Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1942, Síða 17

Sameiningin - 01.11.1942, Síða 17
143 fjarða hefir því unnið hið þarfasta og þakkarverðasta verk með útgáfu þessa ársrits síns, og er sérstaklega ánægjulegt að veita því eftirtekt, að bæði karlar og konur úr hópi leik- manna hafa stutt prestana að því nytjastarfi. Aukin sam- vinna á því sviði spáir góðu um framtíð íslenzkrar kirkju og kristni. En lítum nú dálítið nánar á síðasta árgang ritsins, er ber, sem fyrri hefti þess, fagurt vitni trúarlegum og menningarlegum áhuga þeirra prestanna vestfirzku og samverkamanna þeirra. Núverandi biskup íslands, séra Sigurgeir Sigurðsson, áður prófastur á ísafirði, var stofnandi Prestafélags Vest- fjarða og forvígismaður þess þangað til hann fluttist tii Reykjavíkur og tók við biskupsembættinu; fram að þeim tíma var hann einnig ritstjóri “Lindarinnar.” Þetta hefti ritsins, hið fyrsta eftir að hann lét af ritstjórninni, er því, eins og maklegt var, tileinkað honum. Hefst ritið að þessu sinni með faguryrtu ávarpi til biskups frá Prestafélagi Vestfjarða, og jafn fagurlega minnist Jón Tómasson, organ- leikari á Isafirði, fyrverandi sóknarprests síns, í drengilegri ritgerð og allítarlegri. Sjálfur á Sigurgeir biskup í ritinu prýðilega ræðu, er hann flutti við vígslu Núpskirkju í Dýrafirði 17. september 1939, en prófastur Sigtryggur Guðlaugsson, hinn ástsæli prestaöldungur þeirra Vestfirðinga, lýsir kirkjubyggingu þessari og tildrögum hennar í gagnorðri grein. Annars er efni heftisins í óbundnu máli sem hér segir: “Séra Halldór Kolbeins: “Vaka”; séra Þorsteinn Jó- hannesson: “Þú átt að verða að liði”; Páll ísólfsson, tón- skáld: “Norrænt tónlistarmót”; Ágústa Aðalsteinsdóttir: “Degi var tekið að halla” (saga); séra Böðvar Bjarnason: “Slíðra þú sverð þitt”; H. P. Christiansen: “Atburður úr daglega lífinu”; Grétar Fells: “I hvítum klæðum”; séra Jón Jakobsson: “Réttið fram höndina”; Pétur Sigurðsson kenni- maður: “Um uppeldismál”; séra Halldór Kolbeins: “Gull i lófa framtíðarinnar”; séra Eiríkur J. Eiríksson: “Heimilis- rækt og átthaga”; séra Halldór Kolbeins: “Tvær mílur”; séra Þorsteinn Jóhannesson: “Er kristileg menning í hættu?”; og séra Jónmundur Halldórsson: “Til hvers fara menn í kirkju?” Þá eru hér kirkjulegar fréttir, fundar- gerð Prestafélags Vestfjarða, umsögn um Hirðisbréf biskups og “Gamalt og nýtt” eftir séra Einar Sturlaugsson. Eins og sjálfar fyrirsagnirnar bera með sér, þá fjalla ofantaldar ritgerðir og ræður um þau trúarleg efni og

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.