Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 01.11.1963, Side 5

Ný vikutíðindi - 01.11.1963, Side 5
NT VIKDTIÐINDI 5 Þegar Jólíana Hollands- drottning var lítil og hátíða- höld fóru fram í höfuðborg- inni, stóð hún á hallarsvöl- unnm ásamt allri konungs- f jölskyldunni, meðan tugþús undir manna hylltu Vilhelm- fnu móður hennar, sem var drottning í Hollandi 1890— 1948. Þegar litla prinsessan sá ihið fagnandi mannhaf, sagði Ihún: „Mamma, á ég einhvem tíma að eiga allt þetta fólk?“ „Nei,“ svaraði móðir henn ar, „en einhvem tíma á það að eiga þig.“ Vilhjálmur H. Þýzkalands keisari 1888—1918 hafði mikið sjálfstraust og tók sjálfur að sér að gera allar teíltningar að nýju herskipi, sem hann 'svo afhenti sjó- hermálaráðherra sínum. Frásagnir um Nokkur tími leið, og dag 'einn spurði keisarinn ráð- herra sinn: „Þér hafið eklri sagt mér neitt um teikningamar að nýja herskipinu mínu. Er ekld allt í lagi með þær?“ „Ja ... yðar hátign ... öh ... “ „Vora í áætlunum mínum ekki aflmeiri vélar í því en nokkra öðra herskipi?“ „Jú, yðar hátign.“ „Var ekki gert ráð fyrir að það yrði bezt vopnaða hersltip í heimi?“ „Jú, yðar hátign.“ „Og hafði það ekki fleiri fallbyssur en nokkurt ann- að herskip í veraldarsög- unni ?“ „Jú, yðar hátign.“ „Nú, en hvers vegna hafið þér ekki látið mig heyra neitt meira frá því. Hvað er athugavert við skipið mitt?“ „Æ ... öh ... bað gæti aldrei flotið, yðar hátign.“ Kristján IV. konungur Danmerkur og Noregs 1588 —1648 kom einu sinni í heim sókn í tollbúðina á Helsingja eyri, sem var ein helzta tekjulind hans. Hann athugaði allt hátt og lágt og spurði m. a. tollþjón einn: „Nú, hvað fær hann svo í Iaun?“ Tollþjónninn, sem gjaman vildi svara hátíðlega, sagði, án þess að gera sér grein fyrir hvað í orðunum fólst: „Laun mín era „per fas et nefas“ (þ. e. með réttu og röngu) 600 ríkisdalir á ári, yðar liátign.“ „Hvað, skilur hann Iat- ínu?“ spurði kóngurinn þung brýnn. „Nei, yðar hátign,“ svar aði aumingja tollþiónninn. „Þakki hann guði fyrir það,“ sagði kóngurinn. fyrir prestskosnmgar, er fram eiga að fara í Reykjavíkurprófastsdæmi í lok nóv- ember eða í byrjun desember n.k., liggja frammi á eftirtöldum stöðum frá 1. til 9. nóvember n.k. að báðum dögum meðtöldum: Fyrir NESPRESTAKALL í Apóteki Vesturbæjar Melhaga 20—2" — HÁTEIGSPRESTAKALL í Sjómannaskólanum. — LANGHOLTSPRESTAKALL í Safnaðarheimilinu, kl. 4—1" — ÁSPRESTAKALL í Landsbankanum, Langholtsútibúi. — BÚSTAÐAPRESTAKALL í Bókabúðimii, Hólmgarði 34. — GRENSÁSPRESTAKALL í Biðskýlinu við Hvassaleiti. Takmörk prestakallanna eru greind í auglýsingu dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins í Lögbirtingarblaðinu 31. ágúst s.l. Kærufrestur er til kl. 24 19. nóvember 1963. Kærur skulu sendar formanni viðkomandi safnaðarnefndar. Kosningarétt við prestskosningar þessar hafa þeir, sem búsettir eru í presta- kalli, þar sem kosning fer fram, hafa náð 21 árs aldri á kjördegi og voru í Þjóð- kirkjunni 1. des. 1962, enda greiði þeir sóknargjald til hennar á árinu 1963. Þeir, sem síðan 1. desember 1962 hafa flutt í prestakall, þar sem kosning á sér stað, era ekki á kjörskrá þess eins og hún er lögð fram til sýnis, og þurfa þeir því að kæra sig inn á kjörskrá. Eyðubiöð undir kærar fást hiá Mantals- skrifstofxmni Pósthússtræti 9. Manntalsskrifstofan staðfestir, með áritun á kær- una, að flutningur lögheimilis í prestakallið hafi verið tilkynntur og þarf ekki sérstaka greinargerð um málavexti til þess að kæra vegna flutnings lögheimilis inn í prestakall, verði tekin til greina af safnaðamefnd. Þeir, sem nú eiga heima í prestakalli, þar sem kosning fer fram, en vora samkvæmt ltiörskrá við alþingis kosningar í sumar