Ný vikutíðindi - 22.01.1965, Side 4
4
NÝ VIKUTÍÐINDI
Benedikts-
synir....
(Framh. af bls. 1)
Thors á Reykjanesskagamim
mun nú von bráðar fá setu
á alþingi, og kann vel svo
að fara að hann vilji njóta
þeirra valda, sem hann telur
sig réttborinn til.
Árni heitinn Pálsson sagði
fyrir þrjátíu árum, að eftir
30 ár yrðu þrjár ættir alls-
ráðandi á íslandi: Thorsara-
ættin frá Húsavík og vitr-
arættin frá Húsavík og vitr-
ingar frá Veðramóti.
Thorsaraættin, eða Kveld-
úlfarnir eins og þeir hafa oft
verið kallaðir í daglegu tali,
er ein valdamesta ætt lands
ins, og eru völd Hafstein-
anna í skjóli þeirra og tengd
um. En svo eru það synir
Benedikts Sveinssonar, fyrr-
verandi alþingisforseta, og
frú Guðrúnar Pétursdóttir
frá Engey, sem að vísu
með sama skjóli og tengdum
hafa komizt til valda og met
orða.
Jón Pálmason frá Akri j
hafði það eftir frú Guðrúnu
Pétursdóttir, móður þeirra
Benediktssona, að Bjarni!
sinn væri gáfaðustur, Pétur
sinn væri skemmtilegastur i
en Sveinn væri stærstur.
Benediktssynir.
Að óbreyttum, eða lítt
breyttum, valdahlutföllum i
landinu, bendir margt til
þess, að þeir Benediktssynir
haldi áfram að verða oddvit
! ar í valdaaðstöðinni í land-
inu á næstu árum. Dr.
Bjami er nú þegar forsætis-
ráð'herra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Pétur, bróð-
ir Bjama, er allsráðandi i
Landsbankanum og bíður að
eins nýrra alþingiskosninga,
til þess að taka sæti á Al-
þingi og þá kann að verða
; stutt í setu á ráðherrastóli.
Bróðir þeirra Bjarna og
Péturs, Sveinn, er einn auð-
ugasti maður landsins, sem
i heldur mörgum þýðingar-
mestu þáttum atvinnu- og
fjármálavaldsins í höndum
sér og má kallast einráður
um síldariðnaðinn og síldar-
verzlunina í landinu. Væri
hann ekki ólíklegur til þess
að taka sæti Péturs bróðurs
síns í Landsbankanum. Fer
þá valdaaðstaða um margt
að minna á þau valdahlut-
föll, sem í landinu ríktu á
Sturlungaöld.
Fylkisstjórar
ríkisvaldsins.
I næsta valdaþrepinu
standa svo skuldakóngarnir,
j sem eiga að vera nokkurs-
konar atvinnulegir fylkis-
stjórar ríkisvaldsins til þess
að stýra atvinnurekstrinum,
bæði í Reykjavík og út um
hinar dreifðu sjávarbyggðir
landsins. Skuldakóngarnir
hafa fasta búsetu í Reykja-
vík og stýra þaðan ríkjum
sínum, einkum og sér í lagi
með hinum algem umráðum
sínum yfir bönkunum.
Skuldakóngar ríkisstjórn-
arinnar eru fyrst og fremst
menn, sem hafa hreiðrað um
sig í fiskiðnaðinum og notað
ríkisvaldið til þess að mata
sig á ríkisstyrkjum og alls
konar fríðindum á kostnað
þjóðarheildarinnar, og miða
atvinnurekstur sinn ekld
sízt við það, að vega aftan
að gengi íslenzkrar krónu
með óábyrgri spákaup-
mennsku ásamt ráðum sín-
um yfir útflutningi sjávaraf-
urða.
Fiskiðnaðurinn.
Það kemur mjög til álita,
þótt vansi sé að því að
skýra frá því opinberlega, að
mikill vafi leikur á því,
hvort íslenzkur frystiiðnað-
ur í núverandi mynd eigi
rétt á sér, þegar útkoman er
sú, að langtum meira fæst
fyrir fiskinn fluttan ísvarinn
á erlendan markað. Þá er
það þjóðin, sem verður að
gefa með fiskinum allan
vinnslukostnaðinn af hinum
dýru fiskvinnslustöðvum og
öllu því sem þessu fylgir, því
á meðan að fólk skortir i
landinu til allra starfa sýn-
ist óþarft að halda uppi at-
vinnubótavinnu.
