Nýi tíminn - 13.11.1958, Side 7
-6) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 13. nóvember 1958
o-
Útgefandi: Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson.
Áskrift'argjald kr. 50 á ári. — Prentsmiðja Þjóðviljans.
Helryk yfir íslandi
Þjóishvíld í landhelgl
Þar úti um niðdimma nótt
berst nístandi ángistarhróp.
Þjófsröddin, skjálfandi af skelk,
skytturnar kallar til leiks:
Eiríkur kemur að austan!
Eiríkur nálgast að vestan!
Eirikur ógnar að norðan!
Eiríkur brunar að sunnan!
Eiríkur! Aðstoð! Hjálp!
Um hrannirnar hraðfara brýzt
herskip á aumingjans kvein.
Morðtólin mannar það vel.
Mörgum er geigur í hug,
því Eiríkur kemur að austan,
Eiríkur nálgast að vestan,
Eiríkur ógnar að norðan,
Eiríkur brunar að sunnan --
og Eiríkur er ekkert spaug.
Hann Eiríkur á ekki vopn,
en augnaráð hviklaust og fast
mcetir þar manni sem þjóf,
mannraun og ofbeldishug.
Og Eiríkur er fyrir vestan,
Eiríkur kemur að sunnan,
Eiríkur kemur að austan,
Eiríkur kemur að norðan,
Eiríkur — alls staðar nær.
Þjófsröddin herðir sín hljóð:
Hraðara! Bjargið oss strax.
Senn verður úti um oss.
Angistin lamar vorn þrótt,
því Eiríkur kemur að austan
Eiríkur nálgast að vestan,
Eirikur ógnar að norðan,
Eiríkur brunar að sunnan!
Eiríkur — er hér um borð!
Allt til hins ýtrasta knýr
aflvélar bjargvœttur þjófs.
Stórbretans réttlætisstyrk
stefnt skal gegn Eiríki nú:
Eiríki, ögrandi í vestri,
Eiriki, glottandi í norðri,
Eiriki, storkandi í austri,
Eiriki, spottandi í suðri,
Eiríki — á íslenzkum sjó.
Leggur að Ijónseyra hvísl,
lágvær er þjófsröddin sneipt:
Eirikur er ekki um borð.
Oss hefur liklega dreymt.
En Eirikur er fyrir vestan,
Eirikur kemur að sunnan,
Eirikur kemur að austan,
Eiríkur kemur að norðan.
Eiríkur sigrar oss senn.
JAKOBÍNA SIGURÐARDÓTTIR
¥¥elrykið yfir fslandi hefur tí-
falda7t að magni á hálfum
mánuði. Við öndum því að
okkur, við drekkum það og ét-
um, það býr um sig í beinum
okkar. Vísindamenn segja okk-
ur að magnið sé að vísu ekki
enn hættulegt lífi okkar, en
þeir geta ekkert fullyrt um það
hver áhrif helrykið kann að
hafa á eríðaeiginleikana; það
getur bitnað á afkomendum
okkar kynslóð fram af kynslóð.
Og raunar eru einnig skiptar
skoðanir um áhrif helryksins á
líf og heilsu þeirra sem nú
hfa.
Fjfelrykið er mannkyninu ógn-
arleg áminning um það á
hversu djöfullegt stig kaida
stríðið er nú komið. Stórveldin
keppast við að sprengja og
sprengja, þótt hvert um sig
eigi nú nægilegt magn af kjarn-
orkusprengjum til þess að tor-
tíma mannkyninu margsinnis.
Mótmæli hinna hæfustu vís-
indamanna, mótmæli allrar al-
þýðu í hverju landi heims bera
engan árangur, helrykið þétt-
ist dag frá degi. Og ekki þarf
um það að deiia hverjir bera
sök á þessari ógnarlegu þróun;
það eru „hinar vestrænu lýð-
ræðisþjóðir“ sem beittu fyrstu
sprengjunni á varnarlaust íóik
í Japan og hafa síðan iýst
henni sem vernd og ímynd
Torlærðar
/^ft hefur það fundizt á und-
anförnum árum, að lýðræð-
isskelin er ekki ýkja þykk á
þeim íslenzkum stjórnmála-
flokkum sem í tíma og ótíma
berja sér á brjóst og vilna op-
inberlega um ást sína og tryggð
við leikreglur lýðræðisins.
