Nýi tíminn


Nýi tíminn - 17.02.1955, Blaðsíða 12

Nýi tíminn - 17.02.1955, Blaðsíða 12
Fá Norðfirðingar nýtt skip í I stað Egils rauða innan eins árs? Sendinefnd NorSfirðinga leggur áherzlu á oð fá smiSaSan nýfizku togara Sunnudaginn 13. febr. kom nefnd manna frá Nes- kaup&'iað þess erindis að útvega nýjan togara í stað Egils rauða( sem fórst 26. f.m. Nefndarmennirnir leggja allir — og Norðfirðingar yfirleitt — áherzlu á að fá smíðaðan nýtízku togara í stað Egils rauða fá nýtt skip en ekki að taka atvinnutæki frá öðrum bæjum. Nefndin hefur rætt við ríkisstjórnina um málið og fengið vinsamlegar undirtektir. Allir stjórnmálaflokkar sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar tilnefndu sinn mann hver í nefndina og eru í henni þessir menn: Oddur A. Sigurjónsson skólastjóri frá Alþýðuflokkn- um, Ármann Magnússon út- gerðarmaður frá Framsóknar- flokknum, Lúðvík Jósefsson al- þingismaður frá Sósíalista- flokknum og Axel V. Tuliníus frá Sjálfstæðisflokknum. Sendinefndin ræddi við blaðamenn í gær og sagðist henni frá á þessa leið: Þegar togarinn Egill rauði fórst með þeim hörmulegu at- burðum, sem alþjóð er kunnugt, stóðu íbúar Neskaupstaðar and- spænis þeirri bláköldu stað- reynd, að auk hryggilegs mann- tjóns, sem snerti djúpt hugi allra, var horfið úr bænum at- vinnutæki, sem hafði árlega veitt um fimm millj. í vinnu- launum inn í bæinn. Bæjarstjórn var ljóst að hér verður að hafa hraðar hendur, ef slíkt áfall atvinnulega séð, á ekki að leiða til stóraukins brott- flutnings úr bænum. Eina varanlega úrræðið Eftir nána athugun komst bæjarstjórn að þeirri niðurstöðu, að úr atvinnutjóninu yrði ekki á annan hátt bætt, en að fá nýj- an togara til bæjarins. Um þetta sameinuðust allir flokkar í bæj- arstjórn og óhætt að segja allir bæjarbúar. Nefndin leggur áherzlu á 1. Þá sérstöðu, sem skapazt hefur í atvinnumálum Neskaup- staðar við það að annarri aðal- stoð atvinnulífsins er kippt burtu. 2. Auk beinnar verkamanna- vinnu, sem skerðist gífurlega, hverfur að hálfu leyti rekstrar- grundvöllur fyrirtækja, sem ná- tengd eru togaraútgerðinni, s. s. frystihúsa, beinavinnslu, ísfram- leiðslu, vélaverkstæðis og neta- verkstæðis, en allt er þetta byggt upp m. a. með rekstur 2ja togara fyrir augum. 3. Einungis nýtt skip, sem byggt yrði samkvæmt reynslunni um hagkvæmasta rekstur, þykir hér koma til mála. Það hefur komið glöggt í ljós, að diesel- skipin eru langtum sparneytnari á eldsneyti og engu síðri fiski- skip, en eldsneytissparnaður er geysiþýðingarmikið atriði fyrir skip, sem þurfa að sigla tiltölu- lega langt með aflann af miðum. Því leggjum við áherzlu á slíkt skip. Hér við bætist að skarðið, sem kom í íslenzka fiskiflotann við strand Egils rauða, verður ekki bætt með neinni tilfærslu á skipum milli staða. Nefndin hefur átt tal við for- sætis- og sjávarútvegsmálaráð- herra, Ólaf Thors og fjármála- ráðherra, Eystein Jónsson, sem jafnframt er þingmaður Suður- Múlasýslu, og lagt fram sín sjónarmið í greinargerðum ásamt viðræðunum. Nokkuð hef- ur verið athugað af tilboðum og ráðgazt við kunnáttumenn um þau. Telst nefndinni svo til að unnt mundi vera að fá nýtízku dieseltogara með svipuðu burð- armagni og Egill rauði hafði, innan eins árs og á skaplegu verði, 8%—9 milljónir. Spurningu blaðamanna um það