Nýi tíminn - 16.11.1961, Qupperneq 5
Svar Krúsf 'joffs viB mótmcBhjm sœnsku
sfjórnarinnar vegna afómspr&nginga
Stokkhólmi C 11 — Sovézki amb-
assadorinn í Stckkhólmi afhenti
í dag svar Krústjoffs forsætis-
ráðherra við símskeyti sem Er-
lander forsætisráðherra Svíþjóö-
ar sendi 24. október s.I. með
beiöni ium að kjarnavopnatil-
raunum yrði hætt.
Krústjoff bendir á að sovét-
stjórnin hafi skýrt ástæðurnar
því að_ tilraunir með
kjarnavopn voru hafnar að
nýju. Við ákváðum að stíga
þetta skref eftir langa yfirvegun.
Það 'er ekki sársaukalaust fyrir
okkur, segir Krústjoff, en -allir
sem vilja vinna að friði í heím-
inum, hljóta að skilja ákvörð-
un'okkári'—' Reyni'ð'aS setja yð-
ur í spor Sovétrikjanna
eftir hina stórauknu líervæb-;
ingu Atlánzhafsbandá'lagsríkj-
anna. Þeir sem hafa augun op-
in fyrir þeirri þróun skilja •' ’á-
reiðanlega að sovétstjórnin átti
engan annan kost.
íbúar Sovétríkjanna, -sem orð-
ið hafa fyrir tveim innrásum af
hálfu þýzku hernaðarsinnanna á
einni mannsævi, hafa ekki að-
eins heyrt ævintýrasögur um
Islenzkir vísindamenn
Kaupmannahöfn 9/11 — Fyrir
skömmu vakti sú frétt mikla at-
hygli að norski fornminjafræð-
ingurinn, Helge Ingstad, hefði
fundið bæjarrústir Leifs heppna
á norðurströnd Nýfundnalands.
Nú kemur danskur fornminja-
fræðingur fram á sjónarsviðið og
kveðst hafa fundið þessar rústir
þegar árið 1956.
Það er Jörgen Meldgárd mag-
ister sem kveðst hafa fundið
rústirnar árið 1956, en hann var
þá einn á rannsóknarleiðangri á
þessum slóðum. Segir hann að
fundur rústanna hafi staðfest ís-
lenzka sagnritun um að Leifur
heppni hafi komið til Vínlands
um árið 1000. Það varð að sam-
komulagi milli Meldgárds og
þjóðminjasafns Kanada að leyna
þessum fornminjafundi 'fyrst um
sinn til þess að ævintýramenn
og sjálfskipaðir fornminjafræð-
ingar færu ekki að grafa í rúst-
irnar. Eigi að síður sagði Meld-
gárd Helga Ingstad frá fundin-
um. Eftir að Ingstad byrjaði upp-
gröft í rústunum í sumar hefur
Meldgárd verið þögull, en málið
hefur nú verið upplýst af for-
6tjóra danska þjóðminjasafnsins,
Age Roussel.
Áður en Ingstad komst til
rústanna samkvæmt tilvísun
Meldgárds hafði hann álitið að
utgáfu llsfaverkakorta
Um þessar mundir er eitt ár
liðið síðan Ásgrímssafn var opn-
að almenningi. Hefur safnið nú
hafið útgáfu á listaverkakortum
fyrir jólin, og urðu fyrir valinu
tvær þjóðsagnateikningar, Bú-
ikolla og Átján barna faðir i álf-
Iheimum, og olíumálverk af
Heklu, málað árið 1923. Eru þessi
listaverk í eigu safnsins. Kortið
af Heklu er prentað í litum, og
ei' að öllu leyti unnið hérlendis.
Vandað hefur verið mjög til þess-
arar útgáfu. Myndamótið ai
Heklu var gert í Prentmót h.f., og
vann það verk Eiríkur Smith
listmálari. Prentun önnuðust Lit-
myndir s.f. í Hafnarfirði. Kortið
er tvöfalt, og á bakhlið þess er
mynd af Ásgrími, ásamt stuttum
texta á ensku og donskú. Rr þétfá
kort hin fegursta jólakveðja til
vina og fyrirtækja erlendis.
Hér í Reykjavík er Heklu-kort-
ið tií söju í Ásgrímssafni. En
végna þess að safnið er ekki op-
ið nema 3 daga í viku, verður
það einnig selt í Baðstofu Ferða-
skrifstofu ríkisins. Á Norðurlandi
eru kortin til sölu í Listmuna-
og blómabúð KEA á Akureyri.