staðsettir annars staðar, og utan þess prestakalls. sem þeir era nú í, verða samkvæmt traman sögðu allir að kæra sig inn á kjörskrá, ef þeir vilja neyta kosningaréttar við höndfarandi prestskosningar. Þeir, sem flytja lögheimili sitt í prestakall, þar sem kosning fer fram, eftir að kærufrestur rennur út 19. nóvember 1 n63. verða ekki teknir á kjörskrá við- komandi prestakalls. Reykiavík, 30. október 1963 SAFNAÐARNEFNDIRNAR \ Iíristján IX., sem var kon ungur í Danmörku 1863— 1906, leiddi heimsspekinginn Harald Höffding afsíðis eft- ir kvöldveizlu á Amalien- borg og spurði hann gæti- lega: „Segið þér mér, Höffding, hvað táknar eiginlega þessi sósíalismi, sem svo oft er talað um í dagblöðunum ?“ Höffding gaf fyrst stutt- orða skýringu á hugtakinu og fór svo að ræða um verk efni bau, som sósíalistar teldu brýnast þessa stund- ina, sem byggðust á óánægju með Iangan vinmitíma, hið Iága kaup, slæm húsakynni, gleðisnautt líf o. s. frv. Þegar konungurinn hafði hlnstað á betta, greip hann fram í: „Jæja, svo beir eru óánægðir. Höffding. Nú, en þeir hafa Tívolí.“ Þegar Kristián X, Dana- konunfmr 1912—1947 kom i heimsókn í Tuhor*röIgerð- ipa árið 1920 varð honum starsvnt á ölarerðarmann, er Va^^Rg^a' lah(ít 100 kg. að byngd. „Hvað drekkið bér eigin- !ee-a m:kið?“ spurði konung urinn. ,.F5nn til tvo á dag,“ svar CTði hinn. ..Það fnrðar mig,“ svar- eði konungurinn, ..hví hað er "l-’ki meira év drokk shllf ur — og held ég mér bó all- nrö»'num.“ „Eg humsa nð kemmgur- 5nn misskilii mig. F«r á við kassa ... “ Þegar Birck prófessor varð rektor magnifietis í Kaupmannahafnarháskóla var hann boðinn i heimsókn til Kristiáns konungs X, er spurði hann vingjarnlega. hvernig honum liði í sinni nýiu heiðursstöðu. „O. jæja, það er dálítið erfitt að eiga að leika fín- an mann í heilt ár, hegar maður í rauninni er dálítill hóhemi.“ „Eg skil yður,“ svarar konunmtrinn. ,.en hugsið þér yður þá mig!“ Kristján X. hringdi dag nokkurn til eins af sínum góðu vinum. Stúlkan, sem svaraði í símann, sagði að húsbónd- inn væri ekki heima, en hún gæti tekið skilaboð. „Já,“ sagði kóngurinn. „Þér getið skilað kveðju frá kónginum.“ „Frá hverjum?“ spurði stúlkan. „Frá kónginum.“ Þetta fannst stúlkunni vera full ósvífið, svo hún spurði þóttalega: „Afsakið, en má ég fá númerið yðar?“ „Já, ég er sá tíundi.“ ★ í veiðiferð á józltu stór- búi, þar sem Friðrik IX. Danakonungur var meðal veiðimannanna, fylgdi einn þeirra kontmginum eins og skuggi. Þegar þeir læddust gegnum þéttan runnagróð- ur, til bess að komast í skot- mál við stórt rádýr, steig veiðimaður þessi hvað eftir annað á hæla konungínum. — Loks sneri kóngurivm sér að manninum og sagði: „Eg hef alls ekkert á móti því að þér fetið í fót- spor mín ... en, leyfið mér að komast úr þeim fyrst.“ Þegar Filippus hertogp af Edinborg og eiginmaður Bretadrottningar var eitt sinn í heimsókn á Nýju Gu- inea, gaf innfæddur höfðingi honum fallega kuðungaháls- festi. Hertoginn þakkaði gjöf- ina með nokkram fögrum orðum og fullvissaði gefand- ann um að hann hlakkaði til að færa Elízabetu drottn- ingpi festina. Höfðingin-' laut bá að eyra hans og hvíslaði: „Mér finnst sjálfsagt að vekia athygli yðar á því, að ef þér seljið keðjuna hér, getið þér fengið sex svín fyrir hana. Fðn f jórar kon- ur.“ Einu sinni, þegar nokkr- ir gestir voru staddir hjá Napóleon mikla langaði keis arann til þess að fletta upp í einhverri bók, sem var uppi í efstu hillu bókaskáps- ins. Þegar hann gerði til- raun til að ná í hana, hljóp ungur herforingi til og sagði: „Leyfið mér, yðar hátign. ég er stærri en þér.“ „Stærri?“ sagði Napóleon. „Þér meinið hærri(!“

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.