Nýi tíminn


Nýi tíminn - 18.06.1959, Síða 6

Nýi tíminn - 18.06.1959, Síða 6
6) — NÝI TÍMINN — Fmrmtudagur 18. júní 1959 NYI TIMINN tjtgefandi: Sósíalistaflokkui'nu. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásmundur Sigurðsson. Áskriftargjaid kr. 50 á ári. Um það verður kosið í forsíðu Tímans nýlega gat að líta þessa kynlegu og fróðlegu aðalfyrirsögn: „Andstætt stjórnarskránni að kjósa um annað en kjördæma- málið“, og er sú kenning síð- an ítrekuð á fjölmörgum stöðum ’í blaðinu að sam- kvæmt lögum og stjórnarskrá sé kjósendum bannað að hugsa um annað en kjör- dæmaskipunina þegar þeir verða einir í kjörklefanum 28. júuí n.k.I! Þetta er skop- legur boðskapur og sýnir glöggt að ráðamenn Fram- sóknarflokksins telja sig standa höllum fæti í öllum landsmálum. Auðvitað verður kosið um kjördæmamálið 28. júní en jafnframt verður kos- io um þjóðmáliii í heild, það sem gerðist á síðasta kjör < tímabili og þá kosti sem fram- undan eru. kað verður 'kosið um efna- hr.gsmálin. I síðustu kosn- ingum beittu alþýðusamtökin sér fyrir stofnun Alþýðu- bandalagsins til þess að tryggja verkalýðssamtökunum álirif á stjórn efnahagsmála og forða gengislækkun og kaupbindingu sem hemáms • flokkarnir höfðu boðað. Þessi gagnsókn verkaiýðssamtak- anna tókst með þeim árangri að eftir kosningar tók ekki við gengislækkunarstjórn, hel^Iur vinstristjórn sem hét því að leysa efnahagsmálin í samvinnu við alþýðusamtökin. En eftir tæplega tveggja ára stjórnarsamvinnu sviku Fram. sókiarflo'kkurinn og Alþýðu- flokkurinn þetta fyrirheit. Þeir báru fram kröfur um gengislækkun sem átti að hækka erlendan gjaldeyri í verði um 114% og hefði skert kjör launþega um 17 r-,F hundraði. Þeim tókst ekki að kc-ma þessum kröfum sín- um fram, en þeir fengu því ácrkað að horfið var frá stöðvunarstefnunni og nýjar, aivarl. verðhækkanir dundu yfir. I áslok 1958 sleit svo Framsókn stjórnarsamvinn- unni með kröfum um að kjör leunþega yrðu skert bóta- ■ 'laust um.,8%. Nokkrum vik- um síðar tók Sjálfstæðisflokk. urinn undir með sínum kröf- um um að grunnkaup skyldi lækkað með lögum um 6%. Og ’í janúarmánuði s.l. bar svonefnd r.'kisstjórn Alþýðu- flokksins fram frumvarp urn kauplækkun, sem í febrúar nam 13,4%, og það var sam- þykkt með stuðniogi íhalds- ins og hjásetu Framsóknar (sem lýsti þó yfir fullu sami þykki sínu.) Hernámsflokk- arnir þrír sem í upphafi kjör- tímabilsins þorðu ekki að vinna saman höfðu nú aftur ^ameinazt um þá hugsjón s’ína að skerða hlut launa- fóiks í landinu í þágu at- vinnurekenda og auðhringa. Það er sannarlega ekki að undra þótt Framsókn kveini að um þetta megi kjósendur ekki hugsa, um þetta megi þeir ekki greiða atkvæði. En Framsóknarflokkurinn og bandamenn hans í kjaraskerð- ingunni munu með éngu móti ’komast undan því að verða dregnir til ábyrgðar fyrir stefnu sína í efnahagsmálun- um. að verður kosið um land- helgismálið, langmikilvæg- asta atburð síðasta kjörtíma- bils. Það mál var knúið fram stig af stigi með harðfylgi og festu Alþýðubandalagsins; þrívegis þurfti Alþýðubanda- lagið að neyða samstarfs- flokka