Nýi tíminn - 26.05.1960, Blaðsíða 3

Nýi tíminn - 26.05.1960, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. maí 1960 — NÝI TÍMINN — (3 Árið 1949 fól Alþingi rikis- st'jórninni að gerast stofnaðili fyrir fslands hönd að svonefnd- um Norður-Atlantshafssamn- ingi. Með uridirritun þess samn- ings var ákveðin og innsigluð hlutdeild hinnar vopnlausu ís- lenzku þjóðar í hernaðarbanda- lagi. Þeirri hlutdeild fylg'du réttindi og skyldur. Skyldurnar hefur íslenzká ríkið rsekt. Rík- ið hefur ekki aðeins staðið við þær skuldbindingar, sem það undirgekkst, heldur hafa og verið lagðar á þjóðina þungar byrðar, sem hún í upphafi áskilið sér rétt til að vera laus við. Nægir í því sambandi að rninna á herinn og herstöðvarn- ar í landinu. Samning'urinn var undirritaður með þeim fyrir- vara af íslands hálfu, að ekki kæmi ,,til mála, að útlendur her fengi að hafa aðsetur á íslandi á friðartímum, né yrðu þar leyfðar herstöðvar“. Síðar létu íslenzkir valda- menn undan ásókn Bandaríkj- anna og leyfðu hersetu í land- inu. Með þvi var þjó.ðin látin takast á herðar þunga byrði umfram allt annað. sem hún hafði skuldbundið sig til með undirrituri Atlantshafssamnings- ins, en bað er meira en sagt verður um ýmsa aðra aðila þessa hernaðarbandalags. Tvær voldugustu þjóðir Atlantshafsbandalagsins, Banda- ríkjamenn og Bretar, hafa nú um langt skeið háð miskunnar- lausa baráttu við íslendinga, beitt sér með öllum ráðum gegn brýnasta hagsmunamáli þeirra ■og hvorki sparað til þess fé né fyrirhöfn. Bretar hafa látið herskip sín ösla um í ísíenzkri fiskvfeiðilandhelgi veiðiþjófum til verndar, og brezkir sjóliðs- foringjar hafa 'þrásinnis hótað Íslendingum lífláti,- ef þeir dirf- jst' að gæta laga og' réttar í eigin lándheíg'i. ' Þessari vopnuðu árás Breta 'hefur bandaríska varnarliðið á fslandi svarað með fullkomnu aðgerðarleysi, og sánnaðist með því. að Bandaríkin hafa hér herlið einhverjum öðrum til verndar en íslending'um, ef á •er ráðizt. Á alþjóðavettvangi hafa Bandaríkin frá upphaíi stutt brezku ríkisstjórnina í land- helgismálinu. og þau hafa gert það með vaxandi. þunga. Á sjó- réttarráðstefnunni í marz — apríl 1960 tóku Baridarikin blátt áfram forustuná í baráttunni gegn hagsm'unum íslands og ueyttu þar allra bragða, sem manna. Allt um það berjast þau á móti. Þau gera sér ljóst, að hér er um lífshagsmuni ís- lendinga að tefla og engra ann- arra, og gegn þeim hagsmunum berjast þeir með klóm og kjafti. Eru þessar aðfarir tveggja forustuþjóða Atlantshafsbanda- lagsins gegn íslandi í samræmi við gerðan samning? í 1. g'r. Atlantshafss'amning's- ins segir svo: „Aðilar takast á hendur. svo sem segir í sáttmála hinna Sameinuðu þjóða, að leysa livers konar milliríkjadeilumál, sein þeir kunna að lenda í, á friðsamlegan hátt, þannig að al- þjóðafriði, öryggi og réttlæti sé eigi stofnað í hættu, og' að beita ekki hótunum né valdi í miliirikjaskiptum á nokkurn þann hátt, sem ósamrýmanleg- ur er markmiðum Sameinuðu þjóðanna“. Þannig hljóðar 1. gr. þessa samnings. Ákvæði hennar um friðsamlega lausn deilumála hlýða Bretar með því að senda sjóher sinn á fslandsmið til árása á þá bandalagsþjóð sína, sem er sú minnsta og um leið sú eina, er ékki getur með morðvopnum borið hönd fyrir