Nýi tíminn


Nýi tíminn - 12.01.1956, Side 9

Nýi tíminn - 12.01.1956, Side 9
4 Laugardagur 31. desember 1955 — 1. árg. — 43. tölublað T Orðsendingar Strandadís. Bréf þitt með teikningunni, sem átti að fara í samkeppn- ina kom ekki fyrr en um miðjan desember og það var heldur seint. Þá var farið að setja blaðið í prentsmiðjunni og búið að ákveða úrslitin. Við þbkkum þér kærlega myndina þína af ,,bæn- um með burstir fjórar“. Hún er vel gerð. — Þess má geta að Strandadís á heima á einum nyrsta bæ lands- ins. Hún skrifar bréf sitt 16. nóvember, svo að það var mánuð á leiðinni til ritstjórans. — Skriftarkeppnin er í fullum gangi. Mörg bréf bárust með jólapóstun- um. í éinu bréfi úr Dala- sýslu voru blöð frá 7 þátttakendum í keppn- inni. Nú eru síðustu for- vöð að láta bréf sín með fegurðarskriftinni í póst. Þ. 10. janúar verður dæmt' um skriítina. Ármann Ingi Olgeirs- son. Beztu þakkir fyrir þitt góða bréf. Nú skul- um við reyna að manna okkur upp á nýja árinu og verða við óskum þín- um og margra annarra og birta íþróttafréttir í stuttu máli. Um skákina er öllu erfiðara að birta nokkuð, sem að gagni gæti komið, sökum rúm- leysis. Beztu kveðjur til systkinanna fjögurra Bólcin um ísland. Þið, sem hafið gerzt þátttak- endur sem höfundar að bókinni um ísland, megið vænta bréfs um þetta efni, sennilega um 10. janúar. Stefáai Björnsson, Geit- hálsi. Við vorum í dag, 29. desember, að fá teikninguna þína, en höfum hugboð um að langt sé síðan þú sendir bréfið. Það er að vísu ekki dagsett, en mun , hafa lent á kyrrlátum stað, þar sem það hefur legið þar til nú. Við þökkum þér myndina af húsinu með trjánum í baksýn og sólinni í há- degisstað. Ljósálfur. Það var gaman að fá bréfið þitt með vísunum o. fl. Þú færð línu frá okkur kringum 10. jan. ÞRAUTIR OG LEIKIR Veiztu livað er hægri og livað er vinstri? Hér er strik-------- Settu svona strik á blað. Skrifaðu fyrsta stafinn í nafninu þínu vinstra megin við strikið, en síð- asta stafinn í föðumafni bínu hægra megin við það. □ Strikaðu undir þær af eftirtöldum tölum, sem eru á milli 25 og 35. 76 — 18 — 28 — 30 — 16 — 59 — 31 — 48 — 36 — 24 — 37 — 11 — 63 — 51 — 26 — 19 — 30 — 44. Gerðu þetta svo hratt sem þér er unnt án þess að tefja við neina tölu. Skerptu athyglina! □ Þú átt án tafar að setja kross undir þá af eftirfarandi tölum, sem tölustafurinn 7 kemur oftast fyrir í og hring utan um þá tölu, sem talan 7 er ekki í. Skerptu athyglina! 8573271 — 5362108 — 7535765 — 4375747 — 65474664 — 3647636. □ Aumingja kisa Þátttakendur sitja í hring. Einn er köttur. Hann skríður til einhvers hinna og segir: „Mjá—á!“ Sá á að strjúka og kjassa kisu og segja: „Aumingja kisa“, en ekki má hann brosa né breyta svip. Kisa má koma þrisvar til hvers þátt- takanda, og á hann að ávarpa hana jafnoft. Kisa verður að vera svo skringileg og koma svo flatt upp á þann, er hún mjálmar að, sem hún getur, til þess að koma honum til að hlægja. Ef það tekst, verður sá sem hló, að taka við að vera köttur. Pósthólfið Ég óska eftir að kom- ast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldr- inum 12—13 ára ein- hversstaðar á landinu. Elín Stefáusdóttir Skaftahlíð 3, Rvík. Við áramót Jólin eru liðin og ára- mótin fara í hönd. Þetta eru stórhátíðir ársins. Auk kirkjulegra siða minnist íslenzka þjóðin jólanna á margskonar hátt annan. Ýmsir