hvaðan togarinn yrði fenginn svöruðu nefndarmenn að athug- uð yrðu tilboð bæði frá Þjóð- verjum og Bretum. Mun afhend- ingarfrestur vera töluvert skemmri hjá Þjóðverjum en Bretum. Ætlunin er að leggja fram í hið nýja skip 2 milljónir, auk þess sem kynni að fást yfirfært á það af stofnskuldum Egils rauða. Að lokum vill nefndin geta þess að hún telur sig hafa mætt velvild og skilningi ráðamanna, sem rætt hefur verið við. NÝI TÍMINN Fimmtudagur 17. febrúar 1955 — 15. árgangur — 7. töulblað Búnaðarþing sett í gær Setning Búnaðarþings hófst kl. 10 f.h. í Góðtemplara- húsinu, þar sem þingið verður haldið. Formaður Búnað- arfélags íslands, Þorsteinn Sigurðsson bóndi á Vatnsleysu setti þingið með ræðu. Næst á eftir talaði Steingrím- ur Steinþórsson landbúnaðarráð- herra, Var þá kosin kjörbréfa- nefnd og fundi síðan frestað. Nokkrir fulltrúar voru ókomn- ir. Þar sem hér er um að ræða nýkjörið þing hafa nokkrar brejdingar orðið á skipun þess, þannig að nú sitja þingið sex nýir fulltrúar. í ræðu sinni minntist formað- ur á ýms helztu mál landbúnað- arins. Ræddi m. a. nokkuð um þrjú lagafrumvörp er nú eru á döfinni um þau mál og hann Gunnar M. Magnúss tek- ur sœti á Alþingi í veikindaíoríöllum Sigurðar Guðnasonar Fyrsti varaþingmaður Sósíal- istaflokksins í Reykjavík, Gunn- ar M. Magnúss rithöfundur, tók sæti á Alþingi i gær í veikinda- forföllum Sigurðar Guðnasonar. Sigurður veiktist snögglega á sunnudaginn var, er hann var á gangi úti við. Liggur hann heima og er búizt við að hann verði að liggja um tíma. Fiskimjölsverksmiðja n í Vestmannaeyjum græddi þrjár milljónir króna á s. 1. ári FiskvinnslustöSvarnar i Vestmannaeyjum grœddu 3 milliónir kr. i viSbót - en sú upphœS sem reynt er oð rœna af sjómönnum nemur tœpum tveim milljónum Á síðasta ári var hreinn gróði fiskimjölsverksmiðj- unnar í Vestmannaeyjum 3 milljónir króna. Á sama ári græddi fis'kvinnslustöð ein í Eyjum á aðra millj- ón eftir að allt hafði verið afskrifað eins og lög frekast leyfa, og fiskvinnslustöðvarnar allar hafa ekki haft minna en þrjár milljónir króna í hreinan gróða. Þessir aðilar einir hafa þannig grætt um sex millj- ónir króna á árinu, en það myndi kosta undir tveim- ur milljónum króna að ganga að kröfum sjómanna um rétt fiskverð. Þessi dæmi sýna einkar glöggt hversu fráleit sú kenning stjórn- arblaðanna er að fjármuni vanti til þess að standa skil á réttum greiðslum til sjómanna. Stað- reyndin er þvert á móti sú að af fáum verkamönnum mun tekinn eins óhemjulegur gróði og sjómönnum í Vestmannaeyj- um. Á síðasta ári námu gjald- eyrisverðmæti þau sem flutt voru út frá Vestmannaeyjahöfn á annað hundrað milljóna króna, og meginhluti þeirra verðmæta kemur á iand á ver- tíðinni fjóra fyrstu mánuði árs- ins. Útgerðarmenn hafa nú eyðilagt 114 niánuð af þessu dýr- mæta tímabili vegna þess eins að þeir neita að greiða sjómönn- um rétt verð fyrir aflahlut sinn, vegna þess eins að þeir vilja ræna hluta af verðinu sjálfir. Við þá iðju hafa þeir notið stuðnings og fyrirskipana frá ríkisstjóminni og Faxaflóa- greifunum í Landssambandi ís- lenzkra útvegsmanna. En þetta Á síðasta sjómannadegi var Ól- afur Thórs sæmdur æðsta lieið- ursmerki sjómannadagsins. Hann er nú að þakka fyrir sig með árásunum á sjómenn í Vest- mannaeyjum. er orðið dýrt strið; það