Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.01.1956, Page 4

Nýi tíminn - 12.01.1956, Page 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimontudagur 12. janúar 1956 i — Mér finnst ég ekki geta i dáið nerna gera þetta. i Það er auðséð á síðunni, i jafnvel áður en stafur er les- inn á henni, að hér birtist svo- lítið viðtal við Ríkarð Jóns- son; og til þess er efnt í til- efni myndabókarinnar hans sem Norðri var að gefa út fyrir jólin. Og nú haldið þið vitaskuld að fyrsta setningin sé höfð eftir Ríkarði og lýsi á tilfinningaríkan hátt ein- hverri stórkostlegri ósk sem hann beri í brjósti. En setn- ingin er ekki eftir honum höfð. Aftur á móti var ég staddúr heima lijá honum um daginn og sat gegnt honum við skrifborðið: Þá hringir síminn, og ég heyri að það er gömul kona í hinum end- anum. Ég heyri þegar hvað á dagskrá er, en læt mér það að sjálfsögðu í léttu rúmi liggja — unz gamla konan segir þessi orð: „Mér finnst ég ekki geta dáið nema gera þettá“. Hvað var til umræðu í símanum? Þau voru að tala um mynd sem Ríkarður ætlar að gera af manni gömlu konunnar. Þau höfðu ákveðið þetta áður, en nú var gamla konan að spyrja hvenær unnt mundi að hefjast handa. ■ — Það ætti að geta orðið núna í vikunni, sagði Ríkarð- ur. Við skulum þó öll vona að gamlan konan lifi lengi enn. — Hvað heldurðu að þú sért búinn að gera margar mannamyndir um dagana? :— Ég hef það einhverstaðar - uppskrifað, en aldrei lagt það saman. Ætli það séu ekki eitt- hvað á þriðja liundrað brjóst- myndir sem ég hef gert af einstaklingum. . ' . — Hvernig verður slík ' mynd til? — Ég byrja venjulega á þvi ' að lilaða upp ólögulegum strók af leir. Svo fæ ég mann- inn til að sitja fyrir, og þá • er fyrsta verkefnið að fá fram þær stellingar sem á einhvern ■ hátt væru einkennandi fyrir manninn. Þvínæst byrjár mað- ■ ur að þjarma að leirnum, að- allega með puttunum; í liann i mótar maður andlitsdrætti og svip mannsins. Þegar því er lokið getur hann farið. Næsta skrefið er að hella fljótandi gipsi yfir leirmyndina. Það gipsform verður að steypa í minnst 2 hlutum; ella næðist það ekki utan af leirmyndinni. Gipsformið er að sjálfsögðu negatíft: mynd mannsins er innan á því. Þriðji og síðasti áfanginn er sá að þétta þetta gipsform með sérstakri að- ferð og hella síðan í það því efni, sem myndin á að verða úr, hvort sem það er heldur gips eða eir. Þegar gamla gips- formið er tekið utan af þeirri steypu, stendur þar endanleg mynd. Er ekki misjafnlega erfitt að gera myndir af mönnum? Eru til dæmis tröllkarlarnir með brennivínsnefin ekki auð- veldari en nettmennin með grísku nefin? — Þetta halda margir, en mér hefur nú ekki virzt það. Ef til vill er auðveldara að ná fyrstu dráttunum í stórskornu andliti, en þegar öllu er á botninn hvolft hafa allir sinn sérstaka svip sem mynd- höggvarinn verður að ná; nei, þar er ekki allur munur á. ■— Þú kynnist mörgum mönnum á annan hátt en flestir aðrir, Ríkarður: er þeir sitja fyrir. Hegða menn sér ekki með ýmsum hætti í myndhöggstofunni sem annar- staðar í tilverunni? — Ojú. Sumir hafa gaman af að sjá sín eigin andlit fæðast, og fylgjast fast með starfi myndhöggvarans. Aðrir skipta sér lítið af því — láta gjarnan sem þeir viti ekki hvað verið er að gera né í hvaða erindum þeir sjálfir eru á þessum skrýtna stað. Ég held að Sigríður í