Ný vikutíðindi - 19.09.1969, Side 4
4
NY VIKUTÍÐINDI
ir af henni var hún hræsnis-
full og sjálfselsk. Samkvæmt
ráðleggingum frá sálfræð-
ingi, sem hún þekkti, einsetti
hún sér að láta aðra virða sig
meira en áður.
Seinna spurði ég hana,
hvernig hún hefði farið að
þessu, og hún svaraði: „Þú
nærð engum árangri i þess-
um efnum með því einungis
að neyða sjálfa þig til að
veita lífskjörum annarra at-
hygli, þegar þú ert innan um
annað fólk. Þú verður að
halda áfram að hugsa um
fólkið og hagi þess, eftir að
þú ert farin frá því.“
Ég gerði mér ekki fyllilega
grein fyrir, hvað hún átti við
i þessu sambandi, fyrr en ég
sá hana næst. Hún heilsaði
mér mjög vingjarnlega og
sagði svo: „Mér varð hugsað
til þín í gær, þegar ég var
að lesa bók eina og rakst á
kafla, sem ég veit að þér
hefði þótt mikils um vert að
lesa.“
Mér hlýnaði 1 lijarta við að
heyra, að ungfrú X hefði
hugsað til mín þegar hún
var að lesa hókina.
Venjið yður á að hafa vini
yðar í huga, þegar þér lesið
í bók, horfið á kvikmynd,
hlustið á tónleika eða eruð á
skemmtigöngu. Reynið að
koma auga á eitthvað það,
sem þeim myndi þykja gam-
an að og segið þeim síðan frá
því, næst þegar þér sjáið það,
sendið þvi línu eða úrklippu.
Það er einföld en áhrifamikil
leið til að láta í ljós vináttu
sína.
VERIÐ GLAÐLYNDAR
Ekkert er eins þreytandi
og sú manneskja, sem situr
hreyfingarlaus og talar lon
og don um ’"’ið, en hreyfir
ekki litla fingur til að taka
sjálf þátt í því, þótt það sé
iðandi allt í kring um hana.
Takið þátt í lífinu sjálfar.
Farið á skemmtistaði og
njótið þess. Og umfram allt,
gleymið ekki að vera bros-
hýrar.
METIÐ AÐ VERÐLEIKUM
ÞAÐ, SEM FYRIR YÐUR
ER GERT
Það er sama hvort þakk-
læti er látið í ljós i orði eða
verki, ef það kemur frá hjart-
anu. Þá mun það vísara til
þess að afla yður vinsælda
en nokkuð annað. Þér skul-
uð ekki reyna að telja yður
trú um, að vinum yðar standi
á sama um það, livort þér
sýnið þeim þakklæti í ein-
hverri mynd eða hvort þér
gleymið að senda þeim
„línu“, sem þér höfðuð lof-
að. Sama máli gegnir ef þér
gleymið að koma í heimboð,
sem yður bar skylda til að
fara í.
Eitt sinn tjáði frægur sál-
fræðingur mér, að miður að-
laðandi fólk ætti raunveru-
lega að vera þakklátt fyrir
að vera það, vegna þess, að
ef því tækist að brcyta sér til
batnaðar hefði það almennt
miklu meiri möguleika til að
verða hamingjusamt og vin-
sælt, heldur en það fólk, sem
hefði meðfædda eiginleika til
þess að afla sér vinsælda.
Fólk, sem er hlédrægt að eðl-
isfari, gerir sig ekki sekt um
að nota frckju eða yfirborðs-
mennsku. Slíkar manneskjur
ergja ekki aðra með innan-
tómu orðagjálfri cða látlausri
viðleitni að því marki að vera
miðdepill allrar aðdáunar.
Hlédrægir menn eru jafnan
miklum mun vinfastari en
þeir, er virðast allra vinir
þegar í stað.
Það er vissulega fremur
velt að breyta sjálfri sér eft-
ir eigin óskum, þegar loks
heiðarleg tilraun er gerð til
þess af fullri alvöru. Það
þarf að vísu sterkan sjálfs-
aga til að ná verulegum
árangri, en engin áreynsla
borgar sig þó betur, þegar á
allt er litið. (Þýtt)
MÍMiR
ENSKA — DANSKA — ÞÝZKA — FRANSKA
i; ÍTALSKA — SPÁNSKA — SÆNSKA
NORSKA — RÚSSNESKA — ISLENZKA fyr-
ir útlendinga.
Fjölbreytt og skemmtilegt nám.
;! Tímar við allra hæfi.
