Skátablaðið - 01.12.1999, Side 33
Sagan á
bak við
Radíóskáta
^OSCOí/^
JOTA og
rið 1957 var haldið alþjóðlegt
skátamót í Sutton Coldfiled ná-
lægt Birmingham í Mið Englandi.
Þarna voru staddir 3500 skátar frá 62
þjóðlöndum. Á þessu móti settu Radíó-
aniatörar íjyrsta skipti upp stóra stöð og
ráku undir kallmerkinu GB3SP. Síðan
þetta var hafa alltafverið settar upp ama-
törstöðvar á alþjóðlegum skátamótum.
Um það bil 60 manns sem störfuðu við
GB3SP náðu sambandi við 1712 stöðvar í
71 þjóðlandi. Fólk sem ekki hafði réttindi
fadíóamatöra fékk ekki að nota í talstöðina
e>í yfirvöld leyfðu þó stuttar útsendingar
á klukkustunda fresti.
„Chackurinn" var yfirfullur af fólki á
hverjum degi mótsins en það var hald-
ið í almenningsgarði og því ómögulegt
að takmarka aðgang. Ungur skáta-
foringi, sem jafnframt var radíó-
amatör, var undrandi yfir hinum mikla
fjölda erlendra skáta sem einnig voru
radíóamatörar og voru á mótinu.
Skátaforingi þessi hét Les Mitchell,
G3BHK. Hann ákvað því að hóa þeim
saman. Auglýsing í blaði skátamótsins
leiddi til daglegra funda sem voru
haldnir í kaffihúsi spölkorn frá móts-
svæðinu. A einum þessara funda
ákvað hópurinn að hittast í loftinu eina
helgi á ári hverju.
Les áleit að best væri að fá skáta alls
staðar að til að taka þátt í þessu því
þannig væri tryggt að nægur fjöldi
skátastöðva yrði í loftinu til að ná sam-
bandi við ef hinir upprunalegu „kaffi-
húsaskátar" gætu ekki náð sambandi
hvor við annan. Hópurinn ákvað að
Prófa þetta.
Tveir skátaflokkar ráku stöð í 12
klukkustundir í október 1957. Stöðin
var rekin í tjaldi á svæði hins 79.
Reading skátaflokks en það var flokk-
Urinn hans Les Mitchell. Með einföldu
vírloftneti og 40 watta AM sendi náðu
þeir sambandi um allan heim. Áhug-
uan var slíkur að svona alþjóðlegt
„radíóskátamót" var greinilega eitt-
hvað sem gæti gengið áfram. Les
kallað uppátækið „skátamót í loftinu"
eða Jamboree on the air (JOTA) því það
fannst honum þetta vera. Hann bjó til
einfaldar reglur sem reyndust svo
r>otadrjúgar að þær hafa verið
óbreyttar síðan. Fyrsta JOTA mótið var
haldið 10. og 11. maí 1958. Les Mitchell
rak þá aftur stöð með skátaflokkinum
sínum. í framhaldi af því óskaði hann
eftir að Alþjóðlega skátamiðstöðin sem
þá var staðsett í Ottawa tæki yfir
JOTA.
Ljóst var að JOTA var komið til að
vera og hefur það verið haldið óslitið
síðan eða í fjörtíu ár. Það er ætíð haldið
þriðju helgina í október ár hvert.
Það má rekja upphaf radíóskáta-
starfs á íslandi aftur til fyrriparts átt-
unda áratugarins. Þá var lítill hópur
skáta starfandi sem hafði mikinn
áhuga á fjarskiptum og tækjasmíði.
Þeir gáfu út bæklinga um smíðina og
seldu íhlutina í póstverslun. Á Lands-
móti 1974 voru þeir síðan og sáu um
póst þar sem tækjasmíði var aðalverk-
efnið. Á Nordjamb 1975 voru 5 ís-
lenskir Radíóskátar starfsmenn móts-
ins. Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og ýmislegt verið gert. Hópur
manna, með föstum kjarna, hefur til
dæmis séð um JOTA á Islandi til fjölda
ára.
Árið 1993 fóru síðan áhugamenn um
fjarskipti og skátun að spá í að stofna
sérstakt skátafélag um Radíóskátun.
Meðgangan og undirbúningur tók tvö
ár, félagið var stofnað 20. febrúar 1995.
Stofnfélagar koma víða að, meðal
annars úr Hjálparsveitum skáta og
ÍRA. Allir eiga það sammerkt að hafa
brennandi áhuga á fjarskiptum.
JOTA er ætíð hámark starfsins ár
hvert og er þá jafnan leitað til félaga í
ÍRA til aðstoðar og hefur það jafnan
verið auðsótt mál. Enn er JOTA byggt
upp á sömu grunnreglum og Les setti
fram í upphafi og í sama skátaanda og
þá var.
Vala Dröfii Hauksdóttir, TF3VDT
Björgvin heiðraður í Kína!
Fréttaritari Skátablaðisins í Kína Gil-Well-Gvin sendi okkur fréttabréf sem
gefið er út af Gæðastjómunarfélagi Alþýðulýðveldisins í Kína þar sem
forsíðufréttin er um viðurkenningu semfélagið veitti Björgvini Magnússyni
DCC fyrir skömmu.
Eins og kemur fram í forsíðugreininni hefur Björgvin verið nokkuð
þekktur í Kína fyrir störf sín að
þjálfun skátaforingja á Islandi en
þar í landi hafa menn nýtt sér að-
ferðir hans við ólíklegustu tæki-
færi. Björgvin sagði við þetta tæki-
færi: Isaka - Isaka - Isaka og eins og
kemur fram í fréttinni var því mjög
vel tekið og linnti ekki fagn-
aðarlátunum í rúma tvo klukku-
tíma. Þetta sagði Björgvin að sjálf-
sögðu á kínversku sem hann hefur
lært í bréfaskóla Skátablaðsins.
I greininni er þáttar Skátablaðs-
ins sérstaklega getið en Skátablað-
ið hefur verið sent inn á öll stærstu
bókasöfn í Kína við eindæma und-
irtektir. Skátablaðið óskar Björg-
vini og hans fjölskyldu til hamingu
með þennan heiður.
(S)Kátablaðið
s*
'TT'Í
1 *+*t*WÖRiÍiH+A£FiBt
þ fm ■
»T • æ^EE+íP •
j-wtrmmtw ■ imiaa»)««*i#MS
X(TR««» • .3P.aWW'k+IE*(k5(ja
18 • • /J'
■ Æ*K»>»isiwmntí
H’Wtmmiti ■ mszmjffw • m<¥
a**«i8ÆA / -Kiim-
ísífw# • wM(níi7*isiia®#S’j+*
Skátablaðið — 33