þjóð- legir siðir eru um hönd hafðir og brugðið í leiki og skemmtanir, er aðeins eiga við um jól og nýár og fram á þrettándann. Samkvæmt þjóðtrúnni á margt að vera á kreiki um þessar mundir, sem ella verður lítt vart, álf- ar og huldufólk flytur búferlum og jólasvein- arnir koma á kreik. Svo virðist sem jólasveinarn- eigi miklum vinsældum að fagna nú á dögum, þeir koma fram við ýmis tækifæri og á sjálfan jóladaginn kemur ein- hver jólasveinninn í út- varpið og talar til alh'a íslenzkra barna, sem hlustað geta. í þjóðsög- um segir, að jólasvein- arnir séu 13, byrji þeir að koma til byggða og bæja 13 dögum fyrir jól, svo komi einn á hverj- um degi, þangað til sá 13. kemur á sjálfa jóla- nóttina. Svo fara þeir að tínast burtu, einn á dag og sá síðasti á þrett- -ándanum. Ýms nöfn hafa . þeim verið gefin, en þessi eru öllum kunn: Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur eða Pönnusleikir, Þvörusleikir, Pottasleik- ir eða Pottaskefill, Aska- sleikir, Faldafeikir, Skyr- gámur, Bjúgnakrækir, j Gluggagægir, Gáttaþefur, | Ketkrókur og Kertasník- ir — Auk þessa eru nöfnin Hurðaskellir, Moðbingur, Hlöðustrangi, Móamangi, Flórsleikir og Þver.gjasleikir. Sá var siður á sveita- bæjum og reyndar við sjóinn líka að láta lifa ljós í hverjum krók og kima í húsi eða bæ á jólanóttina og nýárs- nóttina, og ’ mátti þá hvergi bera skugga á. Húsfreyja eða einhver annar gekk þá kringum bæinn og hafði yfir þuluna: — Komi þeir, sem koma vilja, veri þeir, sem vera vilja, fari -þeir, sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu. Var þá átt við hinar huldu verur þjóðsagn- anna. Mun þessi siður haldast enn á stöku stað. Nýársnóttin, stund tímaskiptanna, er mikil hátíðastund. Þá gerðust margir furðulegir at- burðir, þá var hægt að hitta á óskastund. Eru margar sagnir í þjóðsög- um okkar urn atburði tímaskiptanæturinnar. — Og þó að margt breytist með nýjum tímum, meiri hraða, aukinni tækni og breyttum lifnaðarháttum, mun þó svo fara um langa framtíð, að gaml- ar siðvenjur lialda áfram að setja svip á hátíðir og tyllidaga. Og þegar þið, sem nú eruð á barnsaldri, farið að segja barnabörnum ykkar um ÓSKASTUNDIN árnar öllum lesend- uni síiiuin velfarnað- á hinu nýja ári og þakkar ánægjulegt samstarf á Iiðna árinu. Fimmtudagur 12. janúar 1956 — NÝI TÍMINN (9 H.F. EIMSKlPAFtUG tSLANÐS alfundur Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja- vík, laugardaginn 9. júní 1956 og hefst kl. 1.30 e.h. D A G S K K Á : 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhög- uninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoð- aða rekstursreikninga til 31. desember 1955 og efnahagsreikning með athugasemdum endur- skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjóm félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykkt- um félagsins. 4. Kosning eins endurskoðandá í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf- um og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 5.—7. