Ný vikutíðindi - 12.05.1967, Page 6
6
NY VIKUTlÐINDI
rt-tt-k-K-k-k-tHc-k-k-K-tc-tfk-Mc-Mc-lc-tt-k-íc-*
i J
* $
ROÐULLj
i
* Hln vinsæla
★
★
í HLJÓMSVEIT
|
fMagnúsar
llngimarssonar
í
★
I
1
☆
Söngvarar:
vilhjalmur
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
♦
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
í
í
t
t i
} VILHJALMSSON ¥
I og
t
J ANNA VILHJALMS -
* ¥
★ ¥
* ¥
{ Símí 15327. J
★ ¥
* ¥
A1 ¥
* Matur framreiddur frá ¥
t kl. 7. »
í í
.tc-tc-tc-tc-tc-tc-tc-tc-ic-tc-lc-tc-tc-tc-tc-lc-ic-tc-tc-lc-k-tc-tcn
KLÚBBURINN
Hljómsveit
ELFARS BERGl
Söngkona:
MJÖLL HÖLM
Italski salurinn: X
?
y
RONDÓ-TRÍÓIÐ ?
I
I
l
l
x
í
|
I
---------1:
LÆKJARTEIG 2, |
| SÍMI 35 3 55 |
KLUBBURINN
NY FRAMHALDSSAGA
N E^TARMYN DAMORÐIN
^
Eftir I. G. Edmonds
Hver í ósköpunum gæti lifað slíku lífi annar en arab-
iskur olíusjeik eða kviikmyndaframleiðandi 1 Hollywood ?
hugsaði ég, en það kom ekki rétt vel heim í þessu til-
felli. Og mér vitanlega hafði ég aldrei troðið slikum
höfðingjum um tær.
Eg var ennþá í hnipri á gólfinu og lézt vera yfirbug-
aður, svo að hann væri síður á verði, þegar ég léti til
Skarar skríða. Eg hafði ekki efni á því að láta lúskra
svona á mér, án þess að gjalda lí'ku líkt. I mínu starfi
verður maður að hafa orð á sér fyrir að vera sprækari
en allir aðrir, annars er maður búinn að vera.
En meinið var bara það, að hann hélt um marghleyp-
una og stóð uppréttur en ég sat á gólfinu. Ef ég gerði
tilraun tli að standa upp, var hann vís til að hamra mig
niður úr gólfinu. Svo að ég kastaði mér á hné hans.
Vinstri öxlin á mér skall á fótlegg hans. Hann hent-
ist aftur yfir sig með hnaJkikann í gólfið og mig ofan
á sér. Þetta var högg, sem hefði gert villtan górilluapa
blíðan og meðfærilegan, en þrátt fyrir það hafði hann
krafta til að kýla mig í ikviðinn, svo að ég gnísti tönn-
um af sársauka.
Eg rak hnéð í kviðarholið á honum, og þegar hann
hnipraði sig saman, gaf ég honum þrjú roknahögg með
hnefunum. Hann leið út af eins og ljós.
En 'hann var harður af sér. Hann lá ekki kyrr, þótt
hann hefði fengði meira en tveir venjulegir menn hefðu
þurft til að liggja í roti. Eg flýtti mér að taka hlaup-
stuttu marghleypuna hans undan jakkanmn á honum,
bara til þess að hann freistaðist ekki til að nota mig
sem skotskífu. Eg stakk henni í vasann.
Og fyrst ég var nú byrjaður, þá tók ég líka veskið
úr bakvasa hans. Þegar hann fór að hreyfa sig meira,
tók ég mína eigin marghleypu upp úr axlarhulstrinu
undir vinstri handleggnum. Eg miðaði henni og öðru
auganu á hann og það hafði alveg undraverð og róandi
áhrif á hann. Með hinu auganu gægðist ég í veskið. Á
ökuskírteininu stóð, að hann héti A1 Mack.
A1 Mack? Eg leitaðist við í huganum að rifja upp
nafn hans og andlit, en árangurslaust. Eg hafði aldrei
séð hann fyrr.
Eg fann líka tvo flunkunýja hundraðdollaraseðla 1
veskinu hans. Eg leit fýlulega til hans. Þetta var víst
allt og sumt, sem 'hann hafði fengið fyrir að yfirhala
mig — og það var ekki beinlínis upplyftandi að komast
að raun um, að maður var ekki talinn vera meira virði.
Eg kastaði veskinu til hans. „Þú hefur aldeilis verið
snuðaður, karl minn“, sagði ég hæðnislega. „Næst, þeg-
ar þú tekur að þér að tukta mig til, skaltu kref jast
sannvirðis, og það er ekkert smáræði.“
„1 næsta skipti, þinn svarti satan“, sagði hann sein-
mæltur „skal ég gera það bara vegna ánægjunnar".
