Skátablaðið - 01.12.1999, Síða 32
Nýtt félag - Slysavama-
félagið Landsbjörg n
Markmið sem lengi hefur verið stefnt að
1dsso,n
,Hon'
I
15-*
0*G
reito
Untjjögur hundruð félagsmenn voru mættir á stofnþing Slysavarnafélagsins
Landsbjargar sem haldið var í Félagsheimili Seltjarnarness að morgni laugar-
dagsins 2. október. Það var Ólafur Proppé, formaður bráðabirgðastjórnar, sem
opnaði fundinn með því að bjóða allafulltrúa velkomna til stofnþings.
Áður en gengið var til formlegrar dag-
skrár fjallaði Gurtnar Tómasson, vara-
formaður bráðabirgðastjómar um að-
draganda sameiningarinnar. Gunnar fór
eirrnig yfir helstu áfanga í samstarfi fé-
laganna síðustu þrjá áratugina. Að
lokum þakkaði hann öllum innan sem
utan félagsins fyrir elju og linnulausa
vinnu í að gera stofnun Slysavamafé-
lagsins Landsbjargar að vemleika. Að
því loknu gerði Olafur Proppé grein
fyrir tíllögum að lögum félagsins sem
síðar vom samþykkt með dynjandi lófa-
klappi og án mótatkvæða.
Ólafur Proppé, formaður
Margar sveitir sameinast
Eftir kaffihlé var sérstakru dagskrár-
liður um sameiningu björgrmarsveita en
á fimm svæðum hafa sveitír sameinast
og væntanlega er það vísir að því sem
koma skal; færri, stærri og sterkari
sveitir. Fjallað var um sameiningu Björg-
unarsveitar SVFÍ og Hjálparsveitar
Skáta á Dalvík. Hjálparsveita skáta og
karladeildar SVFÍ á ísafirði. Hjálparsveit
skáta, Flugbjörgunarsveitin og sjó-
björgunarsveit SVFI á Akureyri. ingólfs
í Reykjavík og Alberts á Seltjamamesi.
Einnig var kynnt viljayfirlýsing um
sameiningu Tryggva á Selfossi og
Drafnar á Stokkseyri.
Hátíðardagskrá í höllinni
Eftir hádegi var haldinn hátíðar-
fundur í Laugardalshöllinni þar sem
hátt á þriðja þúsund manns vom saman
komin, félagsfólk alls staðar af landinu,
auk innlendra og erlendra gesta. Á
fundinum fluttu ávörp forseti Islands,
hr. Olafur Ragnar Grímsson, biskup Is-
lands, hr. Karl Sigurbjömsson, utan-
ríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson,
dómsmálaráðherra, Sólveig Péturs-
dóttir og Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, afhenti fyrir hönd ríkis-
stjómarinnar, félaginu 3 milljónir króna.
Einnig fluttu ávörp formaður og vara-
formaður félagsins ásamt Andrew
Freemantle og Elia Mannetta. Milli
ávarpa skemmtu gestum Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Karlakórinn Fóstbræður, KK,
Magnús Eiríksson og Gunnar Eyjólfs-
son, fv. skátahöfðingi.
... og þá var kátt í höllinni
Veisla aldarinnar, eins og margir vildu
kalla hana var síðan haldin um kvöldið.
Þetta er stærsta veisla sem haldin hefur
verið hér á landi. 2.650 gestír snæddu
þríréttaðan hátíðarmálsverð og var
hvert einasta skúmaskot Laugardals-
hallarinnar nýtt. Tæplega 8 tonn af
lambalærum voru úrbeinuð fyrir
Kristbjörn Óli Guðmundsson, mjr
framkvæmdastjóri samtakanna. __
veisluna, rúm 4 torrn af leirtaui þurfti að
nota og 12 þúsund glös. Eftir að
skemmtiatriðum lauk héldu Stuðmenn
stuðinu gangandi langt fram á nótt.
Heillaóskir skáta
Islenskir skátar óska Slysavamafé-
laginu Landsbjörg og félagsmönnum
innilega til hamingju með stofnun sam-
takanna og vænta áfram góðs samstarfs
við þau eins og verið hefur. Hér hefur
verið stigið gæfuspor í björgunarmálum
og slysavömum á Islandi.
5 litúí prentvél
Háújúeði Hraði Hacjstúett verð
Prentsmiðjan Steinmark
Dalshrauni 24 • Hafnarfirði
Sími 555 4855 • Fax 565 4855
Netfang: steinmark@isholf.is
Blöð • Tímarit • Bæklingar • Veggspjöld • Öll smáprentun • o.fl. o.fl.
32 — Skátablaðið