Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 29

Skátablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 29
Upplýsinga- og samskiptamál í skátastarfi agana 2. - 8. maí sl.fórum við tveir Fossbúar til Strasbourg í Frakklandi. Tilgangur ferðarinn- ar var að vera fulltrúar BÍS á námsstefnu Urn applýsinga- og samskiptamál í skáta- starfi. Námsstefnan var lialdin í Æsku- vúðstöð Evrópuráðs en auk okkar voru Par 28 skátar frá 16 löndum í Evrópu sem aMr komu, á einn hátt eða annan, nærri uPplýsinga- og samskiptamálum í sinni hreyfingu. Þó að svona ferðir séu mjög skemmtilegar og við búum að reynsl- unni og upplifuninni ævilangt, vorum viö þarna saman komin í ákveðnum tilgangi. Okkar hlutverk var að takast a við, og yfirstíga, þau vandamál sem blasa við hreyfingunni í dag, varðandi upplýsingastreymi, gagnaflæði og þess háttar. Það var því eðlilegt að u^ikið af okkar tíma færi í að velta fyrir °kkur grunnreglum samskipta, mögu- iegum leiðum til að koma upp- lýsingum áleiðis o.s.frv. Við fengum U'arga færa leiðbeinendur, sem m.a. komu frá Evrópuskrifstofu skátahreyf- lngarirmar, til að opna eyru okkar og hugi og búa okkur undir þau verkefni Sem framundan voru. Hvort sem það var að undirbúa stutta ræðu og flytja fyrir aðra þátttakendur (undirbúning- ur fyrir kynningarstarfsemi til aðila ut- an hreyfingarinnar) eða að búa til skipurit yfir upplýsinga- og skipana- flæði fyrir ókunn samtök með upp- kyggingu frábrugðna okkar, þá vorum við vel undirbúin og með það í huga að við vorum þarna til að læra, en líka Þ1 að miðla. Lokaverkefni vikunnar Var að hver og einn ætti að búa til Verkefni sem hann eða hún færi með heim og ynni að í sínum samtökum. Einu skilyrðin voru þau að verkefnið Varð að snúast um að bæta samskipti °8 upplýsingastreymi innan sam- takanna, eða frá samtökunum og til utanaðkomandi aðila. Þau verkefni Sern íslensku þátttakendurnir unnu að snúast annarsvegar um Internetið og hins vegar um nýjan lið í foringja- þjálfun, og hafa bæði verið kynnt við- komandi aðilum hérlendis og verða að öllum líkindum framkvæmd innan árs. Það sem helst vakti undrun okkar á þessari námsstefnu var hversu vel ís- lenskir skátar eru settir í þeim málum sem snúa að upplýsingaflæði og sam- skiptum. I Portúgal er til dæmis meiri háttar vandamál að koma upp- lýsingum frá aðalstöðvimum í Lissa- bon til sveitarforingja út á landi, sök- um skorts á boðleiðum, s.s. tímarits sem ekki er gefið út á landsvísu vegna fjárskorts. Slík vandamál búum við ekki við, og er það að hluta til að þakka smæð samtakanna, en einnig hversu ötullega hefur verið unnið að þessum málum á undanfömum árum. En lengi má gott gottna, eins og þar segir, og vonandi verður þessi vika til einhvers góðs hér heima. Þau virtust ekki eiga í vandræðum með samskiptin, Einar Elí og Christina sú franska. Eins og áður sagði búum við að þessari lífsreynslu um ómunatíð. Tækifærið til að hitta jafnaldra okkar frá öðrum löndum á þessum jafnréttis- og vináttugrundvelli sem skátahreyf- ingin er, er ómetanlegt. Það var því með söknuði sem við yfirgáfum Æsku- miðstöðina að morgni 8. maí og héld- um heim á leið. En með hliðsjón af eðli námsstefnunnar var ekki annað hægt en að hafa samband við og við eftir á, og á hverjum degi fáum við 4-6 ný bréf í tölvupósti frá öðrum þátttakendum. Þetta er kannski ekki skátalegasta leið- in til að stunda skátastarf, en er engu að síður skemmtileg og mætti vel vera athugandi fyrir flokka á Islandi að koma á fót slíkum samskiptum við aðra flokka, hvort sem er hérlendis eða...tja, í Afríku. En þessi „eftirásam- skipti" eru ekki bara til gamans. Fyrir nokkrum vikum fengum við bréf frá Midge í Englandi þar sem hún spurði þátttakendur um leiðir til að koma í veg fyrir að skátar á unglingsaldri hættu í skátunum. Hún fékk nokkur mjög áhugaverð svör, þar á meðal góða greinargerð frá íslandi þar sem við sögðum henni frá hálfdrætta- sveitinni sem var stofnuð í Fossbúum fyrir 3 árum, í hvaða tilgangi og hvaða árangur hún hefði haft. Það var ekki nóg með að Midge væri þakklát, heldur skrifaði Had frá Slóvakíu og bað um leyfi að fá að birta þýðingu af bréfinu í tímariti sem hann ynni við og væri fyrir eldri foringja í Slóvakíu. Hann sagði að þetta væri fínt dæmi um hvernig væri hægt að sigrast á vandamálum. Og já, eitt enn. Við lærðum ferlega skemmtilegt lag þarna úti (ekki það eina reyndar) sem heitir Le Squalo og mun tröllríða sveitaballa- og skáta- mótalífinu í sumar..bíðið bara! Einar Elí Magnússon 8°tt að gera of lítið úr því hversu ^ikill tími og orka fer í starfið. Það verður að koma heiðarlega fram og skilgreina þann tíma sem fer í að rækja viðkomandi foringjastarf svo sómi sé at- Ef við viljum hendi á ekki að biðja um litlafingur. Þannig komum við heiðarlega fram - og stöndum við orð okkar. Helgi Grímsson, fræðslustjóri BÍS. Þýtt og endursagt úr Scouting - magazine % ^ Endurskin á alla glaða skáta! Skátablaðið — 29

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.