Ný vikutíðindi - 22.01.1965, Qupperneq 3
NY VIKUTÍÐINDI
3
bændur ásökuðu stjórnina
um þrælkun, þegar lagðar
voru fram áætlanir um að
stækka 7-8 kúa meðalbú.
Bóndinn hrópaði upp yfir
sig af undrun, og bætti síð-
an við: „Landbúnaður bygg-
ist á tækni, þekkingu og
skipulagi.“
Þetta jafngildir því að 80
smábændur með frjálst hug-
arfar, framleiða á við 6000
íslenzka bændur.
Pólitískur landbúnaður.
Ég segi eins og konan:
>.Þetta er ekki að tala illa
um neinn, þetta er bara
satt.“ Staðreyndir eru grund
völlur allra framfara.
Vandræðin í íslenzkum
landbúnaði stafa að nokkru
af stjórnmálaástæðum, órétt
látum kosningalögum og mis
rétti í gildi atkvæða í þing-
kosningum. Róttækar fram
farir í sveitum geta þvi
fellt hvaða stjórn sem er.
I öðru lagi eru forystu-
uienn bænda værukærir og
þröngsýnir, vegna skorts á
samkeppni, sem stafar af
ríkisvemd og ófrelsi í við-
skiptum. Margir svífa í sælu
vímu af að virða fyrir sér
miðaldabúskap í rómönsku
löndunum og í N-Evrópu.
Þeir skipuleggja ódugnað og
athafnalöngun bóndans, með
því að einblína á verka-
mannatekjur og 7-8 kúa með
albú, með yfir 117. þús. kr.
meðalstyrk úr ríkissjóði.
Ef ísl. bændur vilja standa
í persónulegum tengslum við
nokkrar kýr, þá er það ekki
vinna heldur sport sem þjóð
in á ekki að styrkja fremur
en gullfiskarækt i stofu eða
þótt einhver eigi 3-4 sport-
hesta. Þetta er hvorki út-
gerð né landbúnaður: það er
einkamál eigandans, sem á
enga kröfu á ævilangri fjár
kúgun á skattgreiðendur.
Úreltir leiðtogar.
Bóndinn á Miðhúsum skrif
aði nýlega í blað, að afkoma
bænda byggðist fyrst og
fremst á „dugnaði, kaup-
lausu skylduliði og að
nokkru á fjármálaviti." Það
bendir til þess að þessi stétt
séu fávitar og steinaldar-
menn með pólitísk gleraugu.
Þeir hafa gleypt kenningu
framsóknar-sérfræðings sem
vill stækka meðalbú um
hluta úr kú á ári.
Ef bóndi í Rhodesíu vill
hafa meiri tekjur, féflettir
hann ekki þjóð sína, heldur
fær sér stærra land eða bæt
ir við sig þúsund kindum
eða 100 kúm. Sá rómantíski
hugsunarháttur, að smábýli
skuli rekið eins og leigubíll,
þar sem einn maður gerir
allt, verður að vikja fyrir
breyttum aðstæðum.
Sérfræðingar á Islandi
hugsa í metrum og hektur-
um, þegar sérfræðingar í
Rhodesíu (221 þús. hvítir
íbúar) framkvæma ræktun á
3-400 ferkm. í einu.
Afleiðing þessarar aftur-
haldsstefnu er: að á íslandi
verpir hæna eggi sem kostar
6 kr. í búð en 1-2 kr. í
öðrum löndum, smjör er um
5 sinnum dýrara, svo dæmi
sé nefnt.
Hér verður skynsemi að
ráða og flytja verður inn
hluta af búvörum. Þá má
spara vinnuafl í sveitum í
þúsundatali, bændur geta þá
stundað þjóðnýt störf í fiski
og iðnaði, greitt skatta og
tekið virkan þátt í uppbygg-
ingu landsins eins og annað
fólk.
Dagar Haraldar hár-
hárfagra.
Þegar skattgreiðendur
verða að þarflausu, vegna
pólitískra afglapa í áratugi,
að greiða um 50.000 kr. ár-
lega fyrir ekkert, til að
framfleyta 6000 gervibænd-
um, sem skila 1% afköstum
að staðaldri, þá er eitthvað
að sem verður að laga.
Þar sem ekki er hægt að
koma lögum yfir þá menn,
sem þannig hirða' um helm-
ing af árstekjum launþega
fyrir ekkert, þá finnst mér
við vera komnir aftur á
sama stig óréttar og á dög-
um Noregskonunga, þegar
landsmenn urðu að flytjast
úr landi í stór-hópum.
I Laxdælu segir, að „betra
sé að fá skjóta sæmd
en langa svívirðu," en hana
virðast íslendingar vera
farnir að þola furðu vel,
eins og í ofangreindu tilviki.
Svo mikið er víst, að ég
hefi ekki geð í mér, fyrst
um sinn, til að verðlauna
vifLeysuna lengur með um
50.000 kr. á ári, jafnvel þótt
ég hefði viðunandi vinnu-
stað í mínu fagi, ásamt stað
aruppbót eins og kennari á
Vestfjörðum. Ég hefi talað
við fólk, sem flutzt hefur
úr landi m. a. af þessum
ástæðum, og fleiri munu að
sjálfsögðu fara á eftir, ef
ekkert verður að gert.
