Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 15

Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 15
-13- Þessu fylgja að nokkru leyti kostir, þ.e. félagið rekur sig að hluta til sjálfkrafa, og ekki er eins mikil hætta, þó að um tíma veljist þróttlítil forysta, að fólagið lognist alveg út af, eins og dæmi eru um annars staðar. En ókostir eru einnig nokkrir. Pyrst er þar um að ræða stöðnun eða hættu á stöðnun og íhaldssemi. Yið megum ekki gleyma því að Umf. er frjálst fólag þ.e. öllum er heimilt en engum skylt að vera í fólaginu innan þeirra marka sem lög fólagsins segja til um. Pólagarnir kjósa í stjórn og nefndir úr sínum röðum, og eru þar ýmsir kosnir til mikillar vinnu í þágu allra sem þátt taka í fólagslífi í sveitinni. Og er engum vísað frá þátttöku í starfi fólagsins, hvort sem hann er veitandi eða þiggjandi, enda hefur það alltaf verið sjálfsagður hlutur að sem flestir fái notið. En með því að vera ekki fólagi í Umf. geta þeir sem ekki hafa áhuga, eða treysta sér til mikilla. starfa, notið alls þess sem felagið býður upp á, en tryggt sig lausa frá öllum skyldum við fólagið. öneitanlega hefur þetta fyrirkomulag oft verið til umræðu meðal okkar sem undanfarin ár höfum valist til starfa fyrir fólagið, og þetta má vera mönnum umhugsunarefni. Þetta á ekki að skiljast sem nöldur út í einn nó neinn, heldur að vekja til umhugsunar þetta fyrirkomulag að frjáls fólagsskapur eins og Umf. taki beinlínis að sór starf- rækslu æskulýðsstarfs sveitarinnar og að manni finnst þá' einnig með skyldum við sveitarfólagið. Eg hef talið og tel enn að flest öll hugsanleg félags- og tómstundastarfsemi rúmist innan Umf. en svo þarf þó ekki að vera og reyndar getur það ekki gengið nema umsjón einstakra þátta skintist á margar herðar. Aftur á móti sýnist mér töluverð hætta fólgin í því ef mörg félög fara að starfa að svipuðum fólagsmálum í litlu sveitarfólagi, og hefur reyndar virst svo vera þó sveitar- fólögin sóu stærri. Þarna á ég fyrst og fremst við ýmsa klúbba og fólög, sem höfða að mestu til fullorðinna, hafa að sjálfsögðu engar skyldur við aðra en sína fólaga en hirða jafnvel bestu bitana frá Umf. bæði starfskrafta og fjáröflunarleiðir. En svona þarf þetta kannski ekki alltsaman að vera og kannski bera þessi skrif með sér íhaldssemi hjá þeim sem þetta skrifar. Að honum finnist Umf. þurfa að vera svona "alltumlykjandi" eins og sumum finnst það hafa verið. Ég veit að mörgum finnst nóg um umsvif og starfssemi Umf. hér £ sveit, en þá skulum við líta á nokkra þætti sem'' hvorki fólagið nó aðrir hafa sinnt verulega: Skulum við þá fyrst nefna fólagsstarf fyrir börn 6-12 ára.og jafnvel yngri. Þessum aldurshóp hefur lítið verið sinnt utan þess sem skólinn getur gert. Þetta stafar fyrst og fremst af því að Umf. hefur hingað til miðað sitt félaga- tal við 12 ára inngöngu. Reglum má alltaf breyta og ég þykist vita að ýmsum finnist vanta einhverja starfsemi fyrir þessa krakka. En í þessu sambandi mætti benda á að slík æskulýðs- starfsemi krefst talsverðrar vinnu, og er alls ekki alltaf hægt að ætlast til þess að skráðir félagar i Umf. leggi þá vinnu á sig. Þetta Rnýr á spurninguna um fólagslög og skráningu fólaga hjá Umf. og er fólk hvatt til að hugleiða þessi mál því nú á aðalfundi í vor verða skipulagsbreytingar til umræðu.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.