Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 7
3 Þar er þá eitt af nútíðar-táknunum, sem af má ráða, að alda þessarrar ömurlegu tízku, sem nefnd er nýja guð- frœði, sé yfirleitt í heiminum farin að hníga; því vitan- lega er það Þýzkaland, sem þeirri tízku hefir ráðið öllum öðrum löndum fremr. Eftir ‘ Allgemeine lutherische Kirkenzeitung’ í Leipzig—aðal-málgagni lútersks krisk- indóms þar í landi—, er þetta tilfœrt: „Naumast skjátl- ast oss, er oss skilst svo, að í þessarri framkomu Har- nacks birtist hann á framför. Aðr lét hann sig meira máli sldfta að gjörast andstœðr tni kristins safnaðar. A seinni árum hefir framkoma hans aftr og aftr vakið furðu hinna, gömlu vina hans. Og er hann fór að láta það opinberlega til sín heyra, að við rannsókn biblíunn- ar yrði að taka tillit til kirkjulegrar erfikenningar, setti þá marga hljóða. Ekki fór betr, er hann lýsti yfir því, að guðspjallið þriðja og Gjörðabók postulanna væri á- reiðanlega eftir höfund þann, sem þau rit liafa verið eignuð—Lúkas—; enn fremr, að Jóhannesar guðspjall lilyti að vera fœrt í letr af sjónarvotti; — því með þess- um og þvílíkum ummælum sýndi hann, að hann hélt sér engan veginn fast við neina flokksstefnu, en vildi feginn læra meira. Ef menn vildi fyrir því hafa, væri hœgt að benda á ýms ákveðin skoðana-skifti á þroska-skeiði nar- nacks. Svo kemr fyrir málið, sem höfðað var gegn Jatho*), og afskifti lians af því. Hver hefði áðr trúað því, að Harnack mvndi halda því svo sterklega fram, að kirkjan verði að verja sig gegn villukenningum ? Eða að hann svo afdráttarlaust gjörðist formælandi algjörr- ar opinberunar guðs í Kristi? „Yér getum ekki annað en trúað því, að Harnack sé vandaðr og samvizkusamr maðr. En þá getum vér og hiklaust sagt, að hann hverfr aftr frá óverjandi ímynd- unum um efni trúarinnar og nálgast meir og meir krist- indómsopinberanina einsog hún er í raun og veru. Og þarsem hjá honum birtist svo mikil alvara í vísindalegum rannsóknum hans, og svo ákveðin sannleiksþrá, að hann *) Á þaS minntist séra N. Stgr. Þbrláksson í grein sinni í Október-blaðinu.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.