!; Sími 1 000 4 og 111 09 (kl. 1-7).
■i Málaskólinn Mímir
| BRAUTARHOLTI 4.
vwwwwwvwwwwv
ÍWVWWWWWWWWVWWW
Lögregluþjónn
Framh. af bls. 1.
ingunum skyldi ekki hafa
tekizt að drepa hann. Þegar
umræddur lögregluþjónn
var kominn til Danmerkur
var lögð áherzla á að hjarga
lífi hans, en áverkarnir eft-
ir hetjurnar fimm voru slík
ir að maðurinn er síðan
nær alger öryrki.
Einhverra liluta vegna hef
ur mál þetta legið i láginm
og ekki er vitað annað en
fimmmenningarnir gangi
lausir eins og ekkert hafi
í skorizt. Það er full-algengt
að bullur vaði uppi með mis
þyrmingum og öðrum
skepnuskap liér i hænum,
en þó mun ástandið hér
vera miklum mun skárra
en víða annars staðar á land
inu. Á þetta einkum við um
sum sjávarpláss.
Af augljósum ástæðum á
það ekki að líðast, að sýslu
menn séu alþingismenn og
séu í sífelldum óttta um að
tefla vinsældum sínum í
liættu með þvi að stunda
störf sín sómasamlega.
Slíkt ástand er að sjálf-
sögðu óviðunandi. Þá skilja
Reykvíkingar ekki, hvers
vegna þeim er gert að ann-
ast löggæzlustörf upp til
sveita. Sýslurnar ættu að
geta séð sjálfar um nauð-
synleg löggæzlustörf.
En sem sagt, ástandið er
slæmt og þarf úrbóta við.
☆
Fjármálaástand
Framh. af bls. 1.
að lielzt verði ekki nema ein
fiskvinnslustöð i hverju
byggðarlagi eða í hæsta lagi
tvær, og sama á að gera
með sláturhúsin; það á að
fækka þeim, en búa þau
sjálfvirkni eftir þvi sem við
verður komið og frarn-
leiða þar úrvals gæðavörur,
sem ekki eigi sinn líka að
því er gæði og vandaða
vinnslu áhrærir.
Með liyggilegri heildará-
ætlun á yfirsýn, mætti fram
kvæma þetta á nokkrum ár-
um í áföngum, og þá líta
á livar þörfin er hrýnust og
hvar liægt er með lagfær-
ingum að halda áfram með
núverandi vinnslustöðvar
um einhvern tíma, miðað
við ástand og aðstæður á
hverjum stað.
VINN SLU STÖÐ V ARNAR
Sumar núverandi fisk-
vinnslustöðvar eru illa stað
settar, og sama máli gegnir
með sláturliúsin og vinnslu-
stöðvar landbúnaðarins.
Þar sem svo stendur á, á
að byggja nýjar stöðvar á
sem hentugustum stöðvum
og freista þess að koma
byggingum þeim, sem þá
leggjast niður, til annarra
nota.
Þar sem fleiri en ein fisk
vinnslustöð er í sama sjávar
plássi, þá á að sameina slík
ar stöðvar undir sameigin-
lega stjórn og skrifstofu-
liald. Slíkt sparar mikið fé
og gæti leitt til hetri nýting
ar vinnslugetu stöðvanna.
Meinsemdirnar í fiskiðn-
aðinum og útgerðinni liggja
fjnst og fremst í því, að hiii-
ir svokölluðu eigendur fisk
vinnslustöðvanna og fiski-
skipanna, sem nú eru orðn-
ir, eiga sjálfir ekkert af þvi
fjármagni, sem i þessum at
vinnurekstri er bundinn.
Fjármagnið er allt eign rík-
isins, bankanna og lána-
stofnana, og af framan-
greindum ástæðum er sí-
fellt gripið til þess ráðs að
fella gengið, jafnvel eins og
komið liefur fyrir - tvisvar
á ári.
BANKARNIR
En til hliðar við þetta ó-
ábyrga fjármálaástand í
fiskiðnaði og útgerð bætisl
svo það, að vafasamt er
hvort hetur sé ástatt innan
banka og lánastofnana þjóð
arinnar.