Freklegast dæmið er kjördæma-
skipunin á íslandi. sem ekkert
er annað en skrípamynd af
lýðræði og þingræði, svo mjög
er íslenzkum þegnum gert þar
mishátt undir höfði. En lýð-
ræðisVokkarnir svonefndu hafa
hvað eftir annað misnotað
meirihluta sinn á Alþingi í því
skyni að úti’oka $ósíalista-
flokkinn frá áhrifaaðstöðu sem
honum ber að öllum þingræð-
isreglum. Hefur þar verið beitt
ýmsum brögðum en þau hafa
snúizt svo skemmtilega gegn
skemmdarverkamönnunum að
tími ætti að vera kominn til að
allir ís’enzkir stjórnmálaflokk-
ar tækju sig samán um að láta
leikreglur lýðræðisins gilda,
jafnt í kjördæmaskipuninni og
í viðskiptum sínum á Alþingi.
¥j*inu sinni fundu lýðræðis-
■*-1 flokkarnir upp á því snjall-
ræði að setja í ýmis lög það
ákvæði, að þrír stærstu þing-
flokkarnir skyldu nefna mann
í nefndir. Þá voru þrir stærstu
þingflokkarnir Sjálfstæðisflokk-
urinn, Framsókn og Alþýðu-
flokkurinn. Þegar þetta breytt-
frelsis og friðar og öryggis.
Fyrr á þessu ári hættu Sovét-
ríkin tilraunum sínum ein-
hliða og skoruðu á Vesturveld-
in að gera slíkt hið sama, en
Vesturveldin neituðu með þeim
afleiðingum að Sovétríkin gerð-
ust aftur aðilar að þessum
dauðaleik. Og nú leggja Sov-
étríkin enn til að tilraunum
verði hætt um aldur og ævi
og nákvæmt eftirlit verði haft
með því að bannið sé haldið,
■en Vesturveldin vilja aðeins
fresta tilraunum í eitt ár, þótt
augljóst sé að slík frestun yrði
m.a, hagnýtt til þess að enn
fleiri þjóðir kæmu sér upp
þessum ógnarvopnum.
Ýslendingar skelfast að von-
um helrykið yfir landi sínu
En við erum ekki aðeins þol-
endur, við erum aðilar að hel-
sprengjustefnunni. Með her-
námssamningnum og þátttöku
okkar í Atlanzhafsbandalaginu
berum við okkar ábyrgð á
stefnu og aðgerðum Vesturveld-
anna i kjarnorkumálum. Er
ekki helrykið sem daglega sí-
ast inn i okkur nægileg áminn-
ing um þáð að okkur beri í
staðinn að efla stefnu lífs og
friðar? Er nokkuð vit í öðru
en að íslendingar styðji kröf-
una um algert og ævarandi
bann við kjarnorkuvopnum og
öllunr ti’raunum með þau?
