Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Side 34

Skátablaðið - 01.12.1999, Side 34
Norræn foringjaskiptaferð til Danmerkur 10.-20. janúar 1999 Aðdmgandinn að því að ég tók mér þessaferð á hendnr var sá, að áfidlorðins Gilwell-námskeiði á síðasta ári var Hallfríður Helgadóttir formaður alþjóðaráðs með fyrirlestur um alþjóðlegt samstarf skáta og sagði meðal annars frá þessum möguleika sem eldri starfandi skátaforingjar hafa. Þetta er verkefni sem skiptist á milli Norðurlandanna þannig að tveir komafrá einu landi sem sendir aðra tvo til baka. Á síðasta ári voru skipti Islands við Danmörku. Boðið er upp á 10-14 daga dvöl í landinu og eini kostnaður sveitarforingjans er ferðakostnaðurinn milli landanna. Ég sló til og óskaði eftir því að fá að koma til Danmerkur í 2. og 3. viku janúar. Ég hafði áhuga á því að kynn- ast starfi yngri skáta þar sem ég er starfandi sveitarforingi í ylfingasveit í Hraunbúum, og þá ekki síður að kynnast því sem er að gerast í tónlist- arskólum og grunnskólum á sviði for- skólakennslu, sem er mitt aðalstarf. Eftir nokkur bréfaskipti var stundin runnin upp og út var haldið. Var ég í góðu yfirlæti fyrsta daginn hjá Ann- ette Kaalund, sem starfaði á árum áð- ur á skrifstofunni hjá DDS (Det danske spejderkorps) við alþjóðamál. Fjögur bandalög Það eru fjögur skátabandalög í Dan- mörku, DDS; Det danske spejder- korps, blandað bandalag, KFUK, De danske pigespejdere, sem eru bara stelpur, KFUM, sem eru bæði strákar og stelpur og De danske Baptist spejdere, sem eru baptista skátar með blandað bandalag. Þessi bandalög að undanskildu KFUM sáu um dvöl mína í Danmörku. Var ég fyrri hlutann í umsjá KFUK skátanna og síðari hlutann í umsjá Baptista skátanna. ísland á dagskránni Ég fór á þrjá mismunandi fundi hjá ylfingaaldrinum. Fyrst hjá KFUK skátunum, þar sem rætt var um al- þjóðastarf og var það svolítið skondið að einmitt Island var tekið fyrir á þessum fimdi ásamt 4 öðrum löndum, en sveitarforinginn sem sá um fundinn vissi ekki af heimsókn minni og kom hún því þægilega á óvart. Stelpurnar voru vel agaðar og tóku þátt í öllu af lífi og sál þó ekki væru þær margar, einungis 9. Voru þær færri nú vegna foringjaskipta, en nokkrar hættu þegar nýr foringi tók við. Virðist mikil samvinna vera á milli skátafélaga á svæðinu um ýmis verkefni, m.a. annars þetta alþjóða- verkefni. Hjá Baptista skátunum fór ég á tvo fundi. Þeir hafa þann háttinn á að bjóða upp á heita máltíð áður en fundur hefst og geta foreldrar komið með börnunum og beðið eftir þeim og rætt málin yfir kaffisopa á meðan fundur fer fram. Eru það eldri skátarn- ir sem sjá um matseldina. Þetta er ekki flókinn matur en kannski eitthvað af því sem má elda þegar farið er í úti- leguna eða skálaferðina og því góður undirbúningur. Babtista skátarnir eru lítið bandalag og því oft langt að fara á fundi og oft hagstæðara fyrir foreldr- ana að hinkra eftir börnunum heldur en að fara heim og leggja strax af stað aftur til að sækja þau. Fimdirnir fara fram í kirkjum baptista eða þeirra húsakynnum. Á fyrri fundinum voru skátar á aldrinum 7-10 ára og var þeim eftir setningu skipti í tvo hópa, en þannig starfa þeir að jafnaði, yngri saman og eldri sér. Þau yngri voru að ljúka „ferð" til Kína, þar sem þau höfðu búið til kínverska hatta, borðað kínverskan ma‘t, hlustað á sögu frá Kína og núna voru þau að leika leiki sem kínversk börn leika sér í. Mowgli í kirkju Eldri hópurinn var með tunglskins- fund „fuldmáneaften", þar sem þema fundarins var úr Dýrheimabókinni- Var öll kirkjan undirlögð fyrir fundinn með ýmsum verkefnum, sem svo enduðu í litlu herbergi, þar sem út- búið hafði verið rjóður með klöppinni og fullu tungli. Akela tók á móti hópnum og sagði frá ævintýrum Mowgli. Þessi fundur var mjög skemmtilegur og gaf mér ýmsar hug- myndir. Það hefur líka mikið að segja hvernig foringinn er, hvort hann er lifandi eða steindauður. Á síðari fundinum sem var í öðru fé- lagi var þessu aðeins öðru vísi háttað og upplifði ég það hvað söngur er mikils virði, en einungis eitt lag var sungið, en aðalverkefni fundarins var: Að leita uppi upplýsingar í hinum ýmsu bókum; símaskránni, lestar- ferðaáætlun, kirkjuhandbókinni og fleira. Heldur voru spurningarnar of margar og tók því lengri tíma að svara en upphaflega var áætlað og hefur það kannski sett strik í reikninginn. Skát- 34 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.