Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 11
-9- Mitt í janúarófærðinni tókum við hús á nýja heimilis- fólkinu á Torfastöðum. Tilgangurinn var að yfirheyra þau ólaf, Drífu, Ingu og Sigurð ofurlítið um starfsemi "Meðferðarheimilisins Öll eru þau Reykvíkingar nema ólafur sem er úr Hafnar- firði. Reyndar sagðist Inga eiga ættir að rek.ia hineað í Tungurnar hví afi hennar Hallgrímur Pálsson ólst upp á Króki, en var fæddur í Bræðratungu. Pau er gott heim að sækja og er látt yfir heimilis- hragnum. Núna eru hjá þeim 4 krakkar en eiga að vera 6, þegar rætist úr þrengslunum. Samhandið við krakkana sýnist manni gott og jafnvel líkast samhandi foreldra og harna. Sjálf eiga hjónin 2 hörn hvor, 5 ára drengi og strák og stelpu á fyrsta ári. Drífa og ölafur sögðu að það væri haft á orði að hau væru svo plönuð að jafnvel í harneignum væri algjör rithmi því 5 mánuðir eru á milli sonar þeirra Pannars og Puna Sigurðssonar og eins 5 mánuðir á milli Bjartar dóttur þeirra og Dags Sigurðssonar. "Sýnir þetta kannski hetur en margt annað hvað við búum þétt" skaut ólafur inn í. Að þessu innskoti loknu háðum við þau að kynna sig lauslega: Sigurður Ragnarsson f.'44, er lærður kennari og sál- fræðingur. Vann við barnageðdeildina Dalhraut í 4 ár og einnig við Unglingaheimilið í Kópavogi í 1 ár. Inga Stefánsdóttir f.'55 (kona Sigurðar), á tæpt ár eftir af sálar- og uppeldisfræði námi sínu við HáskÓla íslands. Vann við Kleifarvegsheimilið í 1 ár en þar eru 7-12 ára hörn. Drífa Kristjánsdóttir f.'50 er lærður kennari og kenndi á Unglingaheimilinu í 6 ár. ölafur Einarsson f. '52, (maður Drífu) er lærður prentari. Vann á Unglingaheimilinu í 3 ár. Hver er nú kveikjan að hví að hið farið út í bessa starfsemi? A árunum '75-'78 var oft rætt meðal starfsfólksins á Unglingaheimilinu að fara út í sveit og lifa í sveita- rómantíkinni.- Einnig hafði óg alltaf haft geysilegan áhuga á sveitabúskap, segir ólafur. - Síðan er það '78 að akveðið er að leggja niður Breiðuvíkurheimilið, m.a.. af því hvað það þótti óhentugt. Þar hafði um skeið verið rekið meðferðarheimili fyrirr.6-8 hörn, en þar áður voru geymdir þarna 15-18 drengir í nokkurs konar fangelsi frá náttúrunnar hendi.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.