Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 9
btirídur Síjttrdird. Jrk aUaaumldnefnd. LímtrésverksmiÖjan, sem starfrækt er aö Flúðum í Hrunamannahreppi er aö hluta eign nokkurra sveitarfélaga, þar á meðal Biskupstungnahrepps. Ætlunin hefur verið, aö ef hægt verður að efna til iðnaðar í tengslum við verk- smiðjuna, þá verði reynt að staðset ja þann iðnað í nágranna- sveitunum. Atvinnumálanefnd. Biskupstungna barst fyrir stuttu erindi frá Límtrá h/f, þar sem vakið er máls á að við framleiösluna í verksmiðjunni fellur til mikið efni og afgangar, sem gott væri að geta nýtt til einhvers iðnaðar. Guömundur Magnússon á Flúðum hefur framleitt nokkuð af smáhlutum úr límtrásafgöngum til reynslu. Þessi sýnis- horn voru send atvinnumálanefnd og sú hugmynd lögð fram að við framleiðslu slíkra smáhluta úr límtrásafgöngum, þyrfti ekki mikinn eða dýran válakost eða stórt húsnæði, en trúlega ýæri þarna atvinna fyrir handlagið fálk. Eins og er eru áhugasamir menn í sveitinni að vinna hluti til reynslu. Annars er þetta mál allt á frumstigi, en vissulega væri gaman ef heppnast gæti að reka slíkan iðnað hár. Ef einhverjir hafa áhuga á þessu, þá ættu þeir að ræða við atvinnumálanefndina. Þuríður Sigurðardáttir

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.