Sameiningin - 01.01.1912, Síða 24
344
ónotaö. Hann brá vi‘S, og hélt í skyndi meS her manns til
Jerúsalem, reif borgarmúrana niSr til grunna, og sleppti her-
mönnum sínum taumlausum á vamarlausa borg-ina. Hjuggu
þeir niðr bæði menn, konur og börn, en tóku sumt aS herfangi
og seldu mansali. Svikarinn Menelás fór meS Antíokus inní
musteriö, og lét hann þar greipar sópa; tók burt meö sér gyllta
altariíS, ljósastikuna, lögmálsbœkrnar og allt þaö fémætt, sem
hann fann. Síðar lét hann fœra líkneski Seifs inní hiS allra-
helgasta.
Antíokus hélt áfram ófriö sínum viö Egypta. En er hann
sat um Alexandríu, komu Rómverjar til sögunnar. Þeir sendu
til hans, og báöu hann að gjöra svo vel og hætta. SendimaSr
þeirra markaði hring utan-um konung í sandinn, þarsem hann
þá var staddr, og sagöi: ,,Þú verör aö gefa ákveSiö svar áör
en þú ferð útúr hring þessum.“ Sá konungr þá sitt óvænna,
hætti ófriöinum og hélt heimleiðis í illu skapi- En þá hug-
kvæmdist honum þaö þjóöráö aö skeyta skapi sínu á Gyöing-
um. Hann lagði ‘her sínum að Jerúsalem, sem þegar var að hálfu
leyti í rústum og varnarlaus. Hann ásetti sér að upprœta með
öllu trúafbrögð Gyðinga, skipaði öllum að eta svínakjöt, halda
ekki framar helgan hvildardaginn, dýrka skurðgoð og halda
heiðnar hátíðir, eða fyrirgjöra lífi sínu. ÖH eintök af ritning-
unum, sem fundust, voru brennd. Með eldi og sverði tókst hon-
um að gjö-ra Jerúsalemi að heiðinni borg. Mörg hundruð Gyð-
inga köstuðu trú og fylgdu honum að málum, en margar þús-
undir flýðu til Egyþtalands, eða útí óbyggðir Júdeu og föld-
ust þar.
í þorpinu Modin, 16 mílur norðvestr frá Jerúsalem, var
fjölskylda nokkur af presta-ættum, sem varð loks til þess að
veita konungi viðnám. Það voru Makkabear. f fjölskyldu
þeirri voru fimm brœðr: Jóhanan, Símon, Júdas, Eleasar og
Jónatan, og hét faðir þeirra Mattatías. Þegar sendimenn kon-
ungs komu til Modin, til þess að þröngva fólkinu til skurð-
goðadýrkunar, drap Mattatías einn sendimanninn. og flúði með
sonum sínum til fjallanna í Efraim. Safnaðist þar brátt að1
þeim fjöldi Gyðinga, og hófu uppreisn móti Antíokusi. Matt-
atías dó eftir fáa mánuði fárið 166J, og gjörðist þá Júdas sonr
hans foringi uppreisnarmanna. Hann var kallaðr Júdas Makka-
beus ý„hamrari“J, og ættmenn hans eftir honum Makkabear.
júdas þessi var mikill hershöfðingi, og áhugamaðr mikill um
málefni þjóðar sinnar og sigrsæll í orrustum.
Antíokus konungr lagði útí leiðangr móti Pörþum, og týndi