Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1999, Side 38

Skátablaðið - 01.12.1999, Side 38
Framhald afsíðu 37 Til Rússlands Þetta voru heilmiklir töffarar, í felulita- búningum, með sólgleraugu og klút um hausinn. Þeir virtust gera mikið af styrktaræfingum og höfðu m.a. súrrað saman æfingaslá og lyftingastöng með lóðum á tjaldbúðasvæðinu hjá sér. Hins vegar vantaði úthaldsæfingarnar, og þeir voru alveg jafn þreyttir og við eftir 20 km dagleiðir. Það var stórt at- riði í þessu hæki að taka sem minnst af mat með, og lifa frekar á skóginum. Þetta þýddi að mat- seðillinn var sveppir með kartöflubragði, sveppir með kjúkl- ingabragði, sveppir með sveppabragði, o.s.frv.. I skóginum var líka mikið af hindberjum og blá- berjum. Leiðsögumaður okkar í hækinu var hinn óstöðvandi Sasha. Hann leiddi okkur mjög örugg- lega í gegnum landslag þar sem einu kennileitin voru tré, fleiri tré, og nokkur tré í viðbót. Þar fyrir utan voru svo stólpar með máluðum númerum sem samsvöruðu hnitakerfi á kortinu. Fyrsta daginn gengum við framhjá áætluðu tjaldsvæði og gistum nokkrum kíló- metrum norðar. Það kom ekki að sök, þar sem tjaldstæðið var gott. Við gerðum hinsvegar þau mistök að útbúa opið skýli sem ekki var moskítóhelt. Þetta leiddi til stórveislu hjá moskító- samfélaginu í kring, og takmarkaðs svefns hjá okkur. Annar dagurinn byrjaði með smá- vægilegri rigningu sem síðan þróaðist yfir í grenjandi rigningu og þrumu- veður, og endaði loks á svakalegu hagl- éli. Höglin voru upp í sentimeter í þver- mál, og frosin í gegn, eins og einhver hefði tæmt úr ísmolabakkanum og grýtt innihaldinu yfir okkur. Öll él stytti þó upp um síðir og eftir að hafa þurrkað það helsta og snætt sveppi með kjúklingabragði var haldið áfram á nátt- stað. Þar ákváðum við að endurtaka ekki moskítóveisluna frá nóttinni áður og tróðum okkur þess í stað fjögur í tveggja manna tjald. Þetta fyrirkomulag reyndist mun betur en skýlið og vöknuðum við end- umærð og skokkuðum síðasta daginn. Lokasprettinn rérum við á kanó og fengum stórkostlega sólseturssiglingu eftir Vetlugaánni. Þó flestum finnist nóg um þriggja daga hæk bættu Þjóðverjamir sem á mótinu voru um betur. Þeir höfðu byrjað ferðina austur í Uralfjöllum og vom þar að labba milli Evrópu og Asíu í nokkra daga. Foringi þessa hóps er Is- landsvinurinn Funko, stórskemmti- legur karakter sem hefur farið með sveitina sína út um allan heim. Funko og félagar standa utan skátasambanda, og voru einmitt nýkomnir af stofnfimdi alþjóðasambands skáta sem vilja standa utan alþjóðasambanda. (WFIS - World Federation of Independent Scouts) Dagskráin Einn daginn fórum við í heimsókn í næsta þorp, þar sem Rússneska Skáta- sambandið er með heilmikla starfsemi, þ.á.m. tvö skátaheimili. Þetta klukku- tíma akstur á „skátatmkknum", heil- miklum sex hjóla hertrukk sem Skáta- sambandið eignaðist einhvem veginn. Það vora bekkir fyrir sextán manns á pallinum, og mikið fleiri gátu setið á milli bekkjanna, gamaldags íslensk mjólkurbílastemming. ígor, skáta- höfðingi Rússana, er aðalbílstjóri þessa tryllitækis og minnir um margt á Bjössa á mjólkurbílnum. Honum tókst m.a. að keyra trukkinn út í skurð á leiðinni, og þurfti stærðarinnar timburflutninga- trukk til að ná honum aftur upp á veginn. Þorpið var á svipuðu stigi og Is- land fyrir stríð. Þar var eitthvað af síma- línum, og rafmagn í flestum húsum, en í skátaheimilunum tveimur vantaði allt sem heitir pípulagnir. Það var vatns- krani úti í götu fyrir nokkur hús í kring, og kamar úti í garði. Aðalgatan í þorpinu var malbikuð, en allir hliðar- vegir eins og alvöm íslenskir malar- vegir. Við brugðum okkur þarna í rússneskt gufubað, Banya, og komum endumærð til baka á mótssvæðið. Annan dag fórum við í all svakalega loftfimleika. Rússamir höfðu sett upp pall milli þriggja trjáa í ca. 15 metra hæð á vatnsbakkanum (bakkinn var hár, þannig að það vom hátt í 20 metrar niður að vatninu). Frá þessum palli var síðan ræfilsleg (tveir trjábolir, ekkert handrið) brú yfir í næsta tré. Ur því tre var síðan strengd lína yfir á hinn vatns- bakkann (20 metmm neðar). Síðan var málið að klifra upp á pallinn, fara yfir brúna í hitt tréð, og láta sig síðan gossa (sbr. James Bond) eftir bandinu í átt að vatninu, hangandi í sigbelti. Síðan stoppaði maður yfir eða í miðju vatninu, allt eftir þyngd og byrjimar- hraða. Alþjóðadagur var haldinn fljótlega eftir mitt mót, og áttu þar útlend- ingamir að kyrtna sín lönd. Dagmar sló í gegn með landkynningarplakötum með rússneskum texta. Þar komu fram helstu kostir lands og þjóðar, eldfjöll, heitir hverir, enginn her og engar moskítóflugur. Við komum einmitt a mjög uppbyggilegu samstarfi við rússneskar moskítóflugur, sem fól í sér ríkulegar blóðgjafir af okkar hálfu. Ameríkanamir stungu upp á leiðtoga- fimdi milli manna og moskítóflugna þat sem unnið yrði að samkomulagi, þannig að flugumar létu okkur vera, en fengju í staðinn hóflegan aðgang að blóðbönkum heimsins. Indjánaleikar Síðustu daga mótsins vom haldmr miklir indjánaleikar. Hver sveit útbjó sig sem indjánaættflokk og kom síðan fyrií indjánahöfðingjann og kynnti hópinn og færði höfðingjanum gjafir. Kvenna- veldið í Kondór og íslenska hópnum notaði þá tækifærið og hneppti karlkyns meðlimi hópsins í þrældóm. Þrælarmr voru síðan gefnir höfðingjanum við ha- Þó gangan sé erfið og leiðin sé löng... Kristbjörn, Dagmar, Siggi, Katja og Sara gangafrá lestar- stöðinni á mótsstað 38 — Skátablaðið

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.