sína til að gera skrif- legt samkomulag um að þeir myndu standa við loforð stjórnarsáttmálans! Ástæðan var sú, að þegar rekast á hagsmunir íslands og hags munir Breta og Bandaríkja- manna, er ráðamönnum her- námsflokkanna ekki treyst andi; margir þeirra taka svo- nefnda „vináttu“ Atlanzhafs- bandalagsins fram yfir lífs •> hagsmuni þjóðar sinnar. Brezk blöð hafa ekki farið neitt dult með það, að nú eftir stjórnarslitin sé það að- eins óttinn við kjósendur sem komi í veg fyrir samninga, en þau gera sér opinskátt vonir um að eftir kosuingar .verði hægt að fá „bráða- birgðalausn". Tíminn segir að um það mál megi kjósendur alls ekki hugsa •—• e.i um það verður ihugsað og um það verður kosið. tiað verður kosið um her- * námsmálin. S’íðustu kosn- ingar voru að verulegu leyti þjóðaratkvæðagreiðsla um liernámið, Framsóknarflokk- urinn og Alþýðufloklkurinn lofuðu því hátíðlega að fram- kvæma ályktun Alþingis um brottför hersins, og mikill meirihluti þjóðarinnar lýsti afdráttarlausu fylgi við þá stefnu. En þessir eiðar voru sviknir af ráðamönnum Fram- sóknar og Alþýðuflokks þeg- ar haustið 1956, og síðan. hafa þessir tveir flokkar ekki fengizt til að hvika hársbreidd frá stuðningi sínum við her- námsliðið; þeir tóku erlend- ar kröfur og þvinganir fram yfir vilja þjóðar sinnar. Nú hrópar Tíminn í angist að kjósendur megi fyrir enga muni hugsa um hernámsmál- in þegar þeir ganga að kjör- borðinu; það er skiljanlegt, en engar slíkar bænir munu firra flokkinn og hernáms- þjóna hans ábyrgðinni. „Þcxð er mcsnnhatur mestan parf' Adenauer hefur fyrirgert áliti sjálfs sln, flokks sins og rikis Orottför Konrads Adenauers ” af stjórnmálasviðinu í V- Þýzkalandi ætlar ekki að ganga hávaðalaust. Á ejö vik- um hefur þessi 83 ára gamli forsætisráðherra snarsnúizt um sjálfan sig, dregið tvö æðstu embætti ríkisins í svað- ið, teymt flokk sinn á asna- eyrunum og auðmýkt 270 manna þinglið hans, vegið aftan að vinsælasta ráðherr- anum í stjórn sinni á ódrengi- legasta hátt, bakað vestuiy þýzka ríkinu fyrirlitningu heimsine, og komið því til leiðar að þeir sem til skamms tíma hófu grjótkanslarann í Bonn til skýjanna eru farnir að líkja honum við Adolf Hitler. Þegar Adenauer reyndi að stjaka Ludwig Erhard efnahagsmálaráðherra upp í forsetaembættið, ræddu stjórn Ludwig Erhard málamenn í Bonn um krón- prinsmorð, því að Erhard var talinn sjálfsagður til að taka við forustunni af gamla mann- inum. Tilræðið fór út um þúf- ur, og þá brá Adenauer á það ráð að gefa sjálfur kost á sér við forsetakjörið 1. júlí. Jafnframt gaf hann til kynna, að hann hygðist taka æðsta vald í málefnum ríkisins með sér úr forsætisráðherrahöll- inni í forsetabústaðinn og vottaði þar með áþvæðum stjórnarskrárinnar og Heuss núverandi forseta lítilsvirð- ingu sína. Orátt kom á daginn að þing- flokkur Kristilegra demó- krata vildi ekki sætta sig við að gera Fritz Etzel, fjármála- ráðherra og verkfæri Adenau- ers, að forsætisráðherra í stað hans. Þingmenn trúðu engum öðrum en Erhard til að bera merki flokksins í kosningabaráttunni 1961. Lýð- ræðislegasinnaður flokksfor- ingi hefði auðvitað látið sér lynda svona mótlæti, en Aden- auer er ekki þannig gerður. Eins og jafnan áður greip hann til lymskubragða. Róg- sögum um Erhard *var komið á loft utan lands og innan. Þegar þær hrinu ekki á frumkvöðli „efnahagsundurs- ins“, ákvað gamli maðurinn að taka forsetaframboð sitt aftur og sitja sem fastast í forsætisráðherrastólnum. Frá þessu skýrði hann Eisenhow- er Bandaríkjaforseta, þegar þeir hittust við jarðarför Dull- esar. Þrátt fyrir löng kynni af Aienauer var Erhard svo hrekklaus að leggja af stað til Bandaríkjanna til að þiggja tvo heiðursdoktorstitla. Hann uggði enn síður að sér vegna þess að rétt fyrir brottförina frá Bonn ræddi hann við for- sætisráðherrann, sem fullviss- aði hann um að engin breyt- ing hefði orðið á sínum fyrir- ætlunum. Áður sama dag hafði Adenauer tilkynnt Krone, formanni þingflokks Kristilegra demókrata. Gerst- enmaier forseta þingsins og Etzel, að sér hefði snúizt hug- ur, flokkurinn yrði að finna nýtt forsetaefni. CJinnaskipti Ádenauers komu ^ eins og reiðarslag yfir flokksbræður hans. í stjórn þingflokksins ætlaði allt um koll að keyra. Gerstenm^iier, einn af fáum þátttakendum í 20. júlí-samsærinu gegn Hitl- er sem sluppu með lífi, var eins og endranær einarðastur flokksforingjanna gagnvart hátigninni og kvað uppúr með að ákvörðunin væri röng. „Berið þá bara fram vantraust á mig“, sagði Aden- auer storkandi. Þá féllust Gerstenmaier hendur, rétt eins og félögum hans hers- höfðingjunum, sem 20. júlí 1944 hættu við allar aðgerðir og skutu sig eða gáfust á vald Gestapo, þegar þeir fréttu að ekki hefði tekizt að kála Hitler. Aðrir þingmenn Kristilegra demókrata létu sér nægja að muldra í barm sér, að karlinn væri orðinn vit- laus, en samþykktu á þing- flokksfundi að „virða“ á- kvörðun hans. Ekki þótti Adenauer það nógu auðmjúk- lega kysst á vöndinn, hann lét kalla saman annan þingflokks- fund og samþykkja þar traustsyfirlýsingu á sig. Nú er Erhard kominn heim til Bonn. Hann hefur kvartað yf- ir meðferðinni á sér, en ekki haft þrek til að láta til skar- ar skríða gegn Adenauer. Á yfirborðinu á að heita kyrrt en ólgan undir niðri í Kristi- lega demókrataflokknum get- ur brotizt út þegar minnst. varir. A 7’estur-Þjóðverjar eru ýmsu ’ vanir af forsætisráðherra sínum, en ljóst er af við- brögðum blaðanna að nú hef- ur hann geng'ð skrefi of langt. Óháðu blöðin hafa öll með tölu snírzt gegn Adenau- er. Paul Sethe, stjómmálarit- stjóri Die Welt, sagði á mánu- daginn: „í sögu þjóðar okkar er það ekkert nýtt, að einhver télji sjálfan sig ómissandi en alla aðra óhæfa. Þetta er eitt af því sem gerir síðustu at- burði svo óheillavænlega .... Það sem þjóðin þarfnast er- fordæmi frá æðstu stöðum. Lifandi holdtekja frelsishug-1- sjóna, virðingar fyrir öðrum en sjálfum sér, og ekki sízt fyrir þeim stofnunum sem hafa frelsið í sér fólgið. En forsenda síðustu ákvarðana var ekki slíkur hugsunarhátt- ur, heldur einn ríkasti þáttur- Framh. á 10. síðu: Konrad Adenauer

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.