leikreglur
ist, og Sósíalistaflokkurinn varð
þriðji stærsti flokkur þingsins,
þóttu þetta ófær og hættuleg
lagaákvæði, og lentu upphafs-
menn þeirra í hálfgerð vand-
ræði. Þegar lög voru sett um
Norðurlandaráð, og ákveðið að
íslendingar hefðu þar fimm
fulltrúa, voru góð ráð dýr, því
Sósíalistaflokkurinn hefði feug-
ið einn þeirra við kosningar í
sameinuðu Alþingi, Fundu þá
Bjarni Benediktsson og aðrar
álíka lýðræðishetjur það upp
að láta neðri deild þingsins
kjósa þrjá fu’ltrúa og efri deild
tvo, og tókst með þessu lýð-
ræðislega tiltæki að útiloka
sósíalista um sinn. En svo fór
að Bjarni varð að sætta sig
við að sitja á þingum Norður-
landaráðs við hliðina á Einari
Olgeirssyni. Og enn skal nefnt
dæmið sem varð tilefni þessara
lína. Fyrir sjö árum samþykktu
þríflokkarnir, sem mest tala
um lýðræði, lög er þeir sjálf
ir viðurkenndu að æltu að úti-
loka einn þingflokkinn frá störf-
um í utanríkismálanefnd AI-
þingis. Var nefndinni gert að
kjósa þriggja manna „undir-
nefnd“, er gegna skyldi hinu
eiginlega verkefni nefndarinn-
ar. Með þessi lagaákvæði hafa
upphafsmenn þeirra verið i
hvínandi Vándræðum síðustu
árin, og tekið þann kost að
leggja niður utanríkismála-
nefnd. Er vandinn nú orðinn
spaugilegur og hefur verið lagt
fram stjórnarfrumvarp um að
afnema aftur ákvæðið um
þriggja manna undirnefndina,
sem nú væri hugsanlegt að
útilokaði Sjálfstæðisflokkinn!
„Reynslan hjá undanfarandi
ríkisstjórnUm hefur sýnt að fyr-
irkomulag þetta hefur ekki
reynzt heppilegt“„ segir í grein-
argerð! Það sögðu raunar þing-
menn sósíalista íyrir, þegar er
þetta fárárnlega ákvæði var
• lögfest. En lýðræðishetjumar
virðast ekki láta sér segjast
fyrr en hætta er orðin á að þeir
verði sjálfir fyrir útilokunará-
30 má! á dagskrá
— eitt afgreitt
Á fundi Norðurlandaráðsins í
gær voru 30 mál á dagskrá, en
aðeins eítt þeirra hlaut af-
greiðslu. Var það tiilága um að
skora á ríkisstjórnir Norðurland-
anna að koma sér saman um
samræmdan sumartíma
kvaeðum sínum, og ekki er von-
laustað þetta verði sæmileg-
ustu lýðræðisflokkar þegar peir
eru búnir að reka sig nógu
oft á.
Gömlu bílarnir
dugðu vel
Nýlega fór fram hin árlega
kappaksturskeppni gamalla bíla
frá London til Brighton.
Roger-Benz-bifreið módel 1888
sigraði í þessari keppni hinna
öldruðu farartækja, sem dugðu
vel þrátt fyrir háan aldur.
Splúnkuný þyrilvængja, sem
átti að hafa eftirlit með „kapp-
akstursbílunum“ varð hinsvegar
að lenda á leiðinni vegna vélar-
bilunar.
Fimmtudagnr 13. nóvember 1958 — NÝI TÍMINN — (7
Góðir fundarmenn.
•■Það er ekki árennilegt fyrir
eins „stimplaðan" mann og mig
að eiga að tala þannig um
lierstöðvamálið að ekki verði
á það litið sem einhverskonar
flokkslegan áróður. Raunar lét
Vísir þess getið með síórum
fyrirsögnum einhvemtíma í
sumar að ég mundi vera „far-
jjm úr kommúnistaflokknum"
— að því er manni skildist
vegna ungverja. En ekki alls
fyrir löngu skrifaði ég fáeinar
smágreinar í blað einmitt í
sambandi við þetta mál og þá
gerði Morgunblaðið mig óðara
„einn af framámönnum komm-
únista“ og vítti mig meðal ann-
ars fyrir það að ég skyldi ekki
vera ungverji, heldur íslending-
ur og það meira að segja með
litlum upphafsstaf. í einni
þessari grein varð mér á að
segja: Það er tilgangslaust að
metast á um það hvort verra
sé austur eða vestur. Um þau
orð sagði blaðið að sjaldan
hefði „kaldranalegri og fávís-
legri yfirlýsing sézt í íslenzku
blaði en þessi“
Ég drep á þessi orðaskipti
til þess að minna á hversu örð-
ugt er að he-fja þetta mesta al-
vörumál þjóðarinnar úr hvers-
dagsnuddi pólitískra andstæð-
inga upp í þá hæð ofar stefn-
og stéttum sem því vissu-
lega ber.
Ifan*.