Brattliolti sé mér einna minnisstæðust allra sem setið hafa fyrir hjá mér, og hreinskilin var hún a. m.k. Ég fór austur til hennar fyrir nokkrum árum að teikna hana; ætlaði svo að gera höggmynd eftir teikningunni. Það stóð í nokkru þjarki að ég fengi leyfi til að koma með blýantinn, en fyrir full- tingi Þorsteins á Vatnsleysu tókst það. Ég var í Bratt- holti góða stund úr degi að kíkja á hana. Hún sagði ekk- ert fyrst lengi vel. Er ég taldi myndina búna, fór gamla kon- an að skoða hana og setti upp ygglibrá allmikla. Ég sé að henni þykir lítið til koma. Síðan fer hún fram í eldhús að mausast á kaffi. Þegar hún kemur aftur segir hún: „Þetta er ljóta andskotans myndin, og svo geturðu ekki einusinni haft svart þar sem svart á að vera, eins og húfan og skúfurinn. Og ég sem var bú- in að greiða mér, og svo hef ■ urðu þetta allt úfið“. Hún % „Spegillinn hans Ríkarðs“ — sveinsstykkið sem gerði völundinn frægan. greiddi sér sem sé upp úr vatni áður en við byrjuðum og límdi hárið niður. Svo fór ég út á tún að tala eitthvað við bílstjórann sem beið mín. Þegar ég kom aftur inn var myndin horfin. Ég spurði hvað orðið hefði af henni. Ég tók hana, sagði gamla konan, og ætla að geyma hana. Hún lét fyllilega í það skína að hún réði yfir myndinni, hún kæmi mér ekki lengur við, enda lítil eign í. Svo fórum við að drekka kaffi af mikilli kurt, en myndina hef ég ekki séð síðan. Þegar við komum niður á Selfoss reyndi ég að rissa upp aðra mynd af henni. Ég held hún sé ekki alveg út í bláinn. Að minnsta kosti hafa allir kunnugir þekkt hana og talið hana ósvikna Sigríði í Brattholti. — Nei, henni er ekki fisjað saman, henni Sigríði í Bratt- liolti. Þau hafa engjar upp undir Gullfossi, má ég segja; og hún hafði jafnan þann sið að hafa með sér hest á engj- arnar og flytja heim á hon- um á kvöldin. Og þriðja bagg- ann bar hún alltaf sjálf, alveg fram á síðustu ár. Það er alténd tuttugu mínútna gang- ur. Þannig segir Rikarður Jóns- son frá Sigríði í Brattholtí, sem bjargaði Gullfossi og sóma landsins fyrir eina tíð. Og blaðamanninum finnst að þótt þau yrðu ekki á eitt sátt um myndlistina, muni þau að öðru leytí eiga allvel skap saman. — Ég man líka eftir því, segir Ríkarður, hve erfitt var að fá Sigfús gamla Sigfús- son þjóðsagnaþul til að sitja fyrir í þeim steliingum sem mér fundust beztar. Ég vildi gera mjmd af honum þar sem liann sæti við skriftir, álúfe ur, rýnandi í handrit. En hann var alltaf að reigja sig, vildi sitja uppréttur, — og sagði eitt sinn; „Það hefur aldrei verið mitt eðli að drúpa höfði“. — Þú varst einhvemtíma að höggva þá í Færeyjum? — Ég var fenginn til Fær- ey ja um sumarið 1934 að gera myndir af Patursson og ýmsum fleiri. Meðal annars gerði ég þar mynd af prófasti einum, sem alltaf var kallaður provst Dahl. Hann þótti víst enginn gáfumaður, held ég, en vann sér það til ágætis í við- skiptum við Dani að fá leyfi til að prédika á færeysku og prenta guðsorð á tungu sinni; áður hafði það verið bannað. Ég kynntist þar William Heinesen, sem heimsótti mig annað slagið þar sem ég var að dudda. Hann sá til dæmis leirmyndina af provst Dahl — fyrstu gerðina. Hann lét vel yfir. Svo þegar ég var bú- inn að steypa gipsformið af leirmyndinni kom hann aftur. Mér þótti myndin góð um daginn, 'segir hann þá, en þessi er enn betri. Hvernig má það vera? spyr