Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.01.1956, Blaðsíða 2

Nýi tíminn - 12.01.1956, Blaðsíða 2
,.2),;Tr- NÝI TlMINN — Finuntudagur 12. janúar 1956 Árið 1954 var Gullfaxi á flugi samtals 1629 Jclukkustundir. __ r Flugvélar F.L llaStia 44512 mr- þeffs InnanlcsEids á s.L érl Tekjur félagsins af flugi 1954 reyndust 22.5 millj. kr. - hreinn ágóði 282 jbús. Á s.l. ári fluttu flugvélar Flugfélags íslands samtals 44.512 farþega á ínnanlandsleiö’um og er það tæplega 2 þús. farþegum færra en áriö 1954. Tölur um fjölda far- þegar á millilandaflugleiðum félagsins s.i. ár iiggja enn ekki fyrir, en 1954 voru þeir alls 7665. ÍEttarnöixi áttu sér esMfcs iormælendur Frumvarpiö um mannanöfn kom til 1. umr. í neðri deild í fyrradag. Er það komiö frá efri deild. sem sam- þykkti það nær óbreytt meö aðeins eins atkvæöis mun, 7 gegn 6 atkv. Sætti þaö harðri gagnrýni viö þessa fyrstu umræöu. Enginn mælti með ættarnöfnum. Vöruflutningar á innanlands- flugleiðum námu á liðnu ári 949.425 kg. og höfðu aukizt tals- vert frá 1954, er þeir námu 868 smálestum. Póstflutningar minnkuðu hinsvegar úr rösklega 132 ■ lestum árið 1954 í 107 lestir s. 1. ár'. Guðm. Vilhjálmssoii kjöriiui formaður Aðalíundur Flugféiags . íslands var haldirjn um miðjan s.i. mán- uð, en þar sem fundarstörfum varð þá ekki lokið var boðað til ír..mhaldsaðalfundar s.l. fimmtu- dag. Fór þar fram stjórnarkjör og voru þessir kjörnir i aðal- stjórn: Guðmundur Viihjálmsson formaður, Bergur Gislason vara- formaður, Jakob Frímannsson ritari og meðstjórnendur Björn Ólafsson og Riehard Thors. í varastjórn voru kosnir Jón Árna- son og Svanbjörn Frimansson. Þriðjungiir þjóðarinnar með Föxunum. Á aðalfundinum flutti Öm Ó. Johnson, framkvæmdastjóri FÍ skýrslu um starfsemi félagsins á árinu 1954. Skýrði hann frá því, að reksturinn hefði orðið hagkvæmur á árinu, enda flutti félagið fleiri farþega og meira vöru- og póstmagn. en nokkru sinni fyrr. Um þriðjungur þjóð- arinnar flaug með Föxunum ár- ið 1954. Af þeim 54.160 farþeg- um, sem ferðuðust með flugvél- um Fí á árinu, flugu 46.495 á innanlandsflugleiðum, og nam aukningin 31% miðað við far- þegafjöldann árið áður. Flestir farþeganna fiugu á eftirgreindum flugleiðum: Rvík -Akureyri 13.818 (10.011), Rvik -Vestmannaeyjar 11.095 (8.288) Rvík-ísafjörður 5.025 (3.939), Ryík-Egilsstaðir 2.930 (T.487), Rvík-Hornaf jörður 1.972 (1.045), Rvík-Sauðárkrókur 1.682 (1.471), Rvik-Patreks- fjörður 1.087 (995), og Rvík- Siglufjörður 915 (727). Tölur innan sviga tákna farþegaf jölda árið 1953. Meðal vegalengd, sem hver farþegi flaug innanlands var 215 km. Vöru- og póstflutningar jukusfc. Vöruflutningar á innanlands- flugleiðum náanu 868 smálestum og höfðu aukizt um 9%. Póst- flutningar jukust hins vegar úr 55 lestum 1953 i rösklega 132 lestir 1954, Að vonju önnuðust flugvélar félagsins _síldarieit, landhelgisgædu myndatöku- fiug vegna landmælinga og svo, s j úk raf 1 u tninga. Brúttótekjur af innanlands- flugferðum 1954 námu, kr. 11.315.8S7„49, og . iiöfðu þær auk izt um zæp 33% é gerður sam- anburður á árinu á undan. 