Sameiningin - 01.01.1912, Qupperneq 20
340
$15.30. Enn fremr gjöf fráhr. Th. J. Guðmundssyni, Ivanhoe,
Minn., $i, og' frá hr. Hafliða Guöbrandssyni í Lúters-söfnuöi
(aö Garðar, N.-Dak.J $11.50.
í heiöingjatrúboðs-sjóö: Gjöf frá ónefndri konu í Lyon
County, Minnesota, $25. 'Winnipeg, 22. Jan. 1912.
Jón J. Vopni, féh.
Gjafir til gamalmenna-hælisins:—$10 frá kvenfélagi Vída-
líns-safnaöar í N.-Dak. (sent af Mrs. ÍSt. Thorwaldson, AkraJ,
og $1 frá stúlku í Sask., sem ebki vill láta nafns síns getiö. —
Fyrir gjafir þessar kvitta eg með þökkum. — Hansína Ólson.
Frá Malakía til Matteusar.
Eftir séra Guttorm Guttormsson.
Sunnudagsskóla-lexíur þær, sem komið hafa út í „Sam.“
á liönu ári, eru yfirlit yfir sögu gamla testamentisins frá skift-
ing ísraelsríkis eftir dauöa Salómons, konungs, á tíundu öld f.
Kr., til heimfararinnar frá Babýlon og endrstofnunar gyöinglegs
smáríkis í Jerúsalem á fimmtu öld f. Kr., þarsem saga gamla
Itestamentisins endar. Með þessu ári byrjar í lexíunum yfirlit
yfir æfisögu Jesú, úr þremr fyrstu guöspj öllunum'. Hér er því
stór eyöa í sögu Gyöinga-þjóöarinnar, sama eyðan, sem er í
ritningunni milli gamla og nýja testamentisins, og nær yfir
nærfellt fjórar aldir.
Þetta tímabil var mjög viðburðaríkt, og myndar mjög mik-
ilvægan þátt i sögu Gyöinga-þjóöarinnar. Til þess aö geta
skil.ð margt, sem frá er skýrt í nýja testamentinu, þurfum vér
aö vita um helztu atriöin í sögu Gyöinga á þessu tímabili, þvíaöl
þar liggja tildrcgin til þeirra breytinga, sem oröið höfðu á
lífskjörum þeirra, siöum og hugsunarhætti frá viöreisnar-
tímabilinu eftir 'herleiöinguna. Það væri œskilegt, aö varið
yröi nokkrum tímia á ári þessu öndveröu til þess aö gefa eldri
nemendum í sunnudagsskólum vorum stutt ágrip af sögu
þessarrar millibilstí'ðar, og tengja svo lexíurnar úr gamla testa-
mentinu, sem horfiö var frá viö árslokin, við lexíurnar úr guð-
spjallasögunni, sem byrjaö var á eftir nýár. Vil eg nú reyna aö
gefa slíkt sögu-ágrip í örfáum dráttum.
Útlegðin í Babýlon hafði oröiö Gyðingum til stór-mikillar
blessunar. Þjóðerni þeirra og trú varö þeim dýrmætari en áör.