Ég enda svo þessi skrif
með því að taka undir orð
nokkurra landbúnaðarsér-
fræðinga, sem samþykktu að
„betri og ódýrari landbúnað-
arvörur, það væri eitt helzta
sjálfstæðismál þjóðarinnar".
Kitað í janúar í Johann-
esarborg, S-Afríku.
Viggo Oddsson, mjmdmæl-
ingamaður.
KOMPAN
Hálfónýtur útvarpssendir - Þverbrotin reglu-
gerð - Köld kvikmyndahús - Otti við mótel-
rekstur - Hundahald sé leyft.
GUÐMUNDUR Amlaugsson, skýrði
frá því í skákþætti sínum, eigi alls fyr-
ir löngu, að svo kynlega hefði viljað til,
að engar lausnir bárust frá Norður- og
Austurlandi, þar sem þátttaka var þó
vön að vera allmildl.
Þótti hinum ágæta skákmanni þetta
nokkurri furðu sæta og er það senni-
íega vegna þess að hann veit ekki á-
stæðuna.
Sannleikurinn er víst sá, að Norðlend
ingar, og þá síður Austfirðingar, heyra
stundum vikum saman, sáralítið í
Reykjavíkurút\rarpinu.
Hefur oss verið tjáð, að sumsstaðar
á Austfjörðum séu menn bókstaflega
hættir að láta sér detta í hug að hlusta
á Útvarp Reykjavík, en hlusti í þess
stað á norskar stöðvar, eða jafnvel
enskar.
Austfirðingar eru að sögn æfir yfir
þessu óréttlæti, því ekki mun standa á
því að innheimta afnotagjöld þar frem
ur en annars staðar, en þó er trúlegt
að þeim gremjist enn meir, ef þeir
komast að því, að nú um all langan
tíma hefur verið útvarpað með sendi,
sem hefur aðeins 20 kílóvatta styrk og
er það að auki hálfónýtur (nýtist ekki
nema um það bil að 35%).
Til þess er ætlast, að Reykjavíkur-
stöðin sendi með 100 kflóvatta styrk,
og mundu þá flestir landsmenn heyra
sæmilega í tækjum sínum.
Að vísu geta Norðlendingar og Aust-
firðingar huggað sig við það, að verið
er að ganga frá nýjum sendi, sem heif-
ur sæmilegan útsendingarstyrk og mun
verða tekinn í gagnið í febrúar-marz,
og er þá vonandi að mönnum renni
reiðin í eitt skipti fyrir öll.
*
ÞAÐ er fróðlegt að glugga í reglu-
gerð um gisti- og veitihgastaði.
Það er bókstaflega óhætt að segja að
varla er sú klásúla til í því ágæta
plaggi, sem eklá er þverbrotin af flest
um veitingahúsum borgarinnar.
Það er ekki úr vegi að birta til dæm-
is ein grein, tekna af handahófi úr
plagginu, 26. gr.:
Starfsfólk veitingastaða skal vera
hreinlega og snyrtilega til fara. Það
skal koma fram við gesti af fyllstu
kurteisi og tillitssemi. Starfsfólki ber
að inna öll störf af höndum svo hljóð-
lega sem kostur er, og því ber að forð-
ast allt það í orði og verki, sem gest-
um má til ama verða.
Ja, það er ekki að ástæðulausu, sem
manni blöskrar þjónustan á sumum
veitingastöðum höfuðstaðarins.
* ______
EF forráðamenn kvikmyndahúsanna
í bænum ætla ekki að drepa gestina úr
lungnabólgu, ættu þeir að sjá sóma
sinn í því að kynda almennilega í
ltuldakastinu.
Þetta á að sjálfsögðu við um Stjörn-
bíó, ekki síður en hin húsin.
* ______
MIKILL úlfaþytur er nú í Hvera-
gerði austur út af væntanlegu „mót-
eli“, sem þar er í ráði að reisa.
Skutu Hvergerðingar á fundi eigi
alls fyrir löngu og kom þar í ljós, að
mikill ótti hafði gripið um sig í pláss-
inu út af því að þama stæði til að
hefja einhverja ósiðsamlega starfsemi,
eða jafnvel pútnahús.
Það er víst óhætt að róa Hvergerð-
inga með því, að þarna stendur víst
aðeins til að hafa hótelrekstur með
amerísku sniði og að þeir, sem á annað
borð hafa einhvem hug á að halda
framhjá og gera hitt, gætu það sjálf-
sagt þótt þessarar stofnunnar nyti ekki
við.
*_______
OG nú þarf að fara að banna borg-
arstjóminni að banna hundahald í borg
inni.
Það em ekki nema sjálfsögð mann-
réttindi að fólk fái að hafa hund ef
það lystir, og eitt er víst, að skemmti-
legur hvolpur eða kettlingur getur átt
sinn stóra þátt í því að gera heimilis-
líf skemmtilegt einkanlega fvrir böm-
in.
B ö R K U R