Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.01.1956, Síða 8

Nýi tíminn - 12.01.1956, Síða 8
8) — NÝI TÍMINN — FimmtudagT.ir 12. janúar 1956 I^slenzkan er eitt það þjóðmál heims sem fæstir tala og skilja, og erfitt er fyrir höf- und sem það mál skrifar að hljóta áheyrn til jafns við höfunda stórþjóða. Til þess hrökkva engan veginn verð- leikar hans sjálfs, heldur þurfa að koma til menn sem þýða bækur hans, kynna þær og ^kýra. Og til þess þarf vandaða menn og snjalla; Halldór sagði í ræðu sinni í nóbelsveizlunni í Stokkhólmi að íslenzkan væri „bókmennta- mál svo ágætlegt, að sá list- rænn miðill mun torfundinn í heimi, sem gefi rúm fleiri til- breytingum, hvort heldur er í því sem kallað er útsmogið el'legar hinu sem er kennt til tíguleika“. Kannski er það ókleift að kynna erlendum þjóðum til hlítar snjöllustu verk íslenzkra bókmennta, ekki sízt þau sem skrifuð eru af íþrótt Halldórs sjálfs, en þó hefur kynningin tekizt með þeim ágætum að nú hefur ís- lenzkur höfundur í fyrsta ‘skipti hlotið þau bókmennta- verðlaun heims, sem mesta at- hvgli vekja, og varð hann þó jafnframt að vinna bug á andstöðu sem var sprottin af annarlegum hvötum. Margir menn hafa unnið að því að kynna skáldsögur Hall- dórs Kiljans meðal annarra þjóða, íslenzkir jafnt sem er- lendir, en fremstur í flokki er tvimælalaust Svíinn Peter Hallberg, dósent við háskól- ann í Gautaborg. Hann hefur ekki aðeins þýtt margar bæk- ur Halldórs, heldur skrifað um hann fjölda ritgerða og siðast bókina miklu um æsku- verlc Halldórs, Den store váv- aren, og vinnur nú að fram- haldi hennar. Og það er raun- ar mjög vansagt að telja að' Peter Hallberg hafi kynnt er- lendum þjóðum verk Kiljans, einnig við Islendingar verðum að sækja til hans vitneskju um mesta rithöfund okkar, æfi hans og störf. Það er engum efa bundið að enn hefði dreg- izt úr hömlu að sænska aka- demían veitti Halldóri nóbels- verðiaun, ef ekki hefðu komið til störf Peters Hallbergs, og þá þalckarskuld fáum við Is- lendingar seint goldið. Peter Hallberg er ungur maður, aðeins 39 ára að aldri; hann lauk lísentsíats-prófi í norrænum bókmenntum haust- ið 1943, en doktorsritgerð sina varði hann vorið 1951, er hún mikið verk og fjallar einkum um merkingu ýmissa náttúru- lýsinga í sænskri ljóðagerð á 19. öld. Sitthvað fleira hefur hann skrifað um sænskar bók- menntir, auka kennslustarfa sinna við háskólann í Gauta- borg, þannig að hann hefur einatt orðið að sinna íslenzk- um bókmenntum í hjáverkuin sínum, og eru þó afköstin á því sviði slík að þau ein mættu virðast ærið verkefni. Peter Hallberg og kona hans Kristín Kristjánsdóttir tóku þátt i nóbelshátíðahöld- unum í Stokkhólmi. Áður var Peter giftur systur Kristínar, Rannveigu heitinni Kristjáns- dóttur, sem er lesendum Þjóð- viljans að góðu kunn, en hún vann með manni sínum að bókmenntastörfum í Svíþjóð, þýddi með honum verk Kilj- ans og einnig bókmenntasögu Kristins E. Andréssonar sem nú er nýkomin út á sænsku. Ég notaði Tækifærið meðan ég dvaldist í Stokkhólmi og spjallaði ofurlítið við Peter. — Hvenær kynntist þú fyrst Halldóri og verkum hans ? — Ég kom í fyrsta skipti til Islands sumarið 1936 og var á norrænu móti, en þar las Kilj- an upp úr verkum sínum. í lokasamsætinu, sem lialdið var á Hótel Borg, lenti ég við hliðina á Birni Sigfússyni og hann ræddi mikið við mig um íslenzkar bókmenntir og sér- staklega um bækur Halldórs, og síðan skrifuðumst við lengi á um þau efni og önnur. En þetta voru eiginlega fyrstu kynni mín af Halldóri. Síðan kom ég til íslands