Þjóðsagnakortin eru einnig tvö-
föld, og á þau er prentaður skýr-
ingatexti á íslenzku og ensku.
Eru þau kort seld í nokkrum
bóka- og ritfangaverzlunum í
Reykjavík, og einnig á nokkrum
stöðum úti á landi.
aðsetur Leifs heppna á Vínlandi
hefði verið mun sunnar, senni-
lega í Nova Scotia. Roussel lét
í ljós vonir um, að Helge Ing-
stad leiti eftir samstarfi annarra
sérfræðinga við uppgröftinn,
þannig að ekki þurfi framvegis
að ríkja neinn vafi um að að-
setursstaður Leifs heppna og
víkingaliðs hans á Vínlandi sé
fundið.
Jörgen Meldgárd byrjaði að
starfa við fornminjarannsóknir á
Grænlandi árið 1948 og hélt því
starfi áfram til 1956 en þá hóf
hann svæðarannsókn við strend-
Ur Labrador og á Nýfundna-
landsströndum. Var þetta fram-
hald rannsókna hans á Græn-
landi. I þessum rannsóknum
tókst að staðfesta þær frásagnir
um hina ýmsu staði, er um get-
ur í hinum fornu íslenzku sög-
um. Könnunin leiddi til þess að
sérfræðingar þóttust vissir um
að .aðsetursstaður Leifs heppna
á Vínlandi hlyti að hafa verið
á norðurhluta Nýfundnalands. I
þessum rannsóknarleiðangri Mel-
gárds var hvergi áætlað að grafa
upp rústir. Helge Ingstad vissi
um fyrirætlanir um að hefja
uppgröft á þessum slóðum. Ef
uppgröftur hans, sem við þekkj-
um aðeins af blaðafregnum,
þykir sanna að fundizt hafi bæj-
arrústir Leifs heppna, þá von-
um við að hann láti ekki drag-
ast að kveðja til fleiri fornminja-
fræðinga og sérfræðinga frá
skandinavísku löndunum, ís-
landi og Kanada. Þetta er mikil-
vægt mál og krefst margvíslegs
starfs og fjölþættra rannsókna
sem æskilegt er að fleiri en einn
maður vinni að sagði Roussel
að lokum.
1 styrjaldir. Þeir hafa lifað þær
með öllum þeirra hörmungu.m.
| Engin þjóð, ekkert land varð
fyrir slíkum hörmungum 1 síðari
| heimsstyrjöld sem Sovétríkin.
1 Þessvegna leggjum við allt kapp
á að bægja styrjaldarhættunni
frá mannlegu samfélagi. Við höf-
um lagt mikið starf í það að
reyna að fá gerðan sáttmála um
algera og allsherjar áfVopnun,
en því miður hefur 'sú viðleitni
okkar ekki boriö árángur.
Við höfum lagt; frarn friðsam-
legustu tillöguna sem hugsazt
getur við núverandi aðstæður,
þ.e. að binda enda á: leifárnar
frá síðustú lie'mtSstýrjöld' með
því að gera friðafsamninga- við
Þýzkaland. En hvert er svar
véstufveJdánná-'-viö • þessari* til-
lÖgú? ''Þaú -'hafna tillögunni úm
friðarsamninga, neita að semja
urn frið 16 árum eftir að styrj-
ödinni við Þýzkaland er lokið. Á
hverjum einasta degi heyrum-.við
hótanir'útn að" Atláhzháfsbándh-
lagið muni beita valdi til að
hindra friðarsamhinga.
Við getum ekki lokað augun-
um fyrir þeirri staðreynd að
I land okkar er umkringt banda-
rískum herstöðvum, og að hald-
ið er áfram að staðsetja mik-
ilvirkustu vopn á þessum stöð-
um. Hernaðarútgjöld Bandaríkj-
anna jukust um sex miiljarða
dollara á síöasta ári. Bandaríkin
halda stöðugt áfram að efia her
sinn og herbúnað á öllum svið-
um. Þessar aðgerðir Bandaríkj-
anna eru í fullu samræmi við
bað sem þau ríki gera, sem eru
að undirbúa styrjöld.
Hernaðarsinnar í Vestur-
Þýzkalandi verða stöðugt hávær-
ari í kröfum sínum um atóm-
vopn handa vesturþýzka hern-
um. Og það eru Adenauer og
Strauss sem hafa forystuna í
bessari hernaðar- og hefndar-
stefnu. Þrátt fyrir allt þetta
ætla Atianzhafsbandalagsríkin
að ærast ef við styrkjum varn-
armátt okkar.