Svo sterk rök virðast að vísu
geta að höndum borið að allir
verði — eða finni sig knúða
til að vera — sammála. Sú
hefur til dæmis orðið raunin
í landhelgismálinu. Öllum ber
saman um að þar sé um lífs-
hagsmunamál okkar að ræða.
Allir mótmæla umsvifum erlends
hers í íslenzkri landhelgi. Allir
virðast sjá að slíkt ástand geti
haft lífshættu í för með sér.
En hvernig stendur þá á því
að margfalt geigvænlegri rök
í herstöðvamálinu skuli ekki
ná inn í meðvitund allrar þjóð-
arinnar? Hvernig stendur á að
hún skuli ekki einnig fordæma
einhuga umsvif erlends hers í
landinu sjálfu? Eða er þar ef
til vill ekki um neina lífshættu
^ð ræða?
Þvi miður stingur fólk oft
höfðinu í sandinn gagnvart
hættum sem þó óvéfengjanlega
vofa yfir. Mannlegt ímyndunar-
afl virðist stundum eiga ótrú-
lega erfitt með að gera sér
grein fyrir óorðnum atburðum,
jafnvel þótt þeir geti legið
Ijósari fyrir en hinir sem orðn-
ir eru að veruleika. Vanalega
eru það þá einhverjir stundar-
hagsmunir, sem slæva þannig
ímyndunaraflið.
Það er bláköld staðreynd að
erlendur her öslar um miðin
kringum landið til verndar ó-
tíndum veiðiþjófum sem ógna
þar fiskistofninum — aðalút-
flutningsvöru okkar. Enginn ís-
lendingur er svo harðsnúinn
hernaðarsinni að hann dirfist
að mæla slíku framferði bót.
En þarna blasir heldur ekk-
ert við annað en ofbeldi og
tjón. Þessvegna veitist ímynd-
%naraflinu svo auðvelt að eygja
lífshættuna sem þessu ástandi
fylgir.
Hitt er líka bláköld stað-
reynd að erlendur her hefur
reist sér stríðsvirki suður á
Reykjanesskaga. En þeirri stað-
reynd fylgir önnur staðreynd
sem orðið hefur mörgum íslend-
ingnum ennTaunverulegri. Hún
er sú að þetta virki hefur fært
okkur morð fjár í bú og átt
drjúgan þátt í því að gera ytri
kost okkar einn hinn álit-
legasta í heimi. Það er stað-
reynd sem segir að eitt sinn
unnu þrjár þúsundir lands-
manna í þágu hins erlenda
hers og að hingað hafa runn-
ið allt að 3500 milljónum króna
hans vegna síó'an árið 1942.
Þetta lítur ólíkt betur út en
opinskátt fiskiránið á miðun-
um, enda hefur það reynzt sízt
til þess fallið að hressa upp á
ímyndunaraflið.
Eigi að síður eru rökin jafn
óyggjandi fyrir því að lííshætt-
an sem okkur íslendingum
stafar af sjóhernaði breta á
íiskimiðunum er einber hé-
gómi í samanburði við þá ó-
mælanlegu lífshættu sem yfir
Samt er enn verið að ljúga
því að okkur að Atlanzhafs-
bandalagið eigi að verja okk-
ur fyrir rússneskri árás. Sann-
leikurinn segir auðvitað hjð
gagnstæða: Atlanzhafsbanda-
lagið og herstöðin á Reykjanesi
kalla yfir okkur rússneska árás
óðara en í odda skerst. Það er
mikil kaldhæðni örlaganna að
heitustu kommúnistahatarar
þessa lands skuli vera allra
manna sólgnastir í að fá yfir
sig rússneskar atómbombur.
Ég er ekki einangrunarsinni
í þeim skilningi að ég vilji
útiloka okkur frá heilbrigðum
ménningarsamskiptum við aðrar
þjóðir, hvorki í austri né vestri.