vorið 1944 og var þá sendikennari við háskólann um þriggja ára skeið. Þá var íslandsklukkan að koma út, og ég fór þegar að revna að þýða hana; komu fyrst þrír kaflar úr þeirri þýð- ingu í tímaritinu Ord og Bild. Bókaútgáfa sænsku samvinnu- Rœtt við Peter Hallberg sem manna mest og bezt hefur kynnt og skýrt skáld- skap Halldórs Kiljans er- lendis ★ félaganna fékk þá þegar á- huga á því að gefa bókina út og bað mig halda verkinu áfram, og Klukkan kom svo út í heilu lagi 1948. Vakti hún mikla athygli og fékk mjög góða dóma, hvar sem á hana var minnzt í blöðum og bókmenntaritum. Ég hafði bæði gagn og gaman af því að þýða þessa bók og lærði á- kaflega mikið á því. Mér fannst þá þegar mikið um það sérkenni Kiljans, að mað- ur les ekki bækur hans ein- vörðungu til þess að kynnast málalokum, heldur er stíllinn svo Ijóðrænn og fagur að maður nýtur hverrar síðu og hans eru auðvitað að sama hverrar setningar. En bækur skapi vandþýddar. — Og eftir þetta komu bækur Halldórs eins og skriða í Sviþjóð? — Já, það má segja. Næsta haust kom Sjálfstætt fólk í þýðingu Önnu Ostemiann, og voni dómamir um hana ekki síður lofsamlegir. Við Rairn- veig þýddum síðan Ljósvíking- inn, og það er eittlivert skemmtilegasta verk sem ég lief unnið. Hánn kom út í tvennu lagi; Verdens Ijus 1950 og Himlens skönhet 1951. Ég held að sú bók hafi stað- fest skoðanir sænskra bóka- manna á því hversu mikill rit- höfundur Halldór er. I>á kom Atómstöðin 1952, Salka Valka í nýrri útgáfu og þýðingu 1953, en hún hafði áður komið út fyrir stríð. Smásagan Ung- frúin góða og húsið kom út 1954, Gerpla sama ár í þýð- ingu Ingegerd Fries, og nú síðast kom út smásagnasafn undir heitinu Piplekaren, — Hvenær fórstu fyrst að skrifa um Kiljan? — Það gerðist eiginlega jafnsnemma þýðingunum. Þeg- ar fyrstu kaflamir úr ís- landsklukkunni komu í Ord og Bild skrifaði ég dálítið jTirlit um verk Kiljans og Klukkuna sérstakléga; það var 'éeint 'á' ariöu í947. ;*Þá PETER HALLBERG kom Verðandiritið 1952 (bók- in sem Heigafell gaf út á þessu ári). Síðan flutti ég fyrirlestra um Kiljan við háskólann I Gautaborg 1953 og 1954, og þau tvö ár vann ég mest að foökinui um æsku- verk Halldórs, Den store váv- aren, sem kom út seint á ár- inu 1954. — Það heíur verið mikið verk að safna efni í þá bók. — Ég þurfti að leita fanga nokkuð víða. Ég var á Is- landi bæði 1951 og 1952 til að undirbúa verkið og fór þá t.d. gegnum mikið af blöðum frá þeirn tíma er Halldór hóf rithöfundarferil siim. Stefán próféssor Einarsson hefur ver- ið mér mjög hjálplegur; hann hafði safnað miklu af bréfum Halldórs og gert afrit af Öðr- um og lét mén. það allt í té. Og sjálfur hefur Halldór verið furðu seinþreyttur að svara fyrirspurnum mínum, og ég undrast hversu vel og rétt hann man gamla atburði. — Hvenær kemur siðari hluti bókarinnar? — Ég géri mér vonir um að það verði næsta haust. Ég hef allt efnið í fórum mínum, en á eftir að ganga frá liand- ritinu. Hef ég sótt um leyfi frá kennslu í vor og ætla þá að setjast við. Er ætlunin að bókin verði þýdd jafnharðan á íslenzku og komi út hjá Helgafelli um svipað leyti. Ég hef hugsað mér að skrifa um bækur Halldórs hverja fyrir sig í réttri tímaröð, eins og í fyn-a bindinu, en liafa í lok- iu sérstakan kafla um stíl hans og vinnubrögð, hvernig gerðir sagnanna breytast í meðförunum osfrv. Það gerir mér auðveldara fyrir að Halldór hefur víða sagt frá aðdraganda ritverka sinna, og einnig sér maður oft af ritgerðum sem hann birtir, hvaða efni hann er að brjóta ti\ mergjar. Ég hlakka til að ganga