En svo er þetta skrítna,
sem aldrei fæst skýrt, að
þjóðirnar, sem kaupa ísfisk-
inn íslenzka, þær sömu þjóð-
I ir vinna þennan fisk og
selja hann á sömu markaði
sem íslenski freðfiskurinn er
seldur á og það með góðum
árangri.
Er það ekki sitt af hverju,
sem þarf endurskoðimar við
í fiskiðnaðinum íslenzka?
Siðgæðið.
Svo að baki þessu öllu
kemur svo viðskipta- og f jár
málasiðgæðið. Skuldakóngar
halda opinberlega banka-
stjórn og starfsliði bankanna
dýrar drykkjuveizlur og
greiða veizluföngin með láns
fé frá bönkunum.
Veðsvik skuldakónga og
veðsetningar undir röngum
og villandi nöfnum eru látn-
ar eins og vind um eyru
þjóta, á sama táma og verið
er að eltast við unglinga,
sem hafa gerzt fingralangir
í sambandi við sælgæti og
. nokkra sígarettupakka.
Konungur jazzins
Louis
* v
Armstrong
og „ALL STAR“ hljómsveit hans
heldur hljómleika í Háskólabíó, 7. og 8. febrúar
n. k. kl. 7.15 og 11.15 báða dagana.
Aðgöngumiðar hiá Lárusi Blöndal, Vesturveri
og Skólavörðustíg. — Sala hefst fimmtudaginn
21. janúar.
Tryggið yður miða strax.
KNATTSPYRNUDEILD
VIKINGS
Einn af stórbankastjórum
landsins er talinn stærsti
veiðarfærasalinn í landinu.
Einar ríki.
Svo kemur Einar ríki í
flokki, stórbrotinn um margt
og ókvalráður um að gera
kröfur á ríkisheildina'og hef
ir þar náð mestum árangri,
sem þekktur er.
Síðasta herbragðt Einars,
eftir að vera búinn á árinu
sem leið að ná undir sig 100
milljónum til nýrrar fjárfest
ingar, er að vega aftan af
þeim útflutningssamtökum,
sem hann hefir tekið þátt í
að byggja upp, með því að
segja sig úr samtökunum og
kljúfa sig út úr útflutnings-
samtökunum.
Mönnum ber allskostar
saman um það, hvað standi
að baki þessu síðasta brölti
Einars ríka. Þótt Einar sé
stjórnarsinni af atvinnu- og
hagsmunaástæðum, þá ger-
ist hann nú all-nærgöngull
við ríkisvaldið. Hann sækir
svo fast að óskabarninu,
Eimskipafélagi íslands, að
við fjárhagsafhroði liggur,
segir einn af ríkustu og bezt
uppbyggðu fyrirtækjum
landsins, Kassagerðinni,
stríð á hendur, heldur tug-
um milljóna af ríkisfénu
bundnu í vanskilaskuldum
sínum, þureys banka og lána
stofnanir og sækir fastast
að þeim fyrirtækjum, sem
stjóminni eru kærust og
annast um.
Herbragð?
En Einar er nú samt stadd
ur á nokkuð vandasömum
vegamótum. Á vori komanda
á Einar völ á milli þess að
taka úrsögn sína úr Sölu-
miðstöðinni aftur, til að
halda þar áhrifavaldi sínu,
eða að verða með öUu út-
undan þar.
Þó er það ef til vill veik
asti punkturinn hjá Einari,
að valdamenn innan Sölumið
stöðvarinnar kjósa ekkert
frekar en að losna við hann.
Ein tilgátan er aftur á
móti sú, að Einar hyggist
ætla að láta neita sér um
útflutningsleyfi fyrir einka-
rekstur og krefjast þá aftur
á móti, að aðrir nýliðar í
útflutningi verði líka út-
flutningsleyfuum sviptir.
Mim hann meðal annars
treysta á það, að Jörgensen,
sem mest hefir slegið um sig
á undanförnum tveimur
árum, haldi áfram að vera
á rauðu ljósi hjá viðskipta-
og gjaldeyrisbönkunum, og
kratastuðningurinn hætti þá
að duga Jörgensen.
En þróun þessara mála
hlýtur að skýrast nokkuð nú
á næstu mánuðum. (x + g)
petra
— ýzka kvennablaðið óviðjafnanlega. )
☆ Janúarblaðið er nú komið í allar bókabúðir. j
☆ í þessu hefti eru meðal annars snið- og sauma- )
, leiðbeiningar á dönsku um 30 glæsilega grímu- )
, búninga. )
GLAUMBÆR
Hljómsveit FINNS EYDALS ásamt HELENU.
Borðpantanir í síma 11777.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19,00.
GLAUMBÆR
SlMI 11777 og 19330
é>-----------------------------<s>