Hann starði á mig án þess að segja meira. Hann
þurfti þess heldur ekki, því að það leyndi sér ekki í
svipnum, að hann hafði morð í huga. Morð á mér.
Eg leit rannsakandi á hann og reyndi að komast að
niðurstöðu um, hvort ég gæti fengið hann til að gefa
mér upplýsingar. Og ég varð því miður að viðurkenna,
að það væri aðeins tímaeyðsla að reyna slíkt.
Eg sagði bara: „Stattu upp!“
Hann reis með erfiðismunum á fætur og glápti á
mig. ......
„Snúðu þér við“, sagði ég.
Hann stóð álútur og gaut augunum upp til mín eins
og mannýgt naut, sem er tálbúið til árásar. En hann
var enginn bjáni. Hann sneri sér við.
„Þú varst svo elskulegur að bera mér skilaboð frá
séffanum þínum“, sagði ég. „Nú viltu kannski vera svo
góður að fara með skilaboð til ihans. Þú skalt skila
kveðju til dónans og segja, að ef hann nokkru sinni
framar sendir einhvem til að berja á mér, þá skuli ég
gera úr honum ærlegan spítalamat. Mig getur hann
nefnilega ekki gert hræddan“.
„O — þú átt nú eftir að fá þetta borgað, fíflið þitt“,
hreytti hann út úr sér.
Nú hafði ég fengið meira en nóg af svo góðu. Eg
spymti í afturendann á honum, og hann valt emjandi
á hausinn niður stigann.
Eg horfði ánægður á eftir honum. Eg hafði sjálfur
fengið slíka bunu rétt áður, og mér fannst ég skulda
honum þessa. Renningurinn á tröppunum myndi taka
af verstu skellina,
Hann hlunkaðist niður á stigapallinn og stóð upp
með erfiðismunum. Svo sendi hann mér augnaráð á-
líka viðkvæmnislegt og maður gæti ímyndað sér, að
Kain hafi sent Abel á sínum tíma og haltraði svo áfram
niður stigann .
Eg gekk aftur inn í skrifstofuna mína og fletti síma-
skránni. Mari Marlin var hvergi skráð í henni.
Svo hringdi ég til Homer, gamla svallbróður míns,
sem var blaðamaður við „Examiner". Hann var næst-
um alltaf við skrifborðið um átta-leytið á kvöldin að
skrifa dálkinn sinn fyrir næsta dag. Hann þekkti alla
í borginni — hka hina dularfullu Mari Marlin.
„Jú, jú“, sagði hann. „Falleg og rauðhærð nektar-
dansmær .Það er orðið talsvert langt síðan ég hef séð
hana. Fyrir um það bil ári litaði hún hárið 4 sér svart
og dansaði egypzkan magadans í túristanæturklúbb
Frank Rainiers við The Strip. Síðan hef ég ekki heyrt
neitt um hana“.
Eg þakkaði honum og ætlaði að fara að kveðja, þeg-
ar ihann greip fram í fyrir mér.
„Ætlarðu út þangað?“
„Það getur vel verið“, sagði ég varikár. Eg viður-
kenni aldrei neitt, fyrr en ég veit, hvað fólk hefur í
huga.
„Ef þú gerir það, viltu þá um leið gera mér greiða?“,
sagði hann. „Fréttaritari okkar í Washington hefur
stungið því að mér, að Carver þingmaður sé á eftir
Frank Rainier. Eg hef reynt að pumpa Frank sjálfan,
en hann forðast að svara nokkm. Ef það reynist rétt,
væri mér kært að fá söguna, áður en einhver annar
nappar henni fyrir framan nefið á mér.“
Eg blístraði. Þetta var sko bæði fróðlegt og skemmti-
legt. Carver þingmaður var formaður opinberrar nefnd-
ar, sem hafði það verkefni ao afhjúpa og fangelsa stór-
glæpamenn 1 Bandaríkjunum. Hann var bæði slægur og
harðsvíraður, og til þessa hafði honum heppnazt að
uppræta nokkur stærstu glæpafélög Austurstrandarinn-
ar. Af hans völdum og rannsókna hans sátu þrir af
stærstu Mafíuforingjunum bak við fangelsisrimlana.
„Hvað hefur hann á Frank Rainier?“ spurði ég.
„Nei, heyrðu nú“, sagði Homer gremjulega. „Við vit
um það báðir jafn vel, að Frank er stærsti undirheima-
oringinn hér á Vesturströndinni.“
„Eg veit aðeins það ,sem stendur í blöðunum", sagði
ég sakleysislega. „Og ég hef ekki lesið stakt orð um
hann“.
„Hann er alltof slunginn“, sagði Homer mæðulega.
„Okkur hefur aldrei tekizt að hanka hann á neinu, sem
hægt er að skrifa um. En það lítur út fyrir, að Carver