hefur þegar haft af þjóðinni tugi millj- óna í gjaldeyrisverðmætuni — margfalda þá upphæð sem reynt er að stela af sjómönnmn. ® Dómur Hæstaréttar liggur fyrir Morgunblaðið spyr í gær hvers vegna sjómenn hafi hafnað gerðardómi, þar sem sæti ættu einn frá hvorum aðila og einn fulltrúi Hæstaréttar. Svarið er ofur einfalt: Slíkur gerðardóm- ur er óþarfur og til þess eins að tefja tímann. Dómur Hæsta- réttar liggur fyrir og þar var lýst yfir því afdráttarlaust að sjómenn eigi skýlausan rétt á fullu verði fyrir aflahlut sinn. Það er þvi ástæðulaust að spyrja sjómenn nokkurs í þessu sam- bandi. En um hitt spyr öll þjóð- in: Iívemig leyfa ríkisstjórnin og útgerðarmenn sér að reyna að ræna frá sjómönnum rétti sem er svo ótvíræður að sjálfur Hæstiréttur hefur staðfest hann. Hveraig ætlast ríkisstjórnin til þess að hægt verði að framfylgja lögum í landinu eftirleiðis, ef hún hefur nú forustu um að Framhald á 11. síðu. taldi mjög nauðsynlegt að fengju sem bezta afgreiðslu. Eru það frumv. um tilraunastarf- semi í þágu landbúnaðarins, frumv. um breytingar á jarð- ræktarlögunum og frumv. um breytingu á lögum um ræktunar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum. Þá minntist formaður einnig á búnaðarfræðsluna og taldi mjög mikið á skorta að hún væri nógu góð. Taldi nauðsyn að fjölga héraðsráðunautum og væri það fyrst og fremst fá- menni er gerði minnstu sam- böndunum erfitt fyrir með að hafa ráðunauta. Eitt bókarverð frá hverjum bónda til að auka búnað- arfræðsluna Þá minntist formaður einnig á að framlag bændanna sjálfra til búnaðarfræðslunnar væri næsta lítið og mætti ekki mikið telj- ast þótt hver bóndi legði fram sem svaraði einu bókarverði er rynni í sameiginlegan sjóð til styrktar búnaðarfræðslunni í landinu. Einnig benti hann á að eyður væru ennþá í búnaðar- félagsskapinn þar sem ræktun- arsambönd vantaði enn í sum héruð landsins. Aukin ræktun skapar aukna framleiðslu Sagði formaður einnig að auk- in ræktun skapaði aukna fram- leiðslu, og mundi því fljótlega að því koma að leita þyrfti mark- aðar erlendis fyrir hluta land- búnaðarframleiðslunnar. Mjólk- urmarkaðurinn væri nú senni- lega yfirfullur ef kaupgeta fólks- ins væri ekki meiri en hún hef- ur verið oft áður, og sauðfénu fjölgaði nú óðum, bæði vegna útrýmingar fjárpestanna og betri afkomu hjá bændum. En í sambandi við útflutning væri eitt nauðsynlegasta atriðið það, að tilreiða vörurnar þannig að þær yrðu eftirsóttar neyzluvörur. Ræða landbúnaðarráðherra Því næst tók til máls Stein- grímur Steinþórsson landbúnað- arráðherra. Ræddi hann á víð og dreif um þau mál sem efst eru á baugi og hné ræða hans nokkuð í sömu átt sem ræða formanns Búnaðarfélagsins. í lok hennar minntist hann á næstu landbún- aðarsýningu, sem til orða hefði komið að halda árið 1957 á 120 ára afmæli búnaðarsamtakanna í landinu. En elzta búnaðarfélag landsins var Húss- og bústjórn- arfélag Suðuramtsins, er stofnað var árið 1837. Mikið landflæmi í Suður- Afríku er nú undir vatni sök- um flóða. Allan þennan mánuð hafa verið þar úrhellisrigning- ar og er gífurlegur vöxtur í fljótum. Mörg hafa brotið brýr og flætt yfir bakka sína. Mann- tjón hefur orðið en ekki vitað hve mikið, en tjón á ökrum og uppskeru er geysilegt.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.