frá þessu verki, séi-staklega vegna þess að nú er komið að inestu skáldverk- um hans, — Er einhver sérstök af bókum Halldórs sem þú tekur fram yfir aðrar? — Ég á ákaflega erfitt með að gera upp á milli Sjálf- stæðs fóiks og Ljósvíkings- ins, en þæí bækur finnst mér hátindarnir. Sjálfstætt fólk er kannski héilöteyptasta bók hans, rismikið verk og vold- ugt, en Ljósvíkitigúrinn er fiölbféyttari og etillinn enn- „Eiginlega er ég alltaf hnfnastur af þeirri bók sem ég er að lesa“ þá auðugri. En annars er reynsla mín sú að maður verði því hrifnari sem hann les oftar og betur; eiginlega er ég alltaf hrifnastur af þeirri bók sem ég er að lesa og vinna að. — En hvaða einkenni Hall- dórs hrífa þig þá mest? — Það er erfitt að segja; ef til vill þetta hvernig hann fellir saman í eitt kaldhæðni og ljóðrænu, t.d. andstæðurn- ar sem birtast í samtölum Arnar Olfars og Ólafs Kára- sonar. Þá kann ég vel að meta að bækur hans allar bera greinilega með sér að hann aðhyllist ekki kenning- una um list listar vegna, heldur er uppsprettan æfin- lega samúð með mönnum og sérstaklega þeim sem eiga bágt, eins og hann lýsti bezt sjálfur í ræðunni sem hann flutti i nóbelsveizlunni. Mér finnst skáldskapur Hall- dórs ákaflega íslenzkur; mér finnst ég skilja Island og Is- lendinga miklu betur en áður eftir að ég hef kynnzt verk- um hans. Það er sérstaklega merkilegt hversu vel hönum . hefur tekizt að samræma ís- lenzka arfleifð afstöðu nú- tímamanns; hann er nútíma- maður út í æsar án þess að týna sambandi sínu við liðna tíma og sérstaklega sögu ís- lendinga. Það má virðast nær- tækt verk fyrir íslenzkan rit- höfund að hagnýta sögu þjóð- ar sinnar og reyna að byggja ofan á hana, en hættan er sú að það verði ekki lifandi list heldur „sögulegur skáld- skapuri' í slæmri merkingu; en Halldóri tekst að gæða söguna nýju, fersku lífi. Ég held að reynsla lians í æsku hafi ráðið miklum úrslitum, Hann kynntist barn íslenzkri' erfðamenningu, dvaldist síðan langdvölum erlendis og sneri sér aftur að uppruna sínum af sjónai’hóli heimsmenning- arinnar. Tíminn kringum Vef- arann er án efa góður lykill að þróun Halldórs og ekki síður árin sem hann dvaldist , í Ameríku; þar öðlast hann nýjan skilning á íslenzku þjóð- erni. — Hvers vegna hafa Svíar svona ruiklar mætur á bókum Halldórs? — Þegar bækur Halldórs fóru að birtast hér, voru þær í rauninni alveg nýtt fyrir- bæri í bókmenntum áranna eftir styrjöldina. Margir höf- undar okkar semja eiginlega ekki sögur, heldur sálarlífs- lýsingar, en Halldóri tekst að samræma þetta tvennt. Þekk- ing hans er óvenjulega altæk, hann kann nútíma sálarfræði og notar hana, en hann gleym- ir því aldrei að hann er að segja sögu; allir hafa eitthvað _ að sækja í bækur hans. Hann hefur endumýjað sagnalistina í skáldsögugerð; ýmsir hafa haldið því fram að timi skáld- sögunnar væri liðinn, en Hall- dór hefur sannað á hinn til- þrifamesta liátt að það er hægt að semja raunverulega skáidsögu án þess að verða yfirborðskenndur reyfarahöf- undur. Og eitt einkenni Hali- dórs er erfitt að skýra en ' skiptir þó meginmáli. Hann er t.d. að skrifa um Óseyri við Axlarfjörð og lýsingár hans eru sérkennandi og rammís- lenzkar, og þó finnst manni að sagan gæti gerzt hvar sem er í heiminum; honum tekst að Ijá frásögn sinni sammann- legt gildi sem skírslcotar til fólks alstaðar. Ég vil bæta því við að það er engum efa bundið að bælcur Kiljans munu hafa mikil áhrif á sænSkar bókmenntir; þess sér þegár iherki. — M. K.

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.