7665 farþegar .jiiiili ianrta. Gullfaxi anuaðist áætlunar- ferðir félagsins -milli landa eins og undanfarin ár. Haidið var uppi regiubimdnum ferðum milli ReykjavLkiir og Prestvík- ur, Lundúna, óslóar og Kaup- mannahafnar yfir sumarmánuð- ina, en Óslóarferðum sleppt að vetrinum tii. Gullfaxi fór marg- ar leiguferðir á árinu, t.d. 14 ferðir til Grænlands. Aðrar flug vélar féiagsins fóru þangað 9 ferðir, og voru því alls farnar 23 ferðir til GrænUmds og flutt- ir 795 farþegar og 16 smáiest- ir af vörum. Alls voru fluttir 7.665 farþegar milli landa á ár- inu, og.er það 15% auking frá árinu áður. Farþegafjöidinn. á áætlunar- leiðum var sern. hér greinir: RvíknKaupma nna höfn 3.266, Rvík-London 1.458, Rvík-Prest- vík 960 og Rvik-Osló 550. Vöru- flutningar milli landa námu um 126 smálestum og höfðu aukizt rnn 3%. Póstflu.tningar námu hins vegar 19.6 iestum og var aukningin 24 Brúttótekjm ,d milliianda- fliigi námu kr. 11.255.112,61, og höfðu þær auk:zt um 8% á ár- inir. 6543 klst. á lolíi. Samanlag' 'm .Urþegaf jöldi Fí á árim. i 954 var 54.160 (29% aukn: ..■ . . • iflutningar námu 994 .5: ■ rrn (8,5% aukning) flutningar nániu sarr ■ 151 smálest (114%aukn starfrækti 8 flugvélar !,alas Da- kotaflugvé" Kai línaflug- báta, 1 Gr'immrnvflughót oe Skjmasterflugvélina Gullfaxa. Níunda flugvélin, millilanda- flugvéiin Sólfaxi, bættist í hóp- inn í árslok. Flugvélar félagsins voni á flugi samtals 6.543 klst., þar af var Gullfaxi einn 1.629 klst. Heildarvegalengdin, sem flug- vélarnar fiugu, nam 1.717.000 km, Farsælfc starfsár. Starfsliði félagsins var fjölg- að nokkuð á árinu, svo sem við mátti búast með auknum i-eksíri. Mun meðaitala starfsmanna hafa verið um 160 á árinu, þar af voru 22 fiugmenn, Örn Ó. Johnson lauk skýrelu ísinpi með þessum orðum: ,,Þeg- ar litið er til baka til ársins ; 1954 verður að telja, að það hafi verið félaginu farsælt ár i öllum veigamikium atriðum, starfsemi þess jókst í hvívetna og sömuleiðis nettótekjur. Fé- iagið eignaðist tvær prýðilegar flugvéiar á árinu, Douglasvélina Snæfaxa og Skymastervélina Sólfaxa, og enn sem fyrr skipt- ir það mestu máli, að farþegar, áhafnir og flugválar komu ætíð heilar í höfn.“ 282 þús. kr. hreinn hagnaður. Framkvæmdastjórinn las þvi næst upp endurskoðaða reikn- inga félagsins og skýrði ein- staka liði þeirra. Tekjur af fiugi árið 1954 reyndust vera kr. 22.571.000,10, og skiptust þannig, að tekjur af innlands- flugi námu 50,3% af heildar- tekjum, en 49,7% af millilanda- flugi. Hreinn hagnaður varð kr. 282.160,88 eftir fymingar, sem námu kr. 1.311.243,18. Skýrt var frá því, að stjórn félagsimj hefði ákveðið að leita samþykkis fundarmanna um að hluthöfum skyldi greiddur 4% arður fyrir árið 1954, og var það samþykkt. Bygging flugskýlis nauðsyn. Svohljóðandi tillaga frá Magnúsi J. Brynjólfssyni var borin upp og samþykkt sam- hljóða: „Aðalfundur Flugfélags íslands h.f. haldinn 9. des. 1955 skorar á ríkisstjómina að hefjast þegar handa um bygg- ingu flugskýlis á Reykjavíkur- flugvelli, Það er ábyrgðarhluti að stofna í hsettu flugsamgöng- um og tuíTum milljóna verð- mæta með % í að láta þetta þýð ingarmikla mál d r; gast lengur“ Er Bjarni Benediktsson fylgdi því úr hlaði, kvaðst hann hvggja, að mönnum væri lítið um það gefið, að löghelga ættarnöfn, en sagðist hafa orðið sammála frumvarpinu af því, að hann teldi það raunhæfara en núgild- andi lög, sem aldrei hefðu verið framkvæmd. Síðar í umræðunum sagðist hann bera það fram af því, að hann teldi því stefnt gegn ættamöfnum, en ekki skyldi standa á sér, ef þingið Vildi nú þegar samþykkja algert bann við þeim og íyrirskipa þeim, sem nú bera þau, að leggja þau niður. Jörundur Brynjólfsson vildi ekki fallast á þá röksemd, að þótt lög væru brotin þá bæri að afnema þau og kvaðst ekki sjá, að minni erfiðleikar værti á að framfylgja ákvæðum frumvarps- ins, ef að lögum yrði, en núgild- andi