höfuð sér. 1 skiptum sínum við íslendinga beita Bretar bæði hótunum og valdi. Þeir hafa hótað að skjóta íslenzk skip í kaf, reynt að sigla þau í kaf. og þeir hafa hernumið íslenzka menn að skyldustörfum við strendur landsins. Slíkur hefur réttur íslendinga orðið í reynd í samskiptum við eina öndveg- isþjóð Atlantshafsbandalagsins. í 2. gr. samningsins segir m.a. á þessa leið: ..Aðilar munu stuðla að frek- ari þróun friðsamlegra og vin- samlegra milliríkjaviðskipta". — Hafa ekki Bandaríkjamenn og' Bretar gætt þess í viðskipt- um við íslendinga? Nei. þróun- lund hafa Bretar látið ,.hin friðsamlegu og vinsamlegu millir:kjaviðskipti“ þróast, að því er viðkemur fslending'um, og til þess hafa þeir notið stuðning's Bandaríkjamanna í vaxandi mæli. Loks er í 5. gr. þessa ágæta samnings svofelld klausa: „Aðilar eru sammála um, að vopnuð árás á einn þeirra eða fleiri í Evrópu eða Norður- Ameríku skuli talin árás á þá alla". Samkvæmt þessu átti herhlaup Breta á íslandsmið og vopnuð valdbeiting þeirra þar að jafngilda árás á t.d. sjálf Bandaríki Norður-Ame- ríku. Þó snerust hvorki þau né önnur bandaiagsríki til varnar, og var með því aðgerð- arleysi framið enn eitt samn- ing'sbrot á íslendingum. Voru öll aðildarríki bandalagsins samsek um það brot, þótt höf- uðábyrgðin hvíli á Bandaríkj- unum sem voldugustu þjóðinni og þeirri, sem herstöðvar hefur hér á landi. Mikill hluti íslendinga gerði sér frá upphafi Ijóst, að bátt- taka íslands í Atlantshafs- bandalaginu var ósamrýmanleg afstöðu íslendinga sem friðelsk- andi, vopnlausrar þjóðar, er lýst hafði yfir ævarandi hlut- leysi í ófriði, er vér öðluðumst fullveldi 1918. Einnig var mikl- um hluta þjóðarinnar ljóst, að þátttakan í þessu hernaðar- bandalagi gat valdið tortlmingu þjóðarinnar, ef til stríðs kæmi. Og smátt og' smátt gerðu sí- fellt fleiri íslendingar sem áður voru fylgjandi samningn- um, sér ljóst. að Atlantshafs- samningurinn er einskis virði, þegar hag'smunir íslands eru annars vegar. Þó gekk fyrst alveg fram af þeim. er þeir fréttu af háttalagi Bandaríkja- stjórnar á síðustu Genfarráð- stefnu. Þar beittu Bandaríkin skeíjalausum áróðri og bak- tjaldamakki gegn íslenzka mál- staðnum og virtust næstum einskis svífast til þess að fá vilja sínum íramgengt, þótt það til allrar hamingju mistækist. íslenzku þjóðinni er nú nóg' boðið. Hún getur ekki náð rétti sínum með vopnavaldi né með áhrifavaldi stórþjóðar, en hún getur svarað samningsroíunum og ofbeldinu á annan hátt. Hún 'getur sagt sig úr bandalagi við yfirgang'sseg'gi. heimtað herinn brott úr landinu og herstöðv- arnar jafnaðar við jörðu. Þetta ber henni að gera. Með því vinnur hún á í áliti allra þjóða. einnig þeirra, sem nú traðka á rétti hennar. Sá manndómur íslendinga að ganga úr Atlants- hafsbandalaginu og vísa hern- um burt vegna áaengni og' kúg- unar tveggja stærstu þjóða þess mun um það er lýkur að- eins skapa aðdáun og virðingu annarra þjóða, ekki sízt þeirra, sem við harðrétti búa og fyrir sjálfstæði sínu berjast. Hér hefur verið rætt um úr- sögn íslands úr Atlantshafs- bandalaginu og' brottvísun Bandaríkjahers sem nauðsyn- lega og eðliiega mótaðgerð gegn þeim órétti, sem landsmenn eru beittir æ ofan í æ. Fjölmörg önnur rök hníga og' í sörnu