Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.02.1955, Blaðsíða 1

Nýi tíminn - 17.02.1955, Blaðsíða 1
1 LESENDUR! Dtvegið blaðinu nýja kaupendur og tilkynn* ið þá til afgreiðslunnai NÝI TÍMINN Fimmtudagur 17. febrúar 1955 — 15. árgangur — 7. töulblað LESIÐ Greinin um rafmagns- mál Austfirðinga á 1* og 11. síðu. Er ekki hægt að hækka kaup verkalólks? Stjórnin þori ekki að gefa upp snóða auðíélaganna Erlendis er árlega gefinn upp gróBi og arSsúfborgun afvinnufyrirtœkia Það er alkunna að hér á landi eru flestir milljónarar í heimi að tiltölu, og séu fámennari ríki eins og Norður- lönd tekin til samanburðar mun ekki einu sinni þörf á að miða við fólksfjölda. Það er hins vegar vandlega falið hvemig menn fari aö því að gærða hérlendis, á sama tíma og hlutafélög og önnur auðsöfnunarfélög í nágranna- löndunum eru skuldbundin með lögum til þess aö gefa upp árlegan gróöa sinn og útborgaðan arð. Þessi leynd hér á landi er notuð til þess að. geta betur beitt áróðri gegn réttmætum kröfum verkafólks um kaup- hækkanir. Allir atvinnurekend- ur berja sér og segjast alltaf vera að tapa, enda þótt dagleg reynsla sanni að gróðasöfnunin hefur vaxið gegndarlaust á und- anförnum árum og auðmanna- stéttin hér lifir lúxuslífi sem óvíða mun vera hóflausara. Á Norðurlöndum t. d. eru ár- lega birtar skýrslur um gróða auðfélaga, og tala þær sínu skýra máli. Engin ástæða er til þess að ætla að gróðinn hér sé minni — öllu heldur mun hann vera meiri á ýmsum sviðum — og því gefa skýrslumar hjá frændþjóðum okkar hugmynd um ástandið hér. Skulu hér birt tvö dæmi frá Svíþjóð: • 19.000 kr.á verkamann Árið 1953 höfðu 213 hluta- féiög í iðnaði 354 milljónir sænskra króna í gróða. Gróða þennan höfðu -þau tekið af 58.146 verkamönnum sem hjá þeim unnu, og heildarkaup þeirra hafði numið á árinu 530 milljónum króna. Fyrirtækin höfðu þannig tekið að meðaltali í brúttógróða af hverjum verka- manni 6.100 kr. sænskar eða rúmlega 19.000 íslenzkar krónur miðað við gengi. • Gróðinn samsvarar vinnulaunum Á sama ári höfðu 415 fyrir- tæki í málmiðnaði 1.362 milljónir sænskra króna í gróða. Gróði þessi var tekinn af vinnu 152.095 verkamanna, sem höfðu fengið í laun á árinu 1.368 milljónir króna. Fyrirtækin höfðu þannig tekið að meðaltali i brúttógróða af hverjum verkamanni 8.960 kr. sænskar eða sem svarar 28.000 íslenzkum krónum miðað við gengi. í þessu dæmi var brúttógróði fyrirtækjanna að heita má sá sami og allar launa- greiðslur þeirra til verkamann- anna! • Atvinnulífið þolir kauphækkanir Það er engum efa bundið að ástandið í íslenzkum atvinnu- rekstri er mjög hliðstætt þessu — og sennilega mun hagstæðara auðmönnum, annars myndi ekki vera lögð svona mikil áherzla á leyndina. Undantekning er sjálf útgerðin, ef litið er á hana ein- angraða, en það stafar aðeins af því að stórgróði hennar er sog- inn upp af milliliðunum til þess Framhald á 11. síðu. Snorri Jónsson Ilafsteinn Guðmundsson Glæsilegur eini ngarsigur í Fé- lagi jórniðnaðarmanna A-listinn k]örinn meS 191 atkv. en afturhaldiS fékk aSeins 130 Einingarmenn unnu mikinn sigur við stjórnar- kjörið í Félagi jámiðnaðarmanna. Hlaut A-listinn 191 atkv. og alla frambjóðendur sína kjöma en B- listi íhalds og hægri krata aðeins 130 atkvæði. Þessi glæsilegi sigur einingaraflanna er pvi eftirtektar- veröari sem vitaö er aö í félaginu hafa tekizt á nokkurn veginn jafnar fylkingar árum saman. Nú hafa oröið al- gjör páttaskil og yfirburöir einingarmanna óumdeilan- legir. Við stjómarkjörið 1953 vann afturhaldið kosninguna með fjögurra atkvæða mun en ein- ingarmenn 1954 með nítján atkv. mun. Við kosningu