Hinsvegar tel ég þá beint að
sjálfsmorði stefnt ef vopnlaus
smáþjóð ánetjar sig trylltu
vigbúnaðarkapphlaupi hernað-
Ræða Jóhannesar úr Kötlum á íundi samtak-
anna „Friðlýsts lands" í Gamla bíói sl.
sunnudag
okkur vofir vegna landhernað-
ar bandaríkjamanna á Reykja-
nesskaga.
Við höfum orð eins hernað-
arsérfræðings bandaríkjamanna
fyrir því að þær hundrað og
fimmtíu meginherstöðvar
þeirra sem staðsettar eru víðs-
vegar um heim séu til þess ætl-
aðar að vera , segulstál sem
draga að sér árás óvinarins“.
Við höfum orð sjálfs Eisenhow-
ers forseta fyrir því að ef til
kjarnorkustyrjaldar komi verði
allar varnir gagnslausar. Við
höfum orð sjálfrar brezku rík-
isstjómarinnar fyrir bví að
ekki sé hægt að veita neina
vörn gegn afleiðingum kjarn-
orkuárásar. Eru þetta ekki
nægileg rök? Taka hérlendir
hernaðarsinnar þessi vitni ekki
gild? Tekur íslenzka ríkis-
stjómin þessi vitni ekki gild?
Ég endurtek: sjálfir hús-
bændur þess erlenda hers sem
hér dvelur lýsa því yfir að þeir
hafi gert land okkar að einu
forskotmarkinu í varnarkerfi
Bandarikjanna. Ameríska
striðsgróðavaldið hefur fleygt
í okkur hálfum fjórða milljarði
króna til þess að við gætum
farið á ærlegt fyllirí áður en
við deyjum fyrir það
Síðustu atburðir hafa þá einnig
rækilega sannað hver vöm okk-
ur er í aðild að Atlanzhafsbanda-
laginu og dvöl erlendra her-
manna í landinu Hvert manns-
bam ætti nú að geta skilið að
okkar lífshagsmunir •; tilheyra
ekki þeim herbúðum. Eklfi einu
sinni á svokölluðum friðartím-
arstórveldanna. Þar tel ég að
sjálft varnarleysið sé umkomu-
leysingjanum hin eina hlíf. Því
enn er mannkynið ekki svo
djúpt sokkið, þrátt fyrir allt,
að það meti ekki nokkurs hinn
vamarlausa ef hann stendur
heill og óskiptur á rétti sinum
og freistar þess að verja líf
sitt með andlegum og siðferði-
legum vopnum. Og komi enn
til sá óheyrilegi heimsglæpur
sem kallaður er styrjöld, þar
sem allt' er fótum troðið og
engu þyrmt — hvort er þá um-
komuleysingjanun' sæmilegra
að svikja líf sitt fyrir mútufé
eða deyja fátækur í rétti sín-
um?
Ég endurtek mína „kaldrana-
legu og fávíslegu yfirlýsingu”:
það er tilgangslaust að metast
á um það hvort verra sé austui
eða vestur þegar um þetta mál
er rætt. I báðum áttum er
kapphlaupið jaln vitfirrt. 1
báðum áttum er haldið áfram
að splundra eitursprengjum
framan í mannkynið, rétt eins
og um meinlausan kerlingareld
sé að ræða. í báðum áttum er
hinum ótrúlegu möguleikum
nútímavísinda fyrst og fremst j
beint að yfirburðum í tortím-1
ingu. Úr hvorugri áttinni þurf-
um við miskunnar að vænta ef
svo ber undir.
Það er því ekki hlutverk:
okkar íslendinga að taka þátt
í þessu blinda æði. Við eigum \
ekki að halda því vísvitandi á-1
fram að vera leiksoppur;
kjarnorkuvelda, hvorki í vestri1
málanna í dag. Ef við hefðum
varið ævarandi hlutleysi í
hemaði sem okkar eina eðli-
lega fjöregg, ef við hefðum
aldrei beðið um hervernd 1941,
aldrei leyft herstöðvar 1946,
aldrei gengið í hernaðarbanda-
lag 1949, aldrei endurkallað
her til landsins 1951, þá stæð-
um við að vísu fátækari að
aurum en auðugri að manndómi
frammi fyrir dómstóli sögunn-
ar.