lögum. Var hann eindregið andvígur ættarnöfnum, sagðist telja hinn foma nafnasið einn sterkasta þáttinn í okkar menn- ingararfi og væri hann nátengd- ur varðveizlu tungunnar. Við hefðum aldrei endurheimt sjálf- stæði okkar, ef við hefðum ekki varðveitt tungu ókkar og því væri hörmulegt ef , sama kyn- slóðin og að miklu leyti .sama þingið sem stofnaði lýðveldið, færi að innieiða sið, sem gæti orðið þess valdandi, að við glöt- uðum tungunni. Gylfi Þ. Gislason kvaðst taka undir öll rök Jörundar. Hafi ekki verið hægt að meina mönnurn hingað til að taka upp ólögleg ættarnöfn, þá verði það ekki auðveldara eftir samþykkt þessa frumvarps. Hér væri vandamál við að glíma, en það þyrfti að leysa, bæta ur göllum núgildandi laga en ekki hverfa að fullkom- inni uppgjöf eins og fælist í þessu frumvarpi. Gylfi kvað það sína skoðun, að 511 ættarnöfn ættu að hverfa úr tungunni. Heppilegasta leiðin væri sú, að það yrði við kynslóðaskipti þann- ig, að fulltíða menn þyrftu ekki að skipta um nöfn. En hér væri svo mikið í húfi, að betra væri að lögbjóða slíkar nafnbreytingar en að rýmka um ákvæðin og lög- leiða ný ættárnöfn. Hér væri um stórmál að ræða. Hin forna nafnvenja væri snar þáttur ís- lenzkrar tungu og íslenzkrar menningar og frá henni mætti ekki hverfa. Magnús Jónsson frá Mel tók mjög í sama streng. Kvað hann sér ógeðfellda þá hugsun, að af- nema ætti lagaákvæði vegna þess að þau væru brotin. Réttara væri að búa betur um hnútana. Þá sagðist hann ekki skilja ann- að en að kvenréítindasamtökin létu þetta mál til sín taka. Það væri undarlegt ef konur sættu sig við það, að týna nafni sínu og verða einskonar fylgifé manns síns. Bjarni Benediktsson var einn urn þá skoðun, sem virðist harla einkennileg, að með samþykkt frumvarpsins séu settar frekari hömlur á upptöku ættarnafna en nú eru, enda var sem hann fyndi hve hann hefði hált undir fæti, því að hann lagði mikla áherzlu á það, að hann væri andvígur ættarnöfnum og teldi þau ósrð. Tveim færeyskum stúd- entum verði boðið heim Einar Olgeirsson flutti við 2. umr. fjárlaganna breyt- ingartillögu um að tveim færeyskum stúdentum verði boðin ókeyp- is dvöl við Háskóla íslands til þess að nema ís- lenzk fræði og verði ætluð til þess fjárveiting, 80 þúsund krónur. Einar minnti á hve það tíðkast nú að þjóðir skiptist á stúdentum og að nokkrum erlendum stúdentum hefði gefizt kostur á að stunda nám hér á landi. Færeyingar eru sú norræn þjóð, sem okkur er skyld- ust, færeysk tunga er skyldust okkar tungu, svo að hvorirtveggja geta talað sitt móðurmál og þó skilið hvorir aðra. Við eigum því að greiða fyrir Færeyingum að nema íslenzk fræði og kynnast íslenzkum bókmennt- um. Samskipti Færeyinga og íslendinga hafa verið alltof lítil. Þrátt fvrir mikil ferðalög hafa fáir farið þangað. Einu verulegu skiptm við þá á síðari árum hafa verið að fá þá til að vinna á togurunum okkar þegar íslend- ingar hafa ekki fengizt á þá. Færeyingar heyja sína menningarbaráttu við erfiðar aðstæðnr og okkur Íslendíngum ber að sýna þeim samúð okkar á því sviði. Heimboð tveggja stúdenta frá Fær- eyjum væri kurt framlag til að efla kynni þessara tveggja bræðraþjóða og tengja menningu þeirra. Því miður reyndist áhugi stjórnarliðsins fyrir nor- rænni samvinnu í verki ekki svo mikill að það treysti sér til að samþykkja þessa tillögu. Vax hún felld. En þetta er mál, sem áreiðanlega verður ekki látið staðar numið ' fyrr en því verður sinnt.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.