Skátablaðið - 01.12.1999, Qupperneq 35
arnir á fundinum voru á aldrinum 7-
10 ára. Reynt er að hafa foringja á
hverja 5-6, þar sem þau yngri þurfa
naeiri aðstoð en þau eldri.
Skátastarf í Danmörku hefst á mörg-
um stöðum við 5 ára aldur, sem er þá í
formi leikfunda og smá uppákoma, Ef
verkefnið er t.d. eldur hjá þeim
yngstu, þá felur það einungis í sér að
kunna að kveikja á eldspýtu.
Mikið er gefið út af efni, og er DDS
nýbúið að endurútgefa sitt efni. Eru
þetta bæði bækur fyrir skátann sjálfan,
°g svo handbækur fyrir foringjana.
Skátahandbókin er nýkomin út í
endurbættu formi, þar sem bætt var
um ýmsum nýjum upplýsingum svo
sem um innflytjendur og fleira. Þá
hefur DDS gefið út náttúrufræðibók í
samvinnu við grunnskólana í Dan-
mörku, handbók sem bæði er hugsuð
sem kennslubók í skólum og til hjálpar
í skátastarfinu.
Skrifstofur í herstöð
Annars fór ég í heimsókn á alveg
nýja skrifstofu DDS skátanna sem er á
Arsenaleyju í Kaupmannahöfn. Skrif-
stofan er í næsta nágrenni við
Kristjaníu, í gömlum herbyggingum
frá síðustu öld, sem nýbúið er að taka
úr notkun og hefur svæðið nú verið
opnað fyrir almenning. Hefur banda-
lagið komið sér vel fyrir og eru nú allir
á sama stað, starfsráð, foringja-
þjálfunarráð, alþjóðaráð, ritstjórn og
svo allur almennur rekstur banda-
lagsins. Fjögur hús eru á staðnum,
skrifstofubygging, BP-hús, þar sem er
matsalur og eldhús auk stórra og
smárra fundarherbergja, þar sem hin
ýmsu félög geta komið og haldið
fundi, þá er þar líka svefnaðstaða fyrir
þá sem koma utan af landi, hús sem
hýsir skátaminjasafn það sem áður var
í miðborg Kaupmannahafnar og að
lokum er farfuglaheimili. Þá er að-
staða til að tjalda í næsta nágrenni. Er
þetta mikil breyting frá því sem áður
var. KFUK skátarnir eru líka komnir á
eirtn stað með skrifstofu sína og skáta-
búð.
Söngelskar stúlkur
Ekki dvaldi ég allan tímann í Kaup-
mannahöfn, heldur brá mér líka til Ar-
ósa og til Vejle. En þar á „Spejder-
bakken" í Vejle voru KFUK stelpurnar
með smáráðstefnu um hvert ætti að
vera hlutverk tónlistar á næstu stór-
mótum bandalagsins. Þær eru á því að
stofna skuli þrjár hljómsveitir með
píanói, bassa, trommum og einhverju
öðru hljóðfæri, sem spili á landshluta-
mótunum og fari í heimsóknir í fé-
lögin og kynni lög og annað sem flytja
á. Einnig kom inn í umræðuna hvort
gefa ætti út nýja söngbók á næstunni
eður ei, og hvernig ætti að kenna ný
lög sem oft lærast frá manni til manns,
hver væri besta leiðin til að koma
þeim á framfæri við fleiri. Ekki fékkst
nein lokaniðurstaða, en umræðan er
komin í gang. Var þetta mjög
skemmtileg helgi við söng og spjall, en
einn skátinn þarna var einmitt gest-
gjafi minn í Árósum.
Þetta var mjög skemmtileg ferð þar
sem ég kynntist mismunandi starfi
skátanna. Því er ekki að neita að DDS
er með mun meira úrval af námsefni
en við, enda mun fleiri. Bæði KFUK og
Babtista skátarnir leggja meira upp úr
kristilegri fræðslu enda upprunnin
þar. Þeirra starf fer fram í kirkjum eða
í nágrenni þeirra og eru ekki allar
vistarverur jafn skemmtilegar, en
margt er hægt að gera til að lífga upp
á og skreyta. Á einum staðnum deildu
skátarnir t.d. herberginu með æsku-
lýðsfélagi kirkjunnar. Verður gaman
að halda áfram samskiptum við þá
skáta sem ég hitti.
Með skátakveðju
Kristjana Þórdís Asgeirsdóttir
ylfingaforingi í Hraunbúum og
tónmenntakennari.
Ævintýraútilega Víkinga
Hólmverjar leggja mikið kapp á að
koma öllum flokkum sem pað
mega, í a.m.k. eina vetrarúti-
legu. Þeimfinnst það gera mikið fyrir
starfið og flokksandann.
I vetur var ákveðið að hafa þessar
útilegur með ævintýralegu sniði, þ.e.
þema hverrar útilegu er eitthvert
ævintýri sem skátarnir velja sér sjálfir.
Setning, slit og öll dagskrá útileg-
unnar miðast síðan út frá því
ævintýri. Fyrsta ævintýraútilegan í
vetur var farin af Víkingum og völdu
þeir; Jóa og baunagrasið.
Þetta var einnig fyrsta útilegan
þeirra og ekki annað hægt að segja en
að hún verði þeim eftirminnileg.
Skálinn, sem notaður er í þessar úti-
legur, er í c.a.10 mín. keyrslu frá
Stykkishólmi og stendur í skógrækt
(það er meira að segja hægt að villast
í skóginum). Umhverfið er sérstak-
lega skemmtilegt og skjólsælt. Það er
einnig frábært fyrir næturleiki, eins
og strákarnir í Víkingum fengu að
kynnast.
Með strákunum fóru foringjarnir
þeirra; Hrefna Dögg og Gunnar ásamt
skálaverði.
IÁ
Skátablaðið — 35