auðvitað skiptir máli hvort þú þekkir viðmælandann. Ekki reyna að hraða við- talinu - sýndu í upphafi að þú hafir áhuga á högum viðmælandans t.d. því sem hann hefur fengist við í skátastarfi, atvinnu eða með fjöl- skyldunni. Þú þarft því að hafa aflað þér haldgóðra upplýsinga áður en að viðtalinu kemur. • Vertu viss um að viðmælandinn viti hver tilgangur fimdarins er. Félagið þarfnast nýs félagsforingja og uppstillinganefnd hafi ákveðið að boða til viðtals eftir tilnefningar. • Upplýsið viðmælandann um þær kröfur sem gerðar eru til félagsforingja í viðkomandi félagi og ekki hvað síst, hvaða stuðnings hann megi vænta frá öðrum í stjórninni, frá starfsmanni (ef einhver er), sveitarfélagi, skáta- sambandi og BÍS. Á þessum tímapunkti er mikilvægt að taka tillit til þekkingar og reynslu viðmælandans af skátastarfi. • Upplýsið viðmælandann um skyldur hans gagnvart skátasambandi og BÍS. • Upplýsið viðmælandann um hvernig ætlast sé til að hann sæki sér grunn- og símenntun í skátafræðum. • Sjáið til þess að viðmælandinn fái tækifæri til þess að tjá sig um áhugamál sín og hugðarefni. • Ef til vill reynist ekki unnt að fá samþykki viðmælanda á fyrsta fundi. Því er mikilvægt að afhenda honum gagnlegar upplýsingar eins og ársskýrslu félagsins, útgefið efni (t.d. afmælisrit, fermingarskeytablöð, Skátablaðið eða bækur útgefnar af BÍS s.s. Á ég að láta til leiðast og Skátastarf - mark- viss menntun), upplýsingar um vefsíður um skátamálefni (www.scout.is) o.fl. • Áður en viðtalinu líkur þurfa allir að vera meðvitaðir um næstu skref - hvenær næsta viðtal fer fram þar sem viðmælandi gefur endanlegt svar. 28 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.