Hið sjálfkjörna hlutverk okk-
ar í sögu yfirstandandi tíma
er *að bera sáttarorð milli
þjóða, þora að standa óháðir
gagnvart hinum hrikalegu
vandamálum umheimsins í
stað þess að gerast auvirði-
legir taglhnýtingar í þessa átt-
ina eða hina.
Orð háskólakennarans 1. des-
Jóhannes úr Köílum
ember 1948 standa enn stöðug:
„Hlutleysið felur í sér hættu,
það er Ijóst, það felur í sér
hernámshættu, það vitum vér
af reynslu, það tryggir ekki
gegn árásarhættu. En ö!I
skakkaföll sem vér verðum fyr-
ir sem hlutlaus þjóð eru bæt-
anleg. Hitt verður aldrei bætt.
ef vér gefum það upp, með
öllu því, sem slík uppgjöf fel-
ur i sér og leiðir af sér ..“
Við getum haldið áfram að
deila um stefnur og stéttir, um
sósíalisma og kapítalisma, um
austur og vestur — en um rök
sjálfrar tilveru okkar ættum
við ekki að þurfa að deíla.
Herstöðvamálið er ekki spurs-
mál um það ’nvort rita beri
íslendingur með stórum eða
litlum upphafsstaf. Það er
heldur ekki eingöngu lífshags-
munamál — það er lífsspurs-
mál. Það er ekki fyrst og
fremst spursmál um það hvérn-
ig við eigum að lifa, heldur
hvort við eigum að lifa. Og
jafnframt spursmálið um það
hvernig við eigum að deyja
ef í það fer. Spursmálið um það
hvort sú nafnlausa móðir sem
reikaði hér um eitrað land í
móðunni miklu í'yrir huridrað
sjötiu og fimm árum hefui
hnigið til éinskis í valinr..
Spursmálið um. það hvort nafn-
lausa barnið sem hér ltann að
reika um eitrað land eftir he’-
sprengjuárás skal deyja í smán
okkar andvaraleysis.
Ef til vill hefur sú vinstri rik-
isstjórn sem nú situr ao vö’.dum
á íslandi tíma til þess ein-
hverja nóttina að anza þessu
nafnlausa fólki, liðnu og 6-
bornu, þó hún virði lifandi fólk
ekki svars — e-kki einu sinni
sína „háttvirtu kjósendur'4
Hefur þessi stjórn ekki lofað
okkur því að framkvæma
ályktun Alþingis frá 28. marz
1956? Eftir hverju er hún þá
að bíða? Er hún að bíða eftir
þriðju heimsstyrjöldinni? Er
hún að bíða eftir rússr.esku
árásinni? Eða var það frá upp-
hafi ætlun hennar að svíkja?
En þá spyr ég að lokum þann
flokk sem frá öndverðu hefur
staðið fast og stundum einn í
stríðinu gegn stríðsvæðingu Is-
lands: hversu lengi ætlar hanu
að standa að slíkri rikisstjórn
og láta svik heimar brenni-
merkja sig?
um. En hvað mundi þá, þegar né austri, hvorki í köldu stríði1
út í hildarleikinn væri komið?
Það gildir alveg einu hvort við
lítum á Atlanzhafsbandalagið
vamarbandalag þegar sjálíir
sem árásarbandalag eða vam-
arbandalag. Því hvað táknar
ar vamir séu gaguslausar?
né heitu. Það er trúa mín að ef
við hefðum notað skynsamlega
þann dýrmæta tíma sem lið-
inn er síðan við stofnuðum
lýðveldi í þessu landi, þá gæt-
um við verið orðnir andlegt
stórveldi á vettvangi heims-
Konungleg'a leikhúsið í Kaupr^annahöfn sýnir nú söngleib
Offenbachs „llelenu f«igru“ í nýjmn búningi, og hefur sýning-
unni verið vel tekið. Það er ekki livað sízt að þakka Lise Ring-
heim í aðalhlutverkinu. — Hún sést á myndinni ásamt Ilenn-
ing Moritzen sem leikur Earís prins. o'