Bönkum og lánastofnun-
um er stjórnað af banka-
stjórum, sem fá banka-
stjórastöðurnar í skjóli
flokkslitar og flokksað-
stöðu. Eankarnir eru rekn-
ir á grundvelli hlutaskipta
stjórnmálaflokkanna, þann-
ig að þeir þjóna fyrst og
fremst stjórnmálahagsmun-
um, og viðskiptin veljast í
stórum dráttum í samræmi
við flokkslegan styrkleika
hvers stjórnmálaflokks og
fylgni bankastjóra og banka
ráðsmanna flokkanna til að
ota sinum tota. Ilinir stjórn
málalegu gæðingar, sem
liljóta bankastjórastöðurn-
ar og sætin í bankaráðun-
um, keppa flestir að þing-
mennsku og ráðherradómi
eða öðrum stöðum, sem
þeim lientar ennþá betur en
bankastjórastarfið, og af
þeim ástæðum vantar festu
og ábyrgð í bankarekstur-
inn.
I FÖTSPOR HITLERS
Núverandi ríkisstjórn hef
ur tekið upp fyrirkomulagið
frá stjórnatíma Hitlers i
Þýzkalandi með því að
kljúfa fyrirtæki og stofnau-
ir til þess að koma fjöl-
mennara bitlingaliði á jötur
þjóðfélagsins, og árangur-
inn hefur ekki látið á sér
standa. Ilálfbyggð og ónytj-
uð fyrirtæki, nánast hvert
sem er litið og tilkostnað-
ur og ábyrgðarleysi við op-
inberan rekstur vex liröðum
skrefum.
Nýskipan bankastjóra vio
Landsbankann, sem er þó
ckki annað en endurtekning
þess, sem skeð hefur við
aðra banka þjóðarinnar,
staðfestir þetta svo ekki
verður um villst. Segja má
að ráðning Björgvins
Vilmundarsonar, sem ei
bankastarfsmaður og líkleg-
ur til að vinna sig upp i
starfi, sé réttlætanleg, en
um ráðningu Jónasar Har-
alz gildir öðru máli. Hami
virðist einn þessara valda-
gráðugu manna, sem hefur
tröllriðið stjórnmálaflokk-
unum til skiptis.
J. HARALZ OG V. ÞÖR
Jónas mun hafa hafið fer-
il sinn sein rauður kommún
isti, síðan börðust kratar o«
C5
framsókn um að fá hann til
liðs við sig, og talið er að
Eysteinn Jónsson liafi bók-
staflega trúað á hann. Hann
var lielzti ráðunautur
vinstri stjórnarinnar svo-
kölluðu og gekk svo af
þeirri stjórn dauðri, eftir að
Jónas, ásamt Stein-
grírni Hermannssyni, hafði
talið Ilermanni Jónassyni
trú um að vinstri stjórnin
yrði að segja af sér í stað
þess að bjarga málunum,
sem var tiltölulega auðvelt.
Nú er litið svo á, að Al-
þjóðabankinn hafi krafizt
þess, að Jónas fengi banka-
stjórastöðu í Landsbankan-
um, eftir að hann er búinn
að drepa Efnahagsstofnun-
ina undan sér og að Bjarni
Benediktsson, sem liggur
undir ámæli flokksmanna
sinna vegna ráðningar Jón-
asar, hafi átt val á milli
hylli gjakiþrots flokks-
bræðra sinna eða hylli al-
þjóðlegra peningastofnana -
og að Villijálmur Þór hafi
flutt Bjarna þessi skilabqð
alþjóðabankans.
Sem dæmi um ástandið i
fjármálum þjóðarinnar, .er..
það liaft i gamanmálum í
sambandi við umleitanir rík
isstjórnarinnar um að fá ný
og aukin erlend lán, að þá
komi slík skjöl og lánabeiðn
ir endursend til baka með
þeim ummælum að það
vanti umsögn og meðmæli
Villij álms Þór, fyrrverandi
bankastjóra Alþjóðabank-
ans og núverandi gæzlu-
bankastjóra sömu stofnun-
ar og annarra stofnana, sem
fjárhagshagsmuna hafa að
gæta á Norðurlöndum. En
ef ríkisstjórnin bæri gæfu
til að hlíta fjármálaleið-
sögn Vilhjálms Þór, þá
myndi margt breytast til
batnaðar i fjármálum þjóð-
arinnar.
☆
Húsakaup
Framh. af 1. síðu.
anna um embættisbústaði
komið til átaka í glímu tígul-
kónganna um völdin þar
innan Sjálfstæðisflokksins,
en þeir hafa aðallega verið
tveir: Guðlaugur Gíslason,
alþm. og bankaráðsmaður
Útvegsbankans og Gísli
Gíslason, fésýslumaður og
varabankaráðsmaður Út-
Kaupsýslutíðindi
Sími: 26833
Swwuvwwwvwwwwwuwwwvwwwwwwwwwww