ég. Jú, hausurinn er so tómur, anz- ar hann, — Af hverju hefur þú mest gaman í starfi þínu? — Ég gæti trúað að ég hefði ekki meira gaman af öðru en gera mannnamyndir; vanda- samur útskurður er líka mjög skemmtilegur. I raun og veru hef ég alltaf haft tilhneigingu til að hafa gaman af vanda- sömum viðfangsefnum, glíma við eitthvað. — Hvernig byrjaði þetta-? — Ég byrjaði svona að tálga eitthvað 5-6 ára. Faðir mimi var líka mikill smiður, einkum á jám: ég var inikið með honum í smiðjuimi, knúði belginn — þetta beindi mér á brautina. Fyrir fermingu skar ég mest úr tálgusteini sem var á þremur stöðmn í landar- eigninni. 1 fjallinu fyrir ofan Strýtu er Tobbugjót, og geng- ur mikill kambur fram með henni öðrum megin. Neðst í kambinum verður hjalli; í þessum hjalla fundum við strákamir brúnan tálgustein, og úr honum tálgaði ég ýmis- konar fígúrur: taflmenn, ker og þess háttar. Þá var ýsu- beinsskeiðið á enda mnnið. Seinna fundum við rauða námu ofar í f jallinu. Sá steinn reyndist mér beztur; það var í svonefndum Hultrahömrum. Nokkur mannhætta var að komast að þeim steini. Að lok- um fundum við gi-ænan tálgu- stein inni á Búlandsdal. Ég var búinn að skera mikið fyrir fermingu, án tilsagnar. 14 ára fór ég vinnupiltur að Hafra- nesi við Reyðarfjörð og var þar tvö ár. Á þeim árum skar Ríkarður Jónsson / ég ekkert; það var nóg ann- að að gera, en ég var mikið í smiðju. Svo kom ég hingað suður 17 ára og fór að læra hjá Stefáni Eiríkssyni, en eig- um við að fara út í það núna ? En mikill snillingur og kenh- ari og valmenni var sá maður. — Mér finnst ég endilega kannast við þennan náunga, segi ég, og bendi á haus sem liggur þar í hillu; — getur það verið ? — Nei, það getur ekki verið. Þetta er karl sem ég þekkti einu sinni á Djúpavogi. Mig minnir hann vera eitthyfeð í þessa áttina, þegar hann var að yggla sig og gretta. Það kom nokkuð oft fyrir, og mig langaði til að festa grettumar hans í steininn. Svo förum við að fletta Norðra-bókinni; og þama þekki ég mann sem ég sá einu sinni, og er spéfugl í nefi hans: Árna Þórarinsson. Og nú er myndin komin hér á síðuna, til dæmis um lista- manninn Rikarð Jónsson eins og spegillinn er til dæmis um þjóðhagann. Þeir Ríkarður og Árni voru nágrannar í Reykja- vík um 10 ára skeið, og mikið lof ber myndhöggvarinn á klerkinn. Hann mótmælir því að hann hafi verið skreyt- inn. Eitt sinn sagði séra Árni Þórarinsson Rikarði hvernig hann heiði fyrst heyrt hans getið. Árni var þá prestur í Miklholti og var að tala í síma við vin sinn vestur undir Jökli, eitthvað um 300 kílómeti’a leið, sagði hann — enda aldrei smámunasamur með vega- lengimar. Þá segir maðurinn séra Áma að hann sé einmitt núna að lesa grein í blaði um einhvern eindæma snilling að austan, frænda læknisfrúar- innar í Stykkishólmi; .— hún var vansköpuð af fegurð, sagði klerkur. Ég bið hann blessaðan að senda mér blaðið þegar hann sé búinn að lesa það. Þegar simtalið er búið verður mér gengið út undir vegg sem snöggvast. Þegar ég kem aftur inn liggur einhver pakki á borðinu hjá mér. Ég fæ strax illan bifur á þessum pakka, finnst eitthvað furðu- legt við hann. Ég fer þó til og opna hann. Þar er þá blað- ið komið vestan undan Jökli: það voru kannski liðnar 5 Framhald á 11. síðu. r “ VÖIINDAKK VIÐA —_____--------------

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.