Eina ástæöan fyrir því að við
hófum kjarnavopnatilraunir að
nýju er sú, að mannkynið verð-
ur að sleppa við þær ógnir, sem
kjarnorkustyrjöld' myndi leiða
yfir. Við höfum margsinnis.-tekiðl
I það fram og gerum það emi,e,nu<
sinni, að við munum aldrgi :notai
1 atómvopn okkar til að ráðast á;
neinn.
Nýju atómvopnatilrauiutnan
eru óhjákvæmileg afleiðing víg-t
: búnaðarkapphlaupsins, sem, \?est-
urveldin hafa -neytt okkur ; út íg
Ráðandi öfl í Bandarikjunum'
styðja hemaðar- og hefadar-
stefnuna í V estur-Þýzkaiá.ndii
Þessi sömu öíl hafna tillögúni
okkar um algera afvopnun en
líamra á því að Bandaríkjamenrv
hafi meiri og stærri kjarnorku-
vopn en Sovétríkin. Það sem
fólk óttast nú er ekki aðeins
géislavirkt úrfall, heldur líká
hinn gífutdegi eyðingarmáttur
h'inna, nýju vopna. Ef Sovétríkih
svcruöu ekki auknum vígbúnaði
vesfurveldanna myndu þau
leggja ut í nýtt styrjalda.rævin-
týri. Við getum ekki haldið að
okkur höndum og beðið eftir því
að árið 1941 endurtaki sig.
Hversvegna ber sænska stjórnin;
engin mótmæli fram við þá sem
ekki vilja samþykkja tillögu-
okkar til að tryggja friðinn?
Stefna vesturveldanna er byggð
á vígbúnáði. Þau vilja láta allar
þjóðir búá við ógnanirnar frá
hinum gjöreyðileggjandi atóm-
sprengjum.
Það vérður að taka það fram,
að viðbrögð sænsku stjórnarinn-
ar við atómtiiraunum Sovét-
rhanna eru undarleg þegar at-
huguð eru viðbrögð hennar við
atómvopnatilraunum og vígbún-
aði vésturveldanna. Þegar vest-
urveldin hafa sprengt atóm-
sprengjur og lýsa opinberlegá
yfir vígbúnaðarstefnu, þá heyrist
ekki mótmælarödd sænsku
stjórnarinnar.
1 bréfinu endurtekur Krústjoff
að Sovétríkin séu reiðubúin að
varpa öllum vapnum í hafdjúp-
in ef vesturveldin fást til að
ganga frá samningum um algera;
fullkomna aivopnun undir ör-
uggu alþjóðlegu eftirliti. Svíþjóð
hefu.r stutt þessa tillögu Sovét-
ríkjanna cg lagt fram sinn
skerf til þess að slíkt sárh-
komulag náist milli stórveld-
anna.
„Saga bóndans í Hrauni“ eft-
ir Guðmund L. Friöfinnsson er
komin út hjá Ísafoídarprent
smiðju h.f.
Þetta eru endurminningar
Jónasar bónda Jónssonar, saga
bónda sem mörgu hefur kynnzt
og misjöfnu. í formálsorðum seg-
ir höfundur, Guðmundiir L. Frið-
finnsson, m.a.:
„Enhverjir kunna að segja
sem svo, að sagá þessi sé held-
ur viðburðasnauð og við eina
þúfuna • bunain. Þeim góðu
mönnum vil ég í allri hógværð
benda á það, að frá mínu sjón-
armiði er þetta sagan, sem gerzt
hefur í hverri e.nustu sveit á ís-
landi, aðeins með einstaklingS'
og staðháttabundnum tilbrigð-
um. Þetta er lífs- og baráttusaga
nokkurs hluta þeirra manna og
kvenna, sem landið hafa byggt
og oftast hafa verið köllun sinni
bamslega trú, en jafnan horfið
hljóðlaust í grafhvelfngar
glejymskunnar. Þó er þetta það
fólk, sem vökvað hefur og plægt
þann jarðveg, sem nú stöndum
vér á, og unnið hefur í samræmi
við tíðaranda eins og þekking
og vit hrökk til. Og þótt sitt-
hvað megi að verkum þess finna,
mun það þó mála sannast, að
vizka hjartans stendur ein eftir,
þegar allar kenn.'setningar og
tækniskriðdrekar er molnað í
loft“.
,.Saga bóndans í Hrauni“ er
um 190 blaðsíður, kaflar 27.
Nokkrar myndir eru í bókinni.
Fimmtudagur 16. nóvember 1961 — NÝI TÍMINN — (5