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðiblöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrif- stofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. eigi síðar en 30. maí 1956. Reykjavík, 28. desember 1955. Stjórnin. FnSrik og Korsfnoj efsfir Framh. af 1. síðu afrek Friðriks í skákmótinu í Hastings tekið af allan vafa, hann er enn í örum vexti sem skákmaður, og þó þegar kominn í fremstu röð. Af keppendum í Hastings voru tveir viðurkenndir stór- meistarar: Tajmanoff og Iv- koff, og a. m. k. þrir alþjóðlegir meistarar: Korstnoj, Darga og Golombek. Friðrik hefur enn ekki hlotið viðurkenningu sem alþjóðlegur meistari, en var búinn að vinna til hennar áður en til þessa móts kom, svo að væntanlega dregst það ekki lengi úr þessu að sú viður- kenning komi, Friðrik og Korstnoj voru einu keppendurnir er ekki töpuðu neinni skák á mótinu, báðir unnu 5 skákir og gerðu 4 jafn- tefli. Sjö vinningar af níu mögulegum er nærri 78%, sem er mjög hátt vinningahlutfall. Korstnoj er ungur taflmeistari, hann vann óvæntan og glæsileg- an sigur á alþjóðaskákmóti í Búkarest fyrir nokkru og á þessu ári varð hann skákmeist- ari Leningradborgar með mikl- um yfirburðum. Ivkoff varð 3. með 6 Ví> vinn- ing. Hann vann 5 skákir eins og Friðrik og Korstnoj, gerði 3 jafntefli en tapaði einni — fyrir Korstnoj. Ivkoff er einn af efnilegustu skákmönnum heims, hann var fyrsti heims- meistari unglinga og hann lief- ur unnið tvo glæsilega skák- sigra í Argentínu á síðasta ári. Til Hastings kom hann frá miklu alþjóðaskákmóti í Zagreb, í Júgóslavíu. Þar varð Smysloff efstur, en þeir Ivkoff og landi lians Matanovic deildu 2.-3. verðlaunum. Fjórði varð skák- meistarinn Tajmanoff, sem flestir töldu sigurstranglegast- an fyrir mótið. Hann vann 5 skákir eins og þrír hinir efstu, gerði 2 jafntefli, en tapaði 2; fyrir Friðrik í fyrstu umferð og fyrir Ivkoff í þeirri 5. Milli fyrsta og f jórða manns er bilið því aðeins einn vinningur en síðan kemur stórt bil, því að fimmti maður, Darga, skák- meistari Vestur-Þýzkalands, hlaqt aðeins 4% vinning eða slétt 50%.“ Hér fer á eftir lokaskák Friðriks, við Ivkoff, með at- hugasemdum Guðmundar Am- laugssonar: NIMZOÍNDVERSK VÖRN Síðasta urnferð skákmótsins í Hastings, 6. jan. 1956: Ivkoff Friðrik Ólafsson 1. il.2—d4 Rg8—f6 2. c2—c4 e7—c6 3. Rbl—c3 Bf8—b4 17. Bb2xd4 Rd7—c5 Hvítur mundi lítið græða á því að eltast við peðið á a6. T. d. 18. Bxc5 bxc5 19. Bxa6 Bxa6 20. Dxa6 Ha8 21. Db5 Hxa3 22.Hxc5 Da8 og Hb8. 18. Bd3—bl f7—f5 19. De2—b2 Dd8—e7 20. Rf3—e5 Hf8—d8 21. f2—f3 De7—g5 ] 22. Hcl—cl Rc5—d7 1 23. f3—f4 Dg5—e7 1 24. e3—e4 f5xe4 25. Bblxe4 Rd7xe5 26. Bd4xe5 Hd8—f8 4. e2—e3 5. Bfl—d3 6. Rgl—f3 7. 0—0 8. a2—a3 9. Ddl—c2 10. b2—b3 11. Dc2xc3 12. c4xd5 13. Dc3—c2 14. Bcl—b2 15. Hal—cl 16. Dc2—e2 d7—d5 0—0 c7—c5 RbS—d7 Bb4—a5 a7—a6 Ba5xc3 b7—b6 Rf6xd5 h7—h6 Bc8—b7 Ha8—c8 c5xd4 Hvítur á nú betra tafl, haná,> á samstæða biskupa og peðið á e6. bakstætt og einangrað. Eftir næsta leik tekst Friðrik að losna við annan biskupinn. 27. Hfl—f3 Rd5—f6 28. Be4xb7 De7xb7 29. Hf3—g3 .----- Hótar að drepa tvívegis' á ftt En Friðrik verst því auðveldlega. Sennilega var meiri von í að tvöfalda hrókana á e-línunni og reyna að þrýsta á e-peðið. 29. ----Db7—f7 30. Db2—d4 Rf6—h5 31. ----HcS—c2! Svartur má nú naumast vfir því að drepa á f4 vegna Hf3. 31. ----Hc8—c2 32. Dd4—e4 Rh5xf4! Með þesum leik jafnar Frið- rik taflið alveg. Nú getur Iv- koff ekki leppað i'iddarann: 33- Hf3? Hxg2f 34. Khl Hxh2f! 35u Kxh2 Dh5t 36. Kg3 Dh3f 37. Kf2 Dg2f 38. Ke3 Rd5t og vinnur. Eða 34. Kfl Hg4. 33. Be5xf4 Df7xf4 34. De4xe6t Kg8—h8 35. De6—e3 Df4—f6 og hér var samið um jafntefjá.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.