á Alþýðusam- bandsþing s.l. haust unnu ein- ingarmenn með þrjátíu og átta atkv. mun, en meirihluti þeirra nú reyndist sextíu og eitt atkv. eða nær 50% yfir afturhaldið. Hamagangur afturhaldsins — Reykbombur sprengdar. Úrslitin í Félagi járniðnaðar- manna eru ekki sízt athyglisverð þegar þess er gætt, að sjaldan eða aldrei hefur íhaldið lagt sig eins fram í undirbúningi og smöl- un. Holstein var í fullum gangi báða kjördaga, bombur voru sprengdar í Morgunblaðinu, sem að vísu reyndust reykbombur einar, og Alþýðublaðið skoraði eindregið á lið hægri manna að veita íhaldinu fulltingi í kosn— ingunum. Traust og örugg forusta Jáminðnaðarmenn hafa nú svarað afturhaldinu á eftirminni- legan hátt. Þeir ■ hafa sýnt at- Kaffiverð lækkar 15% Verð á kaffi fer ört lækk- andi á heimsmarkaðinum. I síðustu viku lækkaði út- flutningsverðið frá Brasilíu um 15%. Þessi lækkun hef- ur orðið til þess viða um heim að verð á eldri birgð- um hefur verið lækkað. Til dæmis lækkaði útsöluverð á kaffi í Sviþjóð um tvær j krónur kílóið. \ Um 100 millj. kr. í 4 milliliði Vátryggingafélögin, flutningaskipin, oliuhringarnir og útflutningseinokunin safna 6hem]ugróSa árlega *r Oft hefur Nýi tíminn rakið hvernig ríkis'- stjórnin og bankarnir hirða árlega 170 milljónir króna af almenningi umfram þarfir. En það eru fleiri aðilar s'em eiga að stunda almenna opinbera þjón- ustu í skjóli ríkisvaldsins, en hagnýta þá aðstöðu til að hirða af þjóðinni tugi og aftur tugi milljóna króna. • Vátryggingafélögin Eins og kunnugt er hefur miklu fjármagni verið veitt í tryggingastarfsemi undanfarið, en það er óræk sönnun þess að þar er mikinn gróða að fá. Hafa ný félög verið stofnuð eitt af öðru og samkeppnin hefur verið gegndarlaus. Ekki liggja fyrir skýrslur um gróða félaganna — hann er að mestu leyti faltnn — en kunnugir telja að hann muni vera hátt í 20 milljónir króna á ári. • Flutningaskipin Einnig sú starfsemi að fiytja framleiðsluvörur íslendinga til útlanda og nauðsynjar til lands- ins er mikill gróðavegur, og á því sviði hafa einnig verið mik- il umsvif á undanförnum árum. Hversu arðbær þessi starfsemi er sést bezt á því að eignir Eim- skipafélags íslands nema nú 150—200 miltjónum króna — enda þótt þetta sama félag stöðvi nú frekar skipin en að ganga að hófsamlegum kröfum matsveina og framreiðslumanna. Gróðinn af flutningaskipunum mun varlega áætlað ekki vera undir 20 milljónum króna á ári. • Olíuhringarnir Allir þekkja hina ofsalegu fjárfestingu olíuhringanna und- anfarið, hvernig þreföldu dreif- irrgarkerfi hefur verið komið upp um landið — einnig á því sviði er slegizt um mikinn gróða. Sú starfsemi er þeim mun at- hyglisverðari sem ríkið annast nú öll innkaup á olíum og benz- íni, en afhendir olíufélögunum svo birgðirnar til þess að græða á almenningi. Enda þótt geysi- legar fúlgur fari í súginn með hinu þrefalda dreifingarkerfi og skefjalausri samkeppni, mun gróði olíufélaganna hér innan- lands nema yfir 20 mliljónum króna á ári. • Utflutningseinok- unin Útflutningseinokunin er ein mesta og öruggasta gróðalind sem auðmannastéttin hagnýtir sér í skjóli ríkisvaldsins. Hefur saltfiskeinokunin verið oft og ýtarlega rakin hér í blaðinu á undanfömum árum, en hún er m. a. hagnýtt til að skipuleggja umfangsmikinn fjárflótta, þann- ig að íslenzkir aðilar hafa kom- ið fyrir stóreignum í Ítalíu, Grikklandi, Spáni og víðar. Síð- asta dæmið í þessu efni er það að nýlega mun SÍF hafa greitt Hálfdáni Bjarnasyni tæpar tvær milljónir króna í skaðabætur vegna þess að ekki var hægt að Framhald á 11. síðu

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.