átt og hafa verið borin fram á Alþingi 1949 og síðan. íslend- ingar hafa ekkert g'agn af hlut- deild í hernaðarbandalagi, heldur kalla með þvi yfir sig ægilegar hættur. Erlendur her og herstöðvar eru þjóðinni hættulegar á margan hátt. Vopnlaus og' fámenn þjóð eins og íslendingar á að skipa sér í raðir hinna hlutlausu ríkja og' vinna að friðarmálum á vettvangi þjóðanna. Það hlut- verk eitt sæmir henni og skap- ar henni virðingu. Skilyrðis- laus tryggð og þjónkun við ákveðin herveldi hæfir ekki ís- lendingum. Þeir vilja ekki hafa húsbónda, sem öðru hvoru fleygir í þá beini til að naga, en sparkar í þá eins og rakka þess á milli. Annars skal ekki frekar rakið allt það, sem með því mælir, að ísland standi utan hernaðarbandalaga, enda þess ekki þörf hér, svo oft sem um þau mál hefur verið rætt áður. Bandarískir hermenn á liergöngu á Keflavík ÍSLENDINGUM ER NOG BOÐIÐ Greinargerð íyrir þingsályktunartillögu þingmanna Alþýðubandalagsins um úr- sögn íslands úr Atlanzhaísbandalag- inu og brottvísun Bandaríkjahers. stórveldi eru tiltæk. Þess er vert að minnast, að bæði þessi stórveldi hafa, eins og aðrar þjóðir, viðurkennt þá staðreyhd, að fiskimiðin um- 'hverfis landið séu íslendingum 1 lífsnauðsyn. Þau neita ekki í orði þörfinni á verndun fiski- 'miðanna. bg þau þykjast skilja 'sérgtöðu íslendinga sem fiski- in hefur orðið öfug, siðan samningurinn var undirritaður. Árið 1952 var sett löndunar- bann á íslenzkan fisk í Bret- landi og þá átti að svelta ís- lendinga til hlýðni. Árið 1958 var gengið feti lengra og send- ur til íslands herskipafloti þeirra erind’a að traðka rétt bandalagsþjóðarinnar. Á þá | FRA Viðreisnin holdi klædd Það fara miklar sögur af gengi og áhrifum brotamanna í Bandaríkjunum og hafa ver- ið skrifaðar um það margar bækur. Aldrei varð þó vegur þeirra A1 Capone, Lucky Luciano og annarra slíkra svo mikill að þeir fengju að skrifa nöfn sín á hinn heilaga doll- ar þótt sumir þeirra væru að visu snillirigar í peningaföls- unum. En hér á íslandi stönd- um við miklu framar á þessu sviði. Á sama t:ma og Olíufé- lagið h.f. hefur orðið uppvíst að mestu fjársvikum í segu þjóðarinnar undir afskipta- leysisvernd gjaldeyriseftirlits- ins, þjófnaði, smygli. skjala- falsi, Lraski á kauphöllinni í Wall Street og fjárílótta til Sviss, fær þjóðin í hendur nýja bankaseðla þar sem get- ur að líta skýrum stöfum eig- inhandaráletrun forustumanns Olíufélagsins h.í. og yfir- manns gjaldeyriseftirlitsins. Og þetta voru ekki falsaðir seðlar heldur opinberir ríkis- seðlar. Ekki er að efa að keppinautar Vilhjálms Þórs á hinum alþjóðlega fjárglæfra- markaði muni votta honum innilega virðingu sína og hollustu og lofa að vepa hon- um innanhandar í framtíðinni ekki síður en verið hefur. Þetta nýjasta afrek Vil- hjálms Þórs er eflaust mesti sigur hans, og állir vita hvern- ig hann vannst, Ríkisstjórnin þurfti á Vilhjálmi að halda til þess að koma viðreisn sinni fram og hún gerði við hann sérstakan samning. Sá samn- ing'ur var þeim mun sjálf- sagðari sem andi viðreisnar- innar birtist einmitt í Vil- hjálmi Þór, klæddur holdi og blóði; ekkert á betur við en að sjá nafn hans á hinum